Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Side 12
12
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
ALLSHERJAR-
ATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs
starfsárið 1987 til 1988. Tillögum ber að skila á skrif-
stofu félagsins, Ingólfsstræti 5, 5. hæð, föstudaginn
6. febrúar 1987 kl. 13.00.
Stjórnin.
ÞORRAMATUR
Félagasamtök og starfshópar!
Afgreiðum þorramatinn til ykkar á hagstæðu
verði.
18
tegundir.
Verð kr. 490,-
B
VEITINGAMAÐURINN HF
BÍLDSHÚFÐA 16 - 110 REYKJAVÍK - SÍMI 686880
VI KAN
er ekki sérrit
heldur fjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
og býður hagstæðasta auglýsingaverð
allra íslenskra tímarita
VIKAN
nær til allra stétta og allra aldursstiga. Aug-
lýsing í Vikunni nær því til fjöldans en ekki
aðeins takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
VIKAN
hefur komið út í hverri viku í næstum 50 ár
og jafnan tekið breytingum í takt við tímann,
bæði hvað snertir efni og útlit. í>ess vegna er
Vikan svona fjölbreytt og þess vegna er les-
endahópurinn svona stór og fjölbreyttur.
VIKAN
selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli.
Þess vegna geta auglýsendur treyst því að
auglýsing í Vikunni skilar sér.
VIKAN
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni
óviðkomandi. Þess vegna er Vikan svo vinsæl
og víðlesin sem raun ber vitni.
VIKAN
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsam-
legu verði og hver auglýsing nær til allra
lesenda Vikunnar.
VIKAN
hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
Upplýsingar um auglýsingaverð Vikunnar
eiga við hana eina og þær fást hjá auglýsinga-
deild Vikunnar í síma 27022.
Neytendur
Notfæram okkur
glænýtt góðgætið
úr hafínu
t
Hrognamáltíð handa fjórum á 164 kr.
því daglega glænýjan fisk í matinn.
Notfærum okkur það.
Hrognamáltíð
Soðin hrogn eru eitthvað það besta
sem hægt er að hugsa sér á þessum
árstíma. Hægt er að matreiða þau á
ýmsa vegu en íyrst skulum við hafa
þau soðin.
Hæfilegt er að áætla um 180-200 gr
af hrognum á mann. Lítið gerir til
þótt einhver afgangur verði því hann
er hægt að nýta í ýmislegt.
Talað er um hrognabrók en hrognin
eru í brókarlaga himnu. Brækumar
geta verið mismunandi stórar. Ekki
er heppilegt að kaupa alltof smáar
brækur. Heppilegast er að hafa
hrognabrókina þannig að „skálmin“
sé 5,5-6 cm í þvermál.
Skolið hrognin varlega svo himnan
fari ekki í sundur. Vefjið álpappír utan
um hrognabrókina. Látið hrognin út
í sjóðandi vatn sem salti hefur verið
bætt í. Vatnið verður að fljóta yfir
hrognapakkann.
Látið sjóða við vægan hita í 20-40
mín., suðutíminn fer eftir stærð brók-
arinnar. Látið ekki bullsjóða á
hrognunum, þá geta þau orðið þurr
og farið í sundur.
Þau eru svo gjaman borin fram með
soðnum fiski og lifur og soðnum karti
öflum. Gott er að hafo brætt smjör út
á hrognin en það er líka gott að bera
með þeim ljósa sósu, eins og t.d.
hollenska sósu.
Hrognin em borin fi-am skorin í
sneiðar. Afganginn má nýta á ýmsa
vegu, t.d. steikja sneiðamar. Þá er
betra að velta sneiðunum upp úr
hveiti eða hrærðu eggi og raspi.
Gratín úr hrognaafgangi er líka sér-
lega gott og svo má búa til „rúskumsn-
úsk“ á pönnu úr hrognaafgangi og
ýmsu góðgæti sem er handhægt. Loks
er eftir að nefha að sneiðar af köldum
niðursneiddum hrognum em ljúffeng-
ar ofan á rúgbrauð, þá gjaman skreytt
með einhverju súm, eins og bita af
súrri gúrku.
-A.BJ.
Hrognin eru innilukt i himnu sem er i laginu eins og „braekur" og þvi er
oft talað um hrognabrækur. Þær eru af mismunandi stærð, langbestar af
millistærð, svona 5,5-6 cm i þvermál þar sem „brókarskálmin" er breiðust.
DV-myndir Brynjar Gauti
Björgvin Konráðsson i Hafrúnu selur viðskiptavini glæný hrogn.
Það var gimilegt um að litast í fisk-
búðinni á miðvikudaginn, allir bakkar
fullir af spriklandi nýmeti og nóg til
af hrognum. „Ég var til kl. 2 í nótt
að bíða eftír þessu í Sandgerði," sagði
Björgvin í Hafrúnu er neytendasíðan
leit inn til að kanna fiskmál.
Hann sagði að nú fengju sjómenn
greitt á þriðja hundrað kr. fyrír kg af
hrognum beint í fiysti þannig að bú-
ast mætti við að hrogn yrðu sjaldséð
vara í fiskbúðunum í framtíðinni.
Við skulum notfæra okkur hrognin
á meðan þau em fáanleg. Hrognakíló-
ið kostar 205 kr. og lifrin er á sama
verði. Mörgum þykir sem matfiskur-
inn hafi hækkað í verði undanfarið,
enda er það líka rétt. En hann er
bæði betri og hollari en ýmislegt ann-
að sem kannski er ódýrara í innkaupi.
Við könnuðum fiskverðið á miðviku-
daginn:
Heil ýsa, 116 kr.
ýsuflök, 205 kr.
þorskffök, 205 kr.
stórlúða í sneiðum, 290 kr.
smálúðuflök, 280 kr.
fiskhakk, 230 kr.
útvatnaður saltfiskur, tilbúinn í pott-
inn, 230 kr.
gellur, 220 kr.
kinnar, 140 kr.
Við síðustu verðlagningu á fiskinum
sem gekk í gildi 20. janúar sl. vom
fiskheitin tekin út af dagskrá. Áður
var þorskurinn dýrari en ýsan í inn-
kaupi en útsöluverðið mátti ekki vera
hærra.
íslendingar em sennilega meðal
fárra þjóða sem geta fengið næstum