Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Side 56
96
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986.
►
TÉKK^
KKismi
Laugavegi 15, sími 14320.
Barnajól 1986
Jólastemmningin byrjar fyrir alvöru hjá okkur þegar barnajólaplatt-
inn er kominn því alltaf eru sterk tengsl á milli jóla og barna.
Barnajólaplattinn hefur komið undafarin jól og alltaf selst upp.
Myndirnar á þessum plöttum eru einstaklega fallegar og hlýlegar
og því er plattinn tilvalin jólagjöf, eða gjöf í tilefni barnsfæðingar á
árinu.
- I fallegum
gjafaumbúðum
kr. 2.150,-
Silfurkristall frá Austurríki
Hann er heimsþekktur fyrir fagra hönnun og vand-
aða slípun. Það er ekki hægt að líkja silfurkristal við
neitt nema demant. Margir hafa reynt að líkja eftir
þessum fallega silfurkristal en ekki tekist, varist eftirlík-
ingar. Silfurkristall er merktur S.C.
Tesett
Bæheimskristall
City-stellið
Tesett - svart og hvítt. Þetta er einstaklega fallega
hannað postulínstesett og það er ekki aðeins unga
fólkið sem vill það. Sex manna tesett er í fallegum
gjafakassa en það má fá allt i stykkjatali. Tekanna
kostar 2.400 krónur, bollapar 745 krónur og hitarinn
990 krónur. Þetta er gullfallegt testell.
Hann er heimsþekktur og fallegur handskorinn krist-
all. Mikið úrval af blómavösum, skálum og öðrum
fallegum skrautmunum. Hvítu stytturnar frá Royal
Dux eru vinsælar og sígildar. Verð frá 2.200 krónum.
City-postulíns matar og kaffistellið er v-þýskt gæða-
postulín og eitt af 7 hvítum vönduðum stellum sem
má nota í örbylgjuofn. Einnig eru til margar gerðir
stella með fallegum gull- og kóbaltmunstrum. Það
er líka mjög hagstætt verð bæði á kaffi og matarstell-
unum.
Ostabakkar
Ostabakkar, rauðvínskanna og hnífapör fyrir osta-
allt á þetta vel saman. Við bjóðum tuttugu gerðir af
ostabökkum, með eða án hanka, og tvær gerðir af
þessum fallegu rauðvínskönnum. Ostabakkar: Verð
frá 790 krónum. Rauðvínskönnur frá 950 krónum.
Ostahnífar, smjörhnífar, ostaaxir og ótal aðrir fallegir
hlutiráosraborðið sem fást aðeins hjá okkur.
Franskir pottar
í nýju eldhúsdeildinni er ótrúlegt vöruúrval fyrir
heimilið. Nýju frönsku pottarnir eru svo vinsælir að
við önnum varla eftirspurn - enda bjóða þessir pottar
upp á marga notkunarmöguleika, bæði á eldavélinni,
í bökunarofninum, í örbylgjuofninum og á matborðið.
Kynntu þér fallega potta og möguleika þeirra.
Fallegt postulín
Þessir postulínsvasar eru gullfallegir og úr fyrsta
flokks postulíni og brennslu. Vasarnir eru alveg nýir
og til í mörgum stærðum. í Tékkkristal færðu ótrúlega
mikið af fallegum postulínsvörum og þú getur verið
viss um að þú ert að gera góð kaup.
Eldföst föt
Þessi hitaföt eru alveg glæný í Tékkkristal, en þar
er nú boðið upp á 30 aðrar tegundir frá 1.400 krónum
og í grindum frá 1.850 krónum. Hitaföt eru alltaf klass-
ísk gjöf því þau eru bæði nytsöm og falleg á borði.
Fallegar Onyx vörur- tilvalin
herragjöf.
Vertu velkominn
— þú þarft varla að leita lengra.
rnii<-
ERISTMl
Laugavegi 15, sími 14320