Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. 7 Verð á loðnumjöli mun fara að hækka - vegna fyrirsjáanlegs hruns í ansjósuveiðum S-Ameríkumanna Talið er víst að þegar líður á árið munu loðnumjöl hækka mjög í verði á heimsmarkaði vegna þess að fyrir- sjáanlegt hrun er í ansjósuveiðum Perúmanna og Chilemanna. Hinn dul- arfulli straumur, sem kallaður er „E1 Nino“ eða drengurinn, er kominn af stað og hann veldur því að hrun verð- ur í ansjósuveiðunum. Þessi straumur kemur á nokkurra ára íresti, ekkf reglulega en á svona 2ja til 7 ára fresti og hefur hann alltaf sömu aíleiðingar fyrir ansjósuveiðamar. Það ræðst svo af þeim hvert heimsmarkaðsverðið er á fiskimjöli. Jónas Jónsson, forstjóri Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar á Kletti, sagði í samtali við DV að verð á mjöli væri enn mjög lágt. Nú fengist 5,70 doliarar fyrir próteineininguna, sem þætti ekki hátt i dollurum, hvað þá nú eftir hið mikla fall hans. Hann sagðist telja að ef ansjósuveiðarnar bregðast í Perú og Chile hafi það áhrif strax um mitt árið og komi okkur til góða þegar ný loðnuvertíð hefst í ágúst. Aftur á móti fæst lítið sem ekk- ert lýsi úr ansjósum, þannig að það hefur engin áhrif á lýsisverð þótt veið- amar bregðist. Varðandi lýsisverð nú sagði Jónas að það væri 212 dollarar fyrir tonnið en var lægst í haust 145 dollarar. Til samanburðar má geta þess að 1985 var verðið 340 dollarar fyrir tonnið. -S.dór „El Nino“ straumurinn og afleiðingar hans Það þykir jafnan fréttnæmt þegar hinn dularíúlli straumur, „E1 Nino“ eða Drengurinn, fer af stað. Þetta ge- rist með nokkurra ára millibili, óreglulega en svona á 2ja til 7 ára fresti. Aíleiðingar hans efu miklar. Hann hefúr mjög mikil áhrif á veður- far í heiminum og svo veldur hann hruni í fiskveiðum, einkum ansjósu- veiðunum við strendur Perú og Chile. En hvaða fyrirbæri er þetta? Þessa spumingu lögðum við fyrir Svend Aage Malmberg haffræðing. Svend sagði að flestir könnuðust við hinn kalda og mikla Humbolt straum sem kemur úr suðri og fer upp með ströndum Perú og Chile. Hann er kaldur og rótar upp æti af hafsbotni en það veldur aftur góðum lífsskilyrð- um í sjónum fyrir ansjósuna og fleiri fiska. Humbolt straumurinn á bæði bræður og systur við strendur Kalifor- níu, Norðvestur-Afríku og Suðvestur- "El Nino" hafstraumurinn. Afríku og víðar. Svo gerist það einstöku sinnum að „E1 Nino“ straumurinn verður til um miðbaug og á Kyrrahafi en þar koma saman stærstu fletir lofts og lagar í heiminum. Úr þessu verður óskaplegt orkuflæði. Sjórinn hitnar og straum- urinn fer suður með strönd S-Ameríku á móti Humbolt straumnum. „E1 Nino“ flæðir ofan á og stöðvar upp- streymi Humbolt straumsins og skaðar um leið lifsskilvrði sjávardýra í sjón- um. „E1 Nino“ fer alltaf af stað um iólaleytið og því kalla S-Ameríkumenn hann eftir Jesúbaminu eða „E1 Nino“. Þær miklu hitabreytingar sem verða í Kvrrahafinu vegna „E1 Nino“ valda því aftur að uppstrevmi sjávar í and- rúmsloftið breytist og veldur þetta veðurfarsbreytingum um allan heim. Ekkert munstur eða regla er á því hvemig veður brevtist þegar „E1 Nino“ fer af stað. Hitt er þó staðrevnd að gangur lægða og hæða um heiminn tekur breytingum en engin leið er að segja til um livemig þær verða. -S.dór -segirGeir Gunnlaugsson um kostnaðvið kísilmálmverksmiðju „Ef borið er saman við umfang verksins og þá áhættu sem menn em að taka þá held ég að þetta sé ekki svo rosalegt," sagði Geir Gunnlaugs- son, framkvæmdastjóri Kísilmálm- vinnslunnar hf„ um kostnað þann sem orðið hefur við undirbúning kísil- málmverksmiðju á Reyðarfirði. „Vissulega em þetta stórar tölur á íslenskan mælikvarða. En þetta em kannski 4% af heildarstofúkostnaði verksmiðjunnar og það finnst fyrir- tækjum erlendis ekki mikið áður en þau taka endanlega ákvörðun. Við höfum mörg dæmi um að menn hafi rokið í verk án nægilegs undir- búnings með þeim afleiðingum að það hefur kostað þjóðfélagið miklu hærri upphæðir en hér er um að ræða,“ sagði Geir. DV skýrði frá því í síðustu viku að framreiknaður kostnaður íslenska rík- isins væri orðinn um 130 milljónir króna. Fjölþjóðafyrirtækið Rio Tinto Zink, sem staðið hefur í viðræðum við íslendinga í hálft annað ár, hefúr einn- ig lagt í umtalsverðan kostnað. „Við höfum engar opinberar tölur um kostnað Rio Tinto Zink. Gera má ráð fyrir að þeir hafi varið einhverjum tugum milljóna. af þe|m kostnaði sem íslendingar hafa Ef samið verður við fyrirtækið má lagt { þetta,“ sagði Geir.' reikna með að það taki á sig eitthvað -KMU Ríkissjóður hefur varið 130 milljónum króna til að undirbúa byggingu kisilmálm- verksmiðju á þessum stað í Reyðarfirði. Ekki mikið borið saman við umfang og áhættu TIL SÖUJ Toyota Camry 1800 DX árg. ’85, Toyota Tercel 4x4 special series, ekinn 50.000 km, grænn, sans. árg. ’87, ekinn 3.000 km. Verð Verð 450.000,- 570.000,- Toyota Hiace dísil árg. ’84, ekinn 114.000 km, blár. Verð 580.000,- Toyota HiLux dísil turbo árg. ’85, ekinn 35.000 km, plasthús, klæddur að innan, ranco tjaðrir, læst drif o.fl., steingrár. Verð 870.000,- Skipti ath. VW Passat CL árg. ’86, ekinn 8.000 km, blár, sans. Verð 560.000,- Toyota Corolla DX árg. ’86, ekinn 3.000 km, blár, sans. Verð 380.000,- Toyota Tercel 4x4 árg. ’84, ekinn 58.000 km, m/mælum, tvilitur, brúnn m/sóllúgu. Verð 420.000,- Suzuki Alto árg. ’83, ekinn 32.000 km, brúnn. Verð 210.000,- Toyota Crown Super Saloon árg. ’82, ekinn 98.000 km, rauður, álfelg- ur. Verð 550.000,- Toyota Corolla GL árg. ’82, sjálf- skiptur, ekinn 40.000 km, grásans. Verð 270.000,- Toyota Carina liftback, árg. ’86, ek- inn 8.000 km, blár, sans. Verð 540.000,- Toyota HiLux bensin, árg. ’85, ekinn 24.000 km, rauður. Verð 590.000,- Daihatsu sendibíll 4x4 árg. '86, ek- inn 16.000 km, blár. Verð 390.000,- Willys CJ 7 árg. ’78, ekinn 45.000 milur, 6 cyl., rauðbrúnn. Verð 400.000,- Verð Toyota Carina STW árg. '83, ekinn 50.000 km, blár 360.000,- Toyota Carina 1800 GL árg. '83, ekinn 60.000 km, rauður 350.000,- Toyota Cressida DX árg. '80, ekinn 80.000 km, blár 220.000,- Toyota Camry 1800 GL árg. '83, ekinn 86.000 km, grár 395.000,- Toyota Corolla STW árg. ’82, ekinn 77.000 km, rauður 240.000,- Peugeot 305 árg. '82, ekinn 49.000 km, grænn 260.000,- Opið virka daga 9-19. Laugardaga 13-18. Höfum ýmsar tegundir bifreiða á söluskrá i v i iS SALAN P. SAMÚELSSON & CO. HF. SKEIFUNNI 15 108 REYKJAVÍK SÍMI (91) 687120 /WKLAHAIaT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.