Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Page 8
8
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
Utlönd
Walesa ræðir
við Whitehead
Leiðtogi Samstöðu, Lech Walesa,
og andstæðingar stjómarinnar í Póll-
andi munu í dag hitta bandaríska
embættismenn. Munu þeir kanna
möguleikana á að bæta samskipti
Bandaríkjanna og Póllands en þau
hafa ekki verið sem best undanfarin
fimm ár.
Walesa hefur tjáð fréttamönnum að
hann myndi tjá John Whitehead, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, að það væri nauðsynlegt fyrir
efnahag Póllands að Bandaríkin
hættu efhahagslegum refsiaðgerðum
gegn landinu.
Whitehead átti í gær fund með utan-
ríkisráðherra Póllands, Marian
Orzechowski, og Jozef Glemp kardíná-
la. Eftir fundinn sagði Whitehead að
rædd hefðu verið bætt samskipti milli
landanna. Whitehead sagði einnig að
hann hefði leitt umræðumar að mann-
réttindamálum.
í dag mun Whitehead einnig hitta
forsætisráðherrann Zbigniew Messni-
er og á morgun er gert ráð fyrir að
hann fari til fundar við leiðtoga
flokksins, Wojciech Jaruzelski.
Whitehead sagði að ekki yrði ákveð-
ið fyrr en hann kæmi til Bandaríkj-
anna hvort efhahagsrefsingum gegn
Póllandi yrði aflétt.
Blaðamanni vísað firá Kína
Bandarískum blaðamanni hefur
verið vísað frá Kína og er hann sakað-
ur um að hafa tekið á móti leynigögn-
um frá kínverskum stúdent.
Hafði blaðamaðurinn verið boðaður
á skrifstofu öryggisþjónustunnar í
Peking og var síðan ekið með hann á
brott til flugvallarins. Síðan kom ff egn
um að honum hafi verið vísað úr landi.
Á sunnudaginn greindu yfirvöld frá
handtöku kínversks stúdents sem var
gefið að sök að hafa afhent blaða-
manninum leynilegar upplýsingar.
Ráðstefha múham-
meðsríkja bar sára-
Irtinn árangur
Lokið er fimmtu ráðstefhu múham-
meðsríkja, sem haldin var í Kuwait
undanfama fjóra daga og sótt var af
31 þjóðarleiðtoga Araba og annarra
múslíma. Þótti hún fara fram í sátt
og samlyndi, en hins vegar náðist lít-
ill árangur til þess að jafiia deilur þær
sem efst gnæfa í hinum múhammeðska
hluta heimsins þar sem býr um einn
milljarður manna.
Efet á dagskrá var Persaflóastríðið
milli írans og Iraks, það geisar aðeins
áttatíu km fi'á ráðstefoustaðnum. Ráð-
stefnan samþykkti álytkun um að
skora á stríðsaðila að semja frið. f
morgun bárust fréttir af áframhald-
andi hörðum bardögum á suðurvíg-
stöðvunum og virðist því áskorunin
hafa haft lítil áhrif á deiluaðila.
Hvorki íran né frak sendi fulltrúa á
ráðstefhuna.
Meðal þeirra, sem sóttu ráðstefnuna í Kuwait, var Yasser Arafat, leiðtogi
Palestinuaraba, sem notaði tækifærið eins og aðrir þjóðarleiðtogar á ráð-
stefnunni jafnframt til einkaviðræðna við suma af hinum ráðstefnugestunum.
Á myndunum hér sést hann ræða við Hussein Jórdaníukonung (efri mynd)
og Hosni Mubarak, forseta Egyptalands. (Arafat til vinstri á myndunum.)
Simamynd Reuter
Eiginkona Roberts Polhill, eins bandaríska háskólakennarans sem rænt var í Beirút fyrir nokkrum dögum, gengur
hér studd af vinum um háskólalóðina í Beirút. Nú hefur borist hótun um að háskólakennararnir verði teknir af lífi
ef Bandaríkin geri sig líkleg til hernaðaraðgerða gegn Líbanon.
- Símamynd Reuter
Hota að drepa
gíslana ef Banda-
ríkin gera árás
Múslima-hópur í Beirút hefur hótað
því að drepa fjóra útlenda háskóla-
kennara (þrír þeirra bandarískir) ef
Bandaríkin gera sig líkleg til árásar á
Líbanon eða einhverra annarra hem-
aðaraðgerða.
Þessi tilkynning barst til fjölmiðla í
Beirút í gær um svipað leyti og fréttir
fóru af því að Miðjarðarhafsfloti
Bandaríkjanna hefði fært sig að aust-
urhluta Miðjarðarhafsins.
Samtímis hefur Bandaríkjafloti sent
fimm tundurspilla og freigátur nær
Persaflóanum og hefur íranstjóm tek-
ið það óstinnt uppi. Hún hefrir varað
Washingtonstjómina við beinum af-
skiptum af Persaflóastríðinu og hótað
Bandaríkjunum því að ella mundu
Bandaríkjamenn finna illilega fyrir
reiði Iran.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gærkvöldi náin
tengsl milli múslima-mannræningj-
anna í Líbanon og svo írans. Varaði
hann önnur vestræn ríki við undan-
látssemi við mannræningja í Líbanon.
Morðhótun múslimanna í gær fylgdi
nýlega tekin litmynd af Robert Polhill
(53 ára), einum bandarísku háskóla-
kennaranna þriggja, og sást á mynd-
inni hvar hríðskotarífflum var beint
að höfði honum.
Nú em níu dagar liðnir síðan breski
meðalgöngumaður biskupakirkjunn-
ar, Terry Waite, hvarf í Beirút en
ekkert hefiir til hans spurst ennþá,
eftir því sem sendiherra Bretlands í
Líbanon, John Gray, sagði frétta-
mönnum í morgun.
Svissneskri konu var rænt í Beirút
á miðvikudag en þegar ræningjamir
spurðu hana að því hvort hún væri
ekki frönsk og sáu á persónuskilríkj-
unum hið sanna um þjóðemi hennar
báðust þeir afsökunar og slepptu
henni lausri strax aftur.
Saksóknarinn vill
rannsaka gamalt spor
Gurmlaugur A. Jánssan, DV, Lundi;
Claes Zeime, saksóknari í Palme-
morðmálinu, vill að rannsókninni
verði nú beint að gömlu spori sem
hann hafi áður bent á. Hann segist
í viðtali við Sænska dagblaðið í
morgun vera bjartsýnn á að þetta
spor kunni að leiða til lausnar máls-
ins.
Það hefur áður komið fram að
Zeime hefur aldrei haft mikla trú á
PKK-sporinu sem Holmér og hans
menn hafa nánast einskorðað sig
við. Því er þó almennt spáð að bæði
Zeime og Holmér lögreglustjóri verði
látnir víkja innan skamms vegna
þess að ljóst sé orðið að þeir geti
ekki starfað saman.
Leif Hallberg, talsmaður lögreglu-
hópsins sem vinnur að Palmemálinu,
viðurkenndi í gær að mikill hluti af
orku lögreglunnar að undanfömu
hefði farið í að reyna að skapa
vinnufrið og sætta ólík sjónarmið
svo að unnt sé að hefja rannsókn
málsins að nýju eftir áfalhð á dögun-
um er handtaka PKK mannanna
leiddi ekki til annars en að Zeime
lét þá lausa áður en Holmér og menn
hans höföu haft tækifæri til þess að
yfirheyra þá almennilega.