Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
Viðskipti
Bílainnflutningur 1986:
IVöfiald-
aðist
frá
fyrra ári
Bflainnflutningur íslendinga
árið 1986 sló öll íyrri met en á
þessu ári voru fluttir inn alls 15.851
bfll sem er rúmlega tvöfaldur fjöldi
innfluttra bfla árið á undan en þá
nam þessi fjöldi 7.167 bílum.
Innflutningur nýrra fólksbíla
nam 13.352 bflum á móti 5.655 bfl-
um árið 1985 og fjöldi notaðra
innfluttra bíla þrefaldaðist á milli
þessara ára, fór úr 567 bflum í 1.666
bfla.
Af einstökum gerðum bifreiða
var mest flutt inn af Subaru 1800,
861 bíll, en næst á eftir kom AE-
Lada 2108,810 bflar. Af einstökum
tegimdum bifreiða var langmest
flutt inn af Lödu í ýmsum gerðum,
alls um 2500 bflar.
Ef frá eru taldir fólksbílar varð
nokkur samdráttur í innflutningi
annarra tegunda, þannig minnk-
aði innflutningur nýrra vörubfla
úr 340 árið 1985 í 232 árið 1986 og
innflutningur nýrra sendibíla
minnkaði úr 436 og í 240 í íyrra.
-FRI
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbund. 8.5—10 U)
Sparireikningar
3ja món. uppsógn S-12 Úb.Vb
6 mán. uppsögn 10-17.5 Vb
12mán. uppsögn 12-18.25 Sp.vél.
18mán. uppsögn 16.5-18 Sp
Avísanareikningar J-9 Ab
Hlaupareikningar 3-7 Sp
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Bb.Lb,
6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb.Vb Úb
Innlán með sérkjörum 9-19.25
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalur 5-6 Ab
Sterlingspund 9,5-10.5 Ab
Vestur-þýsk mörk 3,5-4 Ab.lb
Danskar krónur 8.S-9.5 Ab.Lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv) 16—18 Sb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge/21
Almenn skuldabréf(2) 16,5-18,5 Ab.Sb
Viðskiptaskuldabréf(l) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16.5-20 Ab
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Aö2.5árum 5.75-6.75 Ui
Til lengri tima 6.25-6.75 Ab.Bb.Lb
Útlán tíl framleiðslu
ísl. krónur 15—16.5 Sp
SDR 8-8.25 Allir
Bandarikjadaiir 7,75-8.25 nema Ib. Vb LKÍJb
Sterlingspund 12.5-13 Lb.Úb.Vb
Vestur-þýsk mörk 6-6,25 Lb.Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-6,5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala jan. 1565 stig
Byggingavisitala 293 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 7,5% l.jan.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 113 kr.
Eimskip 300 kr.
Flugleiðir 310 kr.
Hampiðjan 140 kr.
Iðnaðarbankinn 135 kr.
Verslunarbankinn 125 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa
þó viðskiptavíxla gegn 21% ársvöxtum.
(2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs
vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð
og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka
og Verslunarbanka.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á funmtudög-
um.
Haröbakur, togari ÚA, náði yfir 5.200 lestum af fiski á síðasta ári. Meðalverð á kíló var tæpar 20 krónur.
Mokafli fyrir austan
- veiði í Faxaflóa dottin niður í skrap
Sölur erlendis
Bremerhaven:
Bv. Ásbjöm landaði 19. jan. 158 lestum
fyrir kr. 8,5 millj., meðalv. kr. 57,77.
Bv. Skafti landaði 20. jan. 159 lestum
íyrir kr. 9,4 millj. Bv. Hegranes lan-
daði 23. jan. 181 lest fyrir kr. 11,2 millj.
Cuxhaven:
Bv. Drangey landaði 20. jan. 153 lest-
um fyrir kr. 8,7 millj. Meðalverð kr.
62 kílóið. Aflinn aðallega ufsi og karfi.
England
Bv. Már landaði í Grimsby 20. jan. 203
lestum fyrir kr. 11,8 millj. Mb. Sæborg
landaði í Grimsby 48 lestum fyrir kr.
2,254 millj., meðalv. kr. 46,56. Bv. Vest-
mannaey landaði í HuO 20. jan. 170
lestum fyrir kr. 9,5 millj., meðalverð
kr. 55,89 kílóið. Aðeins eitt skip á eftir
að landa erlendis það sem eftir er af
þessari viku og selur á morgun. Lflotr
eru á góðu verði. Frá 20. jan. hefur
verið seld í Englandi 421 lest fyrir kr.
23.649.745,52, meðalv. kr. 56,06. Á sama
tíma var seld í Þýskalandi 651 lest
fyrir kr. 37.868.470,78, meðalverð kr.
58,11.
París
Þrátt fyrir kulda, sem heijað hefur í
Frakklandi, hefur verð á fiskmeti ve-
rið nokkuð gott og er það að mestu
því að þakka að ekki berst mjög mik-
ið af fiski. Verð á þorski hefur verið:
Smáþorskur kr. 100 til 150 kflóið.
Meðalstór þorskur kr. 134 til 160 kíló-
ið. Ufsi kr. 95 til 140 kílóið. Meðalstórir
skötuselshalar hafa selst mjög vel að
undanfömu. Meðalstór hali kr. 432 til
535 kílóið. Verð á laxi að stærð 1 til
2 kfló er kr. 160 til 230 kílóið.
London
Miklir erfiðleikar vom eftir áramótin
og em enn að hluta með fisksölu. Þó
hefur verðið verið viðunandi: Þorsk-
flök kr. 210 kílóið. Hausaður þorskur
kr. 130 til 140 kflóið. Smá rauðspretta
kr. 70 kílóið. Stór skötubörð kr. 140 kg.
Fiskmarkaðirnir
Ingólfur Stefánsson
Aflabrögö
Mokafli hefúr verið við Austurland
að undanfomu. Trillur hafa fengið
stórþorsk á grunnmiðum og hefur sá
fiskur verið 6 til 7 kg fiskur. Fiskur
togaranna hefrir verið blandaður og
hafa lokanir á miðum verið nokkuð
tíðar.
Sú góða veiði, sem var í Faxaflóa
fyrir nokkm, hefur dottið niður og
Sláturfélagsmenn gerðu sér glaðan dag í tilefni afmælisins og gæddu sér
á rjómatertum. DV-mynd RS
hafa smærri bátar frá Reykjavík verið
með sáralítinn afla. Mikil loðna er
tafin vera á miðunum og hefur loðnu-
veiðiheimild verið aukin um 100
þúsund lestir. Nokkur verðmunur er
á verði loðnu innanlands og í Færeyj-
um. Verðið hér er 1800 til 2100 en
Færeyjarverð er kr. 2100 tonnið.
ÚA
Útgerðarfélag Akureyringa gerði út 5
togara árið 1986. Afli þeirra var alls
19.816 lestir, verðmætið var 377 millj.
króna. Afli þeirra skipa, sem gerð vom
út allt árið, var svipaður. Mestan afla
hafði bv. Harðbakur sem landaði alls
5.230 lestum af blönduðum fiski yfir
árið. Meðalverð á kíló var milli 19 og
20 krónur. Hæsta meðalverð á afla
hafði bv. Hrímbakur, kr. 20,92. Útgerð-
arfélagið flutti út 6.225 lestir alls af
freðfiski, 17 lestir af skreið, 826 lestir
af saltfiski og 41 lest af hertum þorsk-
hausum. Nokkur aukning varð á
útflutningi á árinu en birgðir mun
minni en um áramótin 1985 og 6. Öll-
um aflanum var landað í heimahöfh
skipanna.
Grandi
Útgerðarfélagið Grandi hf. gerir út 6
togara og hafa þeir aflað vel á síðast-
liðnu ári. Mestu af aflanum hefur verið
landað í Reykjavík, aðeins eitt ski-
panna hefur landað erlendis enda
leynir það sér ekki þegar meðalverðið
er skoðað. Alls lönduðu skipin 24.456
lestum að verðmæti kr. 577,886 millj.,
meðalverð kr. 23,63. Afli einstakra tog-
ara: Bv. Ásbjöm, afli afls 3.653 lestir,
verðm. kr 75,257 millj., meðafverð kr.
20,61. Bv. Ásgeir, afli alls 3.224, afla-
verðm. kr. 63,316, meðalv. kr. 19,05.
Bv. Ásþór, afli alls 2.867, verðm. kr.
59,323 millj. Bv Hjörleifúr, afli alls
2.855 lestir, aflaverðmæti 59,551 millj.,
meðalverð kr. 20,86. Bv. Jón Baldvins-
son, afli alls 3.936, verðm. kr. 82,251
millj. Bv. Ottó N. Þorláksson, afli alls
4.981, verðm. 100,948 millj., meðalv. kr.
20,27. Bv. Snorri Sturluson, afli alls
2.840 lestir, verðm. kr. 137,232 millj.,
meðalv. kr. 48,32.
Síldarvinnslan
Síldarvinnslan í Neskaupstað gerði
út á síðastliðnu ári 3 togara. Afli og
aflaverðmæti var á síðasta ári sem hér
segir: Bv. Birtingur, afli alls 3.052 lest-
ir, verðmæti kr. 81,167 millj. Bv. Barði
landaði alls 3.175 lestum, verðm. kr.
88,209 millj. Bv. Bjartur, afli alls 3.003
lestir, aflaverðmæti kr. 91,957 millj.
Meðalverð hjá þessum skipum er um
kr. 30 kg. Skipin hafa landað nokkru
af aflanum í gáma og selt erlendis.
Sláturfélag Suðuiiands 80 ára:
Félagsmenn
eru 4700
Sláturfélag Suðurlands er 80 ára um
þessar mundir en stofnfundur félagsins
var haldinn við Þjórsárbrú 28. janúar
1907. Frá þeim tíma hefúr félagið stöð-
ugt vaxið og hefúr nú 4700 félagsmenn
á 1600 lögbýlum á félagssvæðinu sem
skipt er í 42 félagsdeildir.
SS er nú stærsti sláturleyfishafi
landsins og í dag rekur það 6 sauð-
fjársláturhús. Á seinni árum hefur
verið slátrað að jafiiaði um 140.000 flár
en þegar flestum gripum var slátrað
fyrir 1980 var fjöldi sláturfjár tæplega
200.000.
Auk sauðfjársláturhúsanna rekur
SS nú flögur stórgripasláturhús, þau
stærstu á Hvolsvelli og Selfossi en
húsið á Hvolsvelli, sem tekið var í
notkun 1985, er hið eina á landinu sem
hefúr löggildingu fyrir sölu nautakjöts
til Vamarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
Auk margvíslegrar starfsemi í borg-
inni, tengdrar landbúnaði, rekur SS
þar fimm verslanir og eina verslun á
Akranesi. Nú stendur yfir uppbygging
á lóð sem félagið hefur í Laugamesi
en þangað á að flytja þá stafsemi sem
er nú á Skúlagötu 20, þ.e. ýmsa úr-
vinnslu afurða, kjötheildsölu, aðal-
skrifstofú o.fl.
Núverandi forstjóri SS er Jón H.
Bergs og hefúr hann gegnt því starfi
í 30 ár en hann tók við af föður sínum,
Helga Bergs, 1. janúar 1957. -FRI