Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. 3 Fréttir Hræðsla við nýtt Flugleiða- ævintýri í bankamálunum Líklegast að Utvegsbankanum verði breytt í hlutafélag Það verður ólíklegra með hverjum deginum að Búnaðarbanki og Útvegs- banki verði sameinaðir. Líklegasti kosturinn á teikmborðum þeirra sem nú fjalla um íramtíðarskipulag banka- málanna fyrir stjómarflokkanna er að Útvegsbankanum verði breytt í hluta- félag og að um leið verði stóraukið frjálsræðið í bankamálunum almennt. Ekki er grundvöllur fyrir því milli stjómarflokkanna að Búnaðarbank- inn gleypi Útvegsbankann með húð og hári. Þingflokkur framsóknar- manna lagði þetta til og talsmenn bankastjómar Búnaðarbankans em á sömu línu. Sjálfstæðismenn segja nei, þetta kemur ekki til greina. Stóri vandinn við sameiningu þessara banka er sá að hún getur ekki gerst nema með stórfelldum og langvinnum málamiðlunum. Menn óttast nýtt Flugleiðaævintýri sem lami samein- aða bankann í mörg ár. Þama er auðvitað átt við 15 ára baming og baráttu Flugfélagsmanna og Loftleiðamanna innan Flugleiða sem drógu vígtennumar úr sameinaða félaginu lengi vel. Þetta vilja menn ekki endurtaka í bankamálunum, enda er það starfsemi sem þolir ekki slíkt uppgjör milli stjómenda og starfsmanna til langframa. Það yrði ekki háð þegjandi og hljóðalaust og myndi spilla áliti bankans stórlega. Annað vegur einnig mjög þungt. Með þeim breytingum sem menn telja að verði að gera á bankakerfinu og hefur staðið til árum saman hefur ve- rið stefht að öflugri bönkum og hressilegri samkeppni. Ef Búnaðar- banki og Útvegsbanki lenda í einni sæng sem ríkisbanki, eða að meiri- hluta í eigu ríkisins, verður sameinaði bankinn annar risinn frá í bankaheim- inum, með Landsbankanum. Einka- bankamir fjórir sitja þá eftir sem veik peð og áhrifalítil. Þeir þyrftu að slengja sér allir saman til þess að hafa Ýmsar kenningar á lofti um ríkisbankamálin: Utvegsbankinn við Lækjartorg. Líkiegasti kosturinn í endurskipulagningu banka- kerfisins þykir nú, að gera Útvegsbankann að hlutafélagi. roð við ríkisbönkunum. Á því em eng- ar líkur. Hugmyndin um Útvegsbanka ís- lands hf. felur í sér að Iðnaðarbankinn er enn tilbúinn til þess að íhuga sam- einingu við annan eða aðra banka. Hann gæti keypt sig inn í Útvegs- bankann og þá má segja að Verzlunar- bankinn og Alþýðubankinn væm knúnir til þess að taka sömu átt eða sitja annars eftir eins og rétt þokkaleg- ir sparisjóðir. Samvinnubankinn hefur nokkra sérstöðu í málinu en um hann gilda þó svipuð lögmál. Loks væm meiri líkur á þvi en ann- ars að ríkið endurheimti eitthvað af óhjákvæmilegu framlagi sínu til Út- vegsbankans nú, 500-900 milljónir ef bankanum væri breytt í hlutafélag og hlutaféð allt selt. -HERB Slegist við „sjúkrabeðið": Póiitísk völd þótt þingmönnum verði ýtt burtu Útrýming þingmanna úr banka- ráðúm ríkisþankanna þýðir ekki endilega að pólitískum völdum í þess- um bönkum ljúki. Verði Búnaðar- banki og Útvegsbanki sameinaðir og breytt í hlutafélag með 45% eign ann- arra en ríkisins getur breiðfylking eigenda úr einum stjómmálaflokki átt bandalag við einhvem hluta ríkiskjör- inna stjómarmanna og ráðið stefnu bankans. Þama er fyrst og fremst átt við sjálfstæðismenn vegna fjölda þeirra og almennrar þátttöku í at- vinnulífinu. Þetta em viðhorf sumra þeirra sem nú em að meta bankamálin og móta bankamálastefnuna fram á næstu öld. Raunar blasir við að í stjómum eða bankaráðum hreinna ríkisbanka verða ekki eintóm pólitísk viðrini, þótt þingmenn hverfi þaðan. Annaðhvort verða bankaráðin kosin áfram af Alþingi eða skipuð með ein- hverjum hætti af pólitískum ráðherr- um. Pólitískt kapphlaup um bankaráðsstólana heldur því áfram. Þessi staðreynd segja sumir að kippi raunar fótunum undan þeim mögu- leika að nokkur maður kaupi hluta- bréf í banka sem ríkið eigi að meirihluta. Það breyti engu um póli- tíska stefiiu í bankamálunum. í þessum dæmum er ekki átt við að flokksmenn ákveðinna flokka setjist um þá til þess að reka þá sem flokks- banka heldur er um að ræða áhrif á bankamálastefhuna og peningamála- stefiiuna í heild. Þar eru viðhorf flokkanna misjöfii og víða ólík. Það er einmitt af þessum sökum sem fram- sóknarmerm vilja alls ekki að einka- aðilar eignist sameinaða Búnaðarban- kann og Útvegsbankann alveg eða að meirihluta. Viðskiptaráðherra sjálfstæðis- manna, Matthías Bjamason, hefúr raunar þegar fallist á meirihlutaeign ríkisins og virðist því treysta á þá kenningu að 45% hlutafjáreign einka- aðíla nægi þeim til þess að ráða bankanum í reynd þar sem sjálfstæðis- menn hijóti að eiga minnst einn af þrem eða fjórum bankaráðsmönnum ríkisins í fimm eða sjö manna bankar- áði. -HERB Eignir bankanna þriggja: Hver einasti nagli metinn til verðs Matið á eignum Útvegsbanka, Iðnaðarbanka og Verzlunarbanka, sem lagt var fram um miðjan mánuð- inn, rétt áður en slitnaði upp úr sameiningarviðræðunum, var bráðabirgðamat. Stjómendur þeirra ákváðu, þrátt fyrir viðræðuslitin, að láta fullmeta eignir sínar. Því verki mun ljúka eftir um það bil mánuð. Það er Almenna verkfræðistofan hf. sem annast þetta verkefni. Nokkrir starfsmenn hennar sinna því að fullu og verður farið um allt land og allar eignir þessara þriggja banka metnar til fjár, hver einasti nagli, eins og einn bankamannánna orðaði það. Ef koma á til sameiningar Útvegs- banka og Búnaðarbanka, hvað þá ef selja á hluti í sameinuðum banka, er líklegt, að sams konar mat verði að framkvæma á eignum Búnaðar- bankans. -HERB Strax og viðræður hófiist um sam- einingu Útvegsbankans við ein- hvem annan eða einhverja aðra banka byrjaði slagur um hús bank- ans við Lækjartorg. Fyrst og fremst vildi ríkisstjómin fa það tU nota fyr- ir Stjómarráðið. Samkvæmt heimildum ÐV-vom og eru uppi ýmsar aðrar hugmyndir í kerfinu um notkun á Útvegsbanka- húsinu, sem líklegast er nú raunar að hýsi bankann áfram. Þar eru á höttunum ríkisstofnanfr sem þykja búa þröngt Þær slást þvi um húsið við einstök ráðuneyti. Mörgum mun hafa þótt áhugi sumra í þessu efiú öllu meiri en á því að tryggja hagsmuni bankans sjálfs sem er eign ríkisins eða al- mennings í landinu og befiir nú legið undir áföllign án viðbragða á annað ár og tapað stórfé, beint og óbeint. -HERB Nú að loknu jólafríi munu; 'JL-byggingavörum byrja ar vinsælu laugardagsk Nú skal lotan s ida óslitii IKKUN a vor. OPIÐ KL. 8>t :ynniN' FSLAT' 2 gódar byggingarvöruverslani ^Austast og vestast i borginni Stórhöfda, símj 671100 . Hringbrauf, simi 28600 DAGAj^ KLV10-16 LAUGAR- DAGA^ EUORUNE ELDHOS n □□ 2 □i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.