Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. 15 Eru reiknivélamar bil- aðar... eða hvað? c,aviT,oo ^’ToToc NAFN/HEIMIU 2.947 V"'*T.03? 0<«ffl»u" 2.000 Oflol 300 Hutningía "^36.166 OPToTooo 1 ' TTl 56 300 347 MOtuntjli 3.17C 15.100 ffMf M* 30.073 ÚTBORGUN SKV. OFANGREINDRI SUNOURLIDUN HEFUR VERIO GRSIDD ÞANNIG uppsOfnun frA AramOtum 94.671 I 11.257 Ath. Sundurliðun þessi gildir sem kvittun fyrir tilgreindum frádrætti. IVI REVKJAVÍKURBORG 2 S S LAUNAOEILO LANDSB.I5L.AUSTURB.HL HF. HAMPIÐJAN LAUNABÓKHALD Launaseðill Aigretösiun* ÍAIn*n»ngaftl !Tj>ðfng*fdagu< I Nalnnumef 16.1987 949997 12.01.1933 niafaummnguf SfafttaWuf [Tilayf‘**i *K»u' BCRGARSTARFSMENN 06.1965 VAf-NSTJCRI :.v> «VWWVtAA?n 104 P. FYKJAVIK UTBORGUN .TU.Kgunanj*gu< W*if> 01.01.1987 | \<>.917 Launategund | j G^e>ösluliftiat>n | Emingafv#rð | EmmgalioKJi Algremnu kr Frá áramotum. ki STRÆTISVAGNAR SAML.KDSTN M&NAOARLAUM 056-8 010187-310187 31.525 1,0000 31.525 31.525 LAUN OG AORAR GREIOSLUR SAMTALS 31.525 31.525 A-LIF.SJ.STARF SM.REYKJAVIKUftBCRGAR STaRFSMANN-AF^L.RcYKJAVIKUR VAGNSTJ-s- - — — 1.261 347 1.261 —- 3 47 FRADRATTUR SAMTALS 1.608 1.60? Launaseðlar venjulegs vinnandi fólks. Launakjör á íslandi um þessar mundir munu örugglega verða rann- sóknarefhi sagnfræðinga framtíðar- innar. Á sama tíma og Hagstofa íslands gefur út tölur um framfærslukostnað og segir að vísitöluflölskyldan, sem telur 3,66 einstaklinga, þurfi kr. 87.900,00 til að lifa af á mánuði er samið um 26.500,00 krónur í lág- markslaun. Þetta er venjulegu fólki óskiljan- legt. Verkalýðshreyfingin og stjóm- málamenn ganga út frá því sem vísu að tveir einstaklingar vinni fyrir heimilinu, einnig að allir geti stund- að ótakmarkaða aukavinnu. í áraraðir hafa verkamenn um all- an heim barist fyrir að 8 stunda vinnudagur nægði til að framfleyta -áðurnefiidri visitöluQölskyldu. Ó- talin verkfóll hafa verið knúin fram kjörum verkamanna til stuðnings, ekki síður hér á landi en annars staðar. Við höfum því færst langt aftur í þessum efhum og er það til skammar fyrir alla aðila í þessu máli. En fleira kemur til. Það er virðing- arleysi við þær stéttir, sem vinna erfiðisvinnu, að greiða svo lítil laun. Það er aðför að mannréttindum að fólk skuli ekki geta séð heimili sínu farborða með eðlilegum vinnutíma. Vinnuþrælkun er siður liðinna alda og á ekki að eiga sér stað í nútíma- þjóðfélagi. Samningslaun Sagt er að mörg einkafyrirtæki greiði starfsfólki laun sem eru tvö- falt á við það sem hinn samnings- bundni launamaður má láta sér lynda. En stærsti hópurinn fær greitt samkvæmt samningum. KjaUaiinn Anna Kristjánsdóttir i framboði fyrir Bandalag jafnaðarmanna Ég hef hér fyrir framan mig þrjá launaseðla. Eigendur þeirra eru: Starfsmaður í Hampiðjunni, starfsmaður á sjúkrahúsi og starfsmaður hjá Strætisvögnum Reykjavíkur (vagn- stjóri). Tökum fyrst starfsmann Hampiðjunnar. Launaseðillinn er frá desember 1986 en mér er sagt að hækkun, sem samið var um í desembersamningun- um, sé þar meðtalin og er dagvinnan kr. 26.888,00. Launaseðill vagnstjórans er dag- settur 01.01.1987. Á seðlinum kemur fram að starfsaldur er 22 ár og fasta- kaup kr. 31.525,00. Lengra er víst ekki hægt að komast í þeirri starfs- stétt. (Dygði skammt fyrir bílakaup- um.) En stór hluti starfsmanna hjá SVR er með um kr. 27.000.00 í mán- aðarlaun. Þá er komið að starfsmanni sjúkrahússins og er sá launaseðill dagsettur 01.01. 1987. Fastakaup kr. 28.957,00. Það er áberandi hjá ríkisstjórnar- flokkunum að þeir reyna að telja fólki trú um að allir séu yfirborgað- ir, sárafáir fái greitt eftir samning- um. Eins og sjá má af framangreind- um tölum er þetta alrangt. Ekki matvinnungar Sú staðreynd verður ekki umflúin að verkafólk á íslandi er ekki mat- vinnungar og það þótti lélegt í gamla daga. Og til samanburðar má líta á hvað matur kostar. Verð á eftirtöldum vörum er fengið hjá starfefólki Hagkaups og kann ég þvf bestu þakkir fyrir lipurð og hjálpsemi. 1 kg lambalæri kr. 356,90 1 kgsúpukjöt, valið kr. 315.90 1 kg nautahakk kr. 350,00 1 kg nautagúllas kr. 687.00 I kg hvalur kr. 268.00 II mjólk kr. 39.00 1 stk. smjörl. kr. 45.50 1 kgmjólkurostur 312.00 1 pakki kaffi 92.90 Meðalhúsaleiga fyrir 3ja her- bergja íbúð er 23.000 til 25.000 á mánuði. Ég læt lesendum eftir að reikna út hvað fæst mikið af mat fyrir tíma- kaupið. Mér er hulin ráðgáta hvemig reiknimeistarar verkalýðsfomst- unnar geta útfært það dæmi sem endar á 26.500,00 kr. í mánaðarlaun. Samt virðist ekki skorta peninga á íslandi. Nægir þar að minna á marg- umtalaða risnu embættismanna. óunna yfirvinnu, nefndarstörf sem unnin em á venjulegum vinnutíma og bílakaup borgarstjóra sem hann hefur nýlega kynnt íslensku þjóð- inni. Vesældarhljóðið í verkalýðsforv-s- tunni og ríkisstjómarflokkunum er slíkt að manni kemur í hug hvort við ættum ekki bara að sækja um fátækrastyrk til annarra þjóða... Svo Það vill svo til að öryrkjar þurfa líka að borða og þeir geta ekki sofið undir berum himni. Mánaðar- greiðslur þeirra, sem em það sem kallast yfir 75%, em: Örorka kr. 7.227,00 - tekjutrygging kr. 10.589,00 - heimilisuppbót kr. 4.265,00. Sam- tals kr. 22.081,00. Og kæm ráðherrar, embættismenn með nefhdarstörf og alþingismenn: Örvrkjar eiga enga möguleika á yfir- vmnu né aukatekjum af nokkm tagi. Anna Kristjánsdóttir —:------------ ----------: „Mér er hulin ráðgáta hvernig reikni- meistarar verkalýðsforystunnar geta útfært það dæmi sem endar á 26.500 krón- um í mánaðarlaun. Samt virðist ekki skorta peninga á íslandi. Nægir þar að minna á margumtalaða risnu embættis- manna, óunna yfirvinnu, nefndarstörf sem unnin eru á venjulegum vinnutíma og bíla- kaup borgarstjóra, sem hann hefur nýlega kynnt íslensku þjóðinni.“ Sérkennsla á landsbyggðinni Menntamálaráðherra hefúr vik- ið fræðslustjóranum á Norðurlandi eystra úr starfi. Það hefur vart farið fram hjá neinuin. Ekki verður héma Qallað um það mál sérstaklega að þessu sinni enda hefur ráðherra gef- ið starfemönnum sínum ótvírætt í skyn að betra sé að hafa hægt um sig. Á þetta ekki hvað síst við um fræðslustjóra. Á hinn bóginn hafa sérkennslumál blandast mjög inn í þessa umræðu og verður nokkuð um þau fjallað í þessu greinarkorni. Sérkennsla - stuðningskennsla Til skamms tíma var hugtakið sér- kennsla lítt notað utan Reykjavíkur og næsta nágrennis. Böm sem þurftu á slíku að halda vom annaðhvort hjálparlítil í sínum heimaskóla, fluttust til Reykjavíkur eða voru höfð í heimahúsum án kennslu. í stað stuðningskennslu tíðkuðust svokallaðir hjálpartímar og þótti svo sem engin upphefð að þiggja slíkt. Þessi hjálparkennsla var yfirleitt unnin á óskipulegan hátt, kennarar sem áttu lausa tíma á kennsludegin- um tóku hana að sér eða þá skóla- stjórinn, sem oft hafði knappan tíma, og þetta var þá talið mega missa sig fremur en reglubundin kennsla. Þetta hefur sem betur fer breyst. Mismunur á sérkennslu og stuðn- ingskennslu er óljós fyrir mörgum og skal því leitast við að skýra hann í stuttu máli. Sérkennslu eiga þau börn að fá sem eru talin víkja frá eðlilegum þroskaferli svo þau nýta sér ekki venjulega kennslu. Er þetta oft var- anlegt ástand eða atgervi og metið eða greint af sérfræðingum, barna- læknum eða sálfræðingum. Eftir þeirri greiningu er síðan metinn rétt- ur til kennslustunda, samkvæmt skýrum ákvæðum í reglugerð. KjaUaiinn Pétur Bjarnason Kennsla fer fram í sérdeildimi grunnskóla eða sérskólum. Stuðn- ingskennsla er hins vegar ætluð til að koma „venjulegum" nemendimi til aðstoðar vegna timabuiidinna erf- iðleika i námi, í einni námsgrein eða fleiri. Stuðningskennsla getur farið fram í kennslustund með samvinnu tveggja kennara eða i lesveri eftir atvikum. Reglugerð um sérkennslu Árið 1977 var gefin út reglugerð um sérkennslu sem síðan hefur verið höfð til hliðsjónar, þrátt fyrir að hún hafi aldrei komið til framkvæmda að fullu utan sérstofnana. vegna þess að ekki hefur verið heimilað nægilegt kennslumagn út í umdæm- in. Þrátt fyrir það hefur hægt og bit- andi hnikast í rétta átt og þessi þiónusta farið batnandi úti á lands- byggðinni. i Revkjavík var hún þegar fyrir hendi við setningu reglu- gerðaiánnar. Jafnframt því sem sérkennsla hef- ur smám saman komist á úti imi land hefur sífellt fækkað þeim nemendum sem flytja utan af landi til Reykja- víkur af þeim ástæðimi sérstaklega. Kröfiir til sérkennslu á landsbyggð- inni hafa þri stóraukist. Af þessu leiðir að Reykjavík og nágrenni hennai- njóta tiltölulega meiri þjónustu af hálfu sérskóla og sérdeilda á vegum ríkisins, sem þar starfa, en önnur landsvæði. Verður að hafa þetta sérstaklega í huga þegar borið er saman kennslumagn úr einstökum umdæmum. eins og óspart hefrir verið gert, einkimi síð- ustu daga. Vegna nálægðar t.d. Revkjanesumdæmis við séi’stofnanir á vegum ríkisins er því alrangt að liera saman sérkennslu á Norður- landi og Reykjanesi eins og neðan- greind tafla ber skýrt með sér. Hvar eru sérstofnanirnar? Visað er til svars menntamálaráð- heira við fyrii'spm-n Steingiims J. Sigfússonar um stuðnings- og sér- kennslu sem sjá má á þingskjali 319 í 10. hefti þingtíðinda 1986. Arið 1980 skiptust nemendm- í sér- skólum og sérdeildum á vegum ríkisins. sem starfandi vom í Reykia- vík og Kópavogi. þannig eftir búsetu: Skólinn rfð Hvanmishlíð á Akur- eyri er einnig talinn með sem sér- stofhun og hafði hann 34 nemendur árið 1980 og 31 nemanda 1985. Einn- ig eru taldar 2.5 kennarastöður við Vonarland á Egilsstöðiun utan kvóta umdæmis. nemendafiöldi ekki tilgreindur. Aðrar stofnanir á landsbvggðinni. svo sem Egilsá í Skagafirði. Bræðra- tunga á ísafirði. svo og ýmsar sérdeildir aðrar. em taldar með í stundafjölda vmidæmanna. Þetta er nauðsvnlegt að hafa í huga þegar lesinn er samanburður milli um- dæma. Það brautryðjendastarf sem unnið var á Revkjavíkursvæðinu og sú sér- fi-æðiþjónusta sem við njótum af hálfu margra sérhæfðra stofnana er vissulega mikils virði og ekki má skilja orð mín svo að slíkt sé van- þakkað. Hvað um peningamálin? Hitt verða menn að gera sér ljóst að við það verður ekki unað að þess- ar stofnanir byggist upp á lands- gmndvelli og sæki fjármagn í opinbera sjóði til þess á sama tíma og börnin sem ættu að njóta þessa em komin heim til sín og fá þjón- ustuna þar. Má til dæmis minn á að uppbygg- ing þessara stofnana í Reykjavík heldur áfram i nafni landsbyggðar- innar þrátt fyrir það að börnum þaðan fækki stöðugt. Öskjuhlíðar- skóli fckk til dæmis 15 milljónir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra á síðasta ári til bvggingaframkvæmda eða nær finmitung þess fiár sem til ráð- stöfunar var úr sjóðnum. Þá má geta þess að samkvæmt fiárlögum þessa árs em 136.5 milljónir króna ætlaðar til reksturs fimm þessara stofhana á Revkjavíkursvæði í ár og er þá smærri stofhunum sleppt. Dreifbýl- inu er aftur á móti ætlað að sækja kennsluheimildir og fiármagn með kennslukvóta sínum á hverju ári og liggur hreint ekki á lausu. Hér þarf að snúa við blaði og fylgja eftir þeirri þróun sem hafin er, að sérkennsla verði heimiluð úti á landi til jafns við höfúðborgarsvæði og uppbyggingu hagað í samræmi við það. Pétur Bjarnason fræðslustjóri i Vestijarðaumdæmi „ Jafnframt því sem sérkennsla hefur smám saman komist á úti um land hefur sífellt fækkað þeim nemendum sem flytja utan af landi til Reykjavíkur af þeim ástæðum sérstaklega. Kröfur til sérkennslu á lands- byggðinni hafa því stóraukist.“ Reykjavik.......................176 nem. þar af i Öskjuhliðarskóla 68 nem. Reykjanes.......................107 nem. 43- Vesturland-Suðurl................22 nem. 8- Hin4umdæmin..................... 34 nem. 16- Samtals:........................339 nem. 135- Árið 1985 var skiptingin sem hér segir: Reykjavik.......................167 nem. þar af i Öskjuhliðarskóla 63 nem. Reykjanes...................... 95 nem. 43 - Vesturland-Suðurl............... 23 nem. 10- Hin4umdæmin..................... 18 nem. 3- Samtals.........................303 nem. 119-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.