Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. Sljómmál Skoðanakönnun DV: Sjálfstæðisflokkurinn vinnur á í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig í Reykjavík samkvæmt skoðana- könnun DV um síðustu helgi, bæði miðað við síðustu þingkosningar og niðurstöður könnunar DV í desemb- erbyijun. Þetta er gagnstætt þeim kenningum að flokkurinn sé að tapa í borginni vegna niðurstöðu próf- kiörs þar. Alþýðuflokkurinn tapar frá des- emberkönnuninni. Hann fær nú 20 prósent þeirra sem taka afstöðu. Alþýðuflokkurinn hafði 26,9 prósent í desember en aðeins 10,8 prósent í borginni í síðustu þingkosningum. Framsókn fær nú 5,2 prósent en hafði 5,8 prósent í desember og 9,4 prósent í kosningunum. Bandalag jafnaðarmanna hefur nú aðeins 0,9 prósent í borginni. Það hafði ekkert í desemberkönnuninni en 9,5 prósent í kosningunum 1983. Sjálfstæðis- flokkurinn fær nú 47,8 prósent. Hann hafði 44,4 prósent í desember- könnun og 43 prósent i síðustu þingkosningum í borginni. Alþýðu- bandalagið fær nú 12,2 prósent, hafði 14,3 prósent í deseniber og 19 prósent Niðurstöður skoðanakönnunar DV um fylgi listanna í Reykjavík urðu þessar: Til samanburðar eru niðurstöður DV-könnunar í desember og úrslit síðustu þingkosninga í borginni: Nú Des. ’86 Kosn. Alþýðuflokkur 20% 26,9% 10,8% Framsóknarflokkur 5,2% 5,8% 9,4% Bandalag jafnaðarmanna 0.9% 0 9,5% Sjálfstæðisflokkur 47,8% 44,4% 43% Alþýðubandalag 12,2% 14,3% 19% Flokkur mannsins 1,7% 1,3% - Samtök um kvennalista 12,2% 6,7% 8,4% Aðrir - 0,4% - í síðustu kosningum. Flokkur mannsins hefur nú 1,7 prósent en hafði 1,3 prósent í desember. Samtök um kvennalista bæta við sig. Þau fá nú 12,2 prósent en höfðu 6,7 prósent í desember og 8,4 prósent í kosning- unum. Verði þingmenn Reykjavíkur átj- án í næstu kosningum mundu þeir skiptast þannig samkvæmt könnun- iimi: Alþýðuflokkur fengi fjóra, Framsóknarflokkur eirrn, Sjálfetæð- isflokkur níu, Alþýðubandalag tvo og Kvennalisti tvo. -HH Rannsókn á lækningamætti Bláa lónsins: Vísbendingar um jákvæðan „Forrannsókn heftir ekki fært sönnur á árangur böðunar en gefið vísbendingu um jákvæðan árangur," sagði Ragnhildur Helgadóttir, heil- brigðis- ogtryggingamálaráðherra, á Alþingi í svari við fyrirspum frá Gunnari G. Schram um niðurstöður rannsóknar á lækningamætti jarð- sjávarins við Svartsengi, í Bláa lóninu svokallaða. Landlæknisembættið hefur frá því sumarið 1985, að frumkvæði Al- þingis, staðið fyrir rannsókn á því hvort soriasissjúklingar fái bót meina sinna í Bláa lóninu. Settar voru fram þijár tilgátur um áhrif böðunar þar. Tilgáta um að þátttakendum þætti sér líða betur eftir böðun en fyrir þótti sönnuð. Bláa lónið við Svartsengi. Rannsókn hefur gefið jákvæðar vísbendingar um að soriasissjúklingar verði betri. árangur Hlutlægt mat á soriasiseinkennum leiddi í ljós afhreistrun, það er hom- húðin á útbrotum þynntist. Sam- ræmi var milli þess og að þátttak- endum þótti kláði minnka og útbrotin betri. Roði og útbreiðsla minnkaði ekki. Minnkun steranotk- unar var ekki marktæk. „Landlæknisembættið lítur á þessa rannsókn sem forrannsókn og því nauðsynlegt að framkvæma ítarlegri rannsókn," sagði Ragnhildur. Hefur landlæknisembættið því hafið samanburðarrannsókn í sam- vinnu við húðlækningadeild Landspítalans. Er gert ráð fyrir að þeirri rannsókn Ijúki á þessu ári. -KMU Enga sterka drykki í veislum ríkisins Ríkisstjómin skal sjá til þess að ekki séu veittir sterkir drykkir í veislum á vegmn hins opinbera. Fjórir alþingismenn lögöu fram þessa tillögu á Alþingi í gær, Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista, Har- aldur Ólafsson, Framsóknarflokki, Helgi Seljan, Alþýðubandalagi, og Karvel Pálmason, Alþýðuflokki. „Neysla áfengis, þótt lögleg teljist, er einn mesti skaðvaldur sem við er að etja í þjóðfélaginu. Erfitt er að mæla það tjón í krónum og enn erfið- ara í þjáningum. En víst er að það tjón er mikið og síst við hæfi að opinberir aðilar eigi þar hlut að máli,“ segja flutningsmenn. Telja þeir að framkvæmd tillög- unnar falli vel að því markmiði í stefiiuskrá Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar um heilbrigði fyrir alla árið 2000, sem ríkisstjóm Islands hefúr samþykkt, að heildaráfengis- neysla verði minnkuð um að minnsta kosti fjórðung fyrir þann tíma. -KMU Stjómarfrumvörp til að auka réttaröryggi Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra hefiir mælt fyrir tveimur stjómarfrumvörpum sem ætlað er að auka réttaröryggi í þjóðfélaginu. Em það frumvarp til stjómsýslulaga og frumvarp um umboðsmann Alþingis. Bæði frumvörpin em samin af hæstaréttarlögmönnunum Eiríki Tómassyni og Jóni Steinari Gunn- laugssyni að ósk forsætisráðherra í samræmi við þá stefriuyfirlýsingu rík- isstjómarinnar að einfialda opinbera stjómsýslu. Tillögur um umboðsmann Alþingis hafa að minnsta kosti sjö sinnum áður verið fluttar á Alþingi. Hlutverk hans, samkvæmt fríimvarpinu nú, er að hafa, í umboði Alþingis, eftirlit með stjómsýslu ríkisins og sveitarfélaga. Leitast hann við að tryggja að jafri- ræði sé í heiðri haft í stjómsýslunni. Umboðsmaður getur tekið mál til meðferðar eftir kvörtun eða að sjálfs síns frumkvæði. Kvörtun getur hver sá borið fram við umboðsmann sem telur stjómvald hafa beitt sig rangind- um. Alþingi kýs umboðsmanninn að loknum hverjum þingkosningum. Skal hann uppfylla skilyrði laga til að mega gegna embætti hæstaréttardómara og njóta sömu launakjara og þeir. Hann má ekki vera alþingismaður. 1 frumvarpinu til stjómsýslulaga segir meðal annars að öllum þeim sem sinna stjómsýslustörfum sé skylt að leiðbeina mönnum með hverjum hætti þeir geti gætt réttar síns. Stjómvald skuli vekja athygli máls- aðila á því að mál hans sé til með- ferðar. Stjómvaldshafi megi ekki taka þátt í meðferð máls hafi hann hagsmuna að gæta varðandi málsúrslit eða sé skyldur einhveijum sem hafi hags- muna að gæta. Aðili máls geti krafist þess að mál hans verði ekki afgreitt fyrr en honum hefúr gefist kostur á að kynna sér málsgögn og tjá sig um málsefni. Hann geti ennfremur krafið stjómvöld um rökstuðning fyrir ákvörðun sinni. -KMU Þjóðhags- stofnun verði lögð niður Átta þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, með Eyjólf Konráð Jónsson sem fyrsta flutningsmann, lögðu í gær fram á Alþingi tillögu um að ríkisstjóminni verði falið að láta þegar hefja undirbúning þess að Þjóðhagsstofiiun verði lögð niður. „Þjóðhagsstofiiun hefur nú staríað á annan áratug og haft með höndum verkefiú sem eðlilegast er að Hagstofan annist, auk þess sem stofrmnin hefúr annast svokallaða efiiahagsráðgjöf fyrir ríkisstjóm- ina sem ekki verður séð að orðið hafi til heilla," segja sjálfetæðis- mennfrnir í greinargerð. Þeir segja ennfremur: „í kerfinu eru nú margar stofii- anir að bjástra við sömu eða náskyld verkefiii og er sá frum- skógur æði flókinn. Úr öllu þessu ofekipulagi - og þar með skipu- lagsleysi - þarf að greiða, einfalda athafiiasemina og minnka." -KMU ta <i verið að víkja mér úr þing- flokknum - segir Stcfán Valgeirsson „Frétt um það að í dag eigi að ákveða hvort mér verði vikið úr þingflokki er alveg út í hött,“ sagði Stefan Valgeirsson alþingismaður í gær er hann gerði athugasemd við frétt í blaðinu í gær. „í fyrsta lagi vegna þess að það er enginn fúndur í þingflokknum í dag. Ég veit ekki til þess að það hafi nokkuð komið til mála nema það er haft eftir forsætisráðherra í einhveiju blaðinu að það sé óviss staða mín í flokknum og þing- flokksstjómin verði að ákveða það. Líka er það alrangt að ég hafi áfrýjað þessu til framkvæmda- stjómarinnar. Sannleikurinn í málinu er sá að kjördæmissam- bands8tjómin samkvæmt lögunum geröi þetta sjálf.“ -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.