Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Page 20
60 FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. Spilaborð í FRÍMERKJAMIÐSTÖÐINNI, Skólavörðustíg 21 a, sími 21170, fæst vandað spilaborð, 91 x91, sem hægt er að leggja saman. Það kostar 3.950 krónur. Einnig fást festingar fyrir glös og öskubakka á 1.230 krón- ur. Tops er snjöll nýjung, spil úr helstu mótum heims, og nýjar fyllingar koma tvisvar á ári. Þá fæst auto- bridge ásamt fyllingum á 1.410 krónur, sagnabox fyrir bridgespilara á 3.200 krónur og bridgebakkar á 45 krónur. Spilaf öllumgerðum Það ætti sannarlega ekki að vera erfitt að finna jóla- gjöfina fyrir spilamanninn í FRÍMERKJAMIÐSTÖÐ- INNI, Skólavörðustíg 21 a, sími 21170. Þar fæst fjölbreytt úrval hvers konar spila og verðið er frá 65 krónum. Nefna má spil fyrir sjóndapra, plastspil, spá- spil, kapalspil, tarrotspil og öll önnur spil. Royale dúkkuvagn Verslunin FÍFA, Klapparstíg 27, sími 19910, hefur ekki einungis á boðstólum barnavagna heldur einnig fallega dúkkuvagna og vöggur. Reyndar eru til fimm gerðir af dúkkuvögnum en þessi á myndinni, sem er breskur og af gerðinni Royale, kostar 5.800 krónur. Vaggan, sem er á hjólum, með blúnduskermi, sæng og kodda, kostar 4.300 krónur en hún er einnig til minni. Afmælisspil Reykjavíkur Hjá FRÍMERKJAMIÐSTÖÐINNI, Skólavörðustíg 21 a, sími 21170, fást leikspil af öllum gerðum. Má þar nefna hið nýja afmælisspil borgarinnar, sem er nýkomið á markað, og auk þess hið sívinsæla Trivial Pursuit sem kostar 2.780 krónur. Afmælisleikurinn kostar 950 krónur. Einnig fæst Backgammon (kotra) á 355 krónur og fjölspilakassar frá 285 krónum. Þá má nefna Matador, Uno, rallspil, Electro, Ludo og myndabingó. Töfl og skákklukkur FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN, Skólavörðustíg 21 a, sími 21170, selur mikið af töflum og skákklukkum, enda alltaf vinsælar jólagjafir. Skákklukkurnar kosta frá 1.275 krónum, taflmenn frá 675 krónum og einn- ig fæst mikið úrval taflborða á góðu verði. Vanti þig gjöf handa áhugamönnum um spil þá hefur Frímerkja- miðstöðin geysimikið úrval. Stólar og borð frá Gauter Verslunin FÍFA, Klapparstíg 27, sími 19910, hefur mikið úrval af borðum og stólum fyrir börn. Borðin kosta 2.980 krónur, stólar frá 1.450 krónum og barna- matstóll 4.950 krónur. Einnig eru til skúffueiningar sem alltaf er hægt að bæta inn í eftir efnum og ástæð- um. Handunnin kerti Handmálað postulín Chicco leikföng Verslunin BLÓM OG KERTI, Austurstræti 1, sími 28610, er með fullt hús af kertum, bæði til gjafa og á jólaborðið. Kertin eru handunnin, t.d. skrautkerti í mörgum litum, og er hægt að fá margvíslegar áletran- ir á þau. Stærðirnar eru auðvitað einnig mismunandi og eru kertin til á allt frá 450-1.350 kr. Ef þú vilt gefa vandaða og heimilislega gjöf er hand- málaða postulínið alveg tilvalið. BLOM OG KERTI, Austurstræti 1, sími 28610, er með mikið úrval af handmáluðu postulíni. Má þar nefna hluti eins og eru á myndinni. Jóladiskur með gyllingu kostar 1.500 krónur, platti með æðruleysisbæn 1.200 krónur og kanna 1.400 krónur. Hjá versluninni FÍFU, Klapparstíg 27, sími 19910, er mikið úrval af barnaleikföngum frá Chicco fyrir litlu börnin. Þetta eru vönduð þroskaleikföng sem börnin hafa mjög gaman af að leika sér að. Síminn á mynd- inni kostar 560 krónur, kubbahús kostar 890 krónur og xilofónn 962 krónur. Kertastjakar, kerti og blómahringir Ef þig langar að leggja áherslu á fallegt jólaborð færð þú allt til að skreyta það hjá versluninni BLÓM OG KERTI, Austurstræti 1, sími 28610. Kertastjakar fást á 185-240 og 340 krónur, blómahringir í öllum lituin 98-400 krónur, servíettur í stíl og einnig serví- ettuhringir. Þú getur meira að segja fengið allt í sama munstrinu ef þú vilt. Fyrir bílamennina I versluninni BÍLMÚLI, Síðumúla 3, sími 37273, fæst allt fyrir bílaáhugamennina, til dæmis þessir hjólatjakkar og öryggisbúkkar. Tjakkarnir eru til í þremur stærðum og kosta 5.300, 5.600 og 6.200 krónur. Öryggisbúkkarnir kosta 730 og 1.100 krónur - ódýr gjöf en sannarlega nytsöm fyrir alla þá sem eitthvað eru að stússa í bílunum sínum. Fótstignir og rafknúnir bílar Þeir eru alltaf mjög hrifnir af slíkum bílum, litlu gutt- arnir. í versluninni FlFU, Klapparstíg 27, sími 19910, er mikið úrval af stórum bílum fyrir litlu strákana. Þeir eru bæði fáanlegir fótstignir og rafdrifnir. Einnig fást þar hinir vinsælu bobsleðar. Sleðarnir kosta 3.120 krónur en ekki var komið verð á bílana þegar þetta var unnið. Hins vegar mun verðið vera mjög hagstætt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.