Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Page 13
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987. 13 Neytendur Hvað kostar að flytja inn bíl sjálfur? Verðlagsstofaun birti á dögunum könnun á bílverði hérlendis. Margt forvitnilegt kom íram í könnun þess- ari s.s. að dæmi eru þess að umboð, sem áður hafi flutt inn japanska bíla beint frá Japan, séu nú farin að flytja þá inn frá Noregi og Finnlandi, auk þess sem bílverð hefiir farið mjög hækkandi undanfarið. Einnig kom það fram að geysihörð samkeppni virðist vera ríkjandi milli umboða þrátt fyrir að erfiðlega gangi að anna eftirspum svo mjög sem hún hefur aukist. í ljósi þess að erfiðlega gengur að anna eftirspum, umboðin hafa vart undan að flytja inn, læðist að sá gmn- ur að ef til vill sé ekki alltaf reynt að ná sem hagstæðustu innkaupsverði þar sem afgreiðslufrestur er oft lang- ur, 6 mánuðir frá Japan, svo dæmi séu tekin. Viðmælendur blaðsins hjá umboð- unum töldu af og frá að um slíkt gæti verið að ræða. Svo hörð væri sam- keppnin að öllu væri til kostað að fá sem lægst verð og fráleitt væri að umboð færi að kaupa bíla frá öðrum en framleiðslulöndum, nema um sér- staklega lágt verðtilboð væri að ræða. Könnun Verðlagsstofaunar leiddi og í ljós að fluttir höfðu verið inn Ford Sierra bílar sem höfðu átt að fara til danskrar bílaleigu. Fengust þeir á mun lægra verði en annars. En em íslendingar þá að kaupa ein- hverja útsölubíla sem engin önnur þjóð vill líta við? Við reyndum að grennslast fyrir um þetta atriði. Leita uppi hagstætt verö Hjá Ford verksmiðjunum í Þýska- landi var blaðinu tjáð að þeirra framleiðsla væri seld á lægra verði til Danmerkur en á þýskan markað, en í Danmörku væm bílar í svo háum sölu- skattsflokki að verksmiðjan yrði að slá nokkuð af verði til umboðsmanna sinna þar í landi til að halda niðri verði. Sé bíll keyptur í Danmörku til út- flutnings, þarf ekki að greiða af honum söluskatt. Það er því hagstæðara fyrir innflytjanda Ford að fá sína bíla frá Danmörku en að kaupa þá beint frá framleiðanda og það er einmitt gert við innflutning á Fordbílum hingað til lands. Þetta virðist vera sú aðferð sem beitt er almennt hjá umboðunum. En hvað skyldi bíllinn þá kosta, flytji kaupandi hann inn sjálfur? Við ákváðum að reikna það út til að for- vitnast um hvort einhver munur væri á því að kaupa ekki í gegnum umboð. Samsetning bílverðs Ef reikna á út verð á bifreiðum verð- ur að taka inn marga kostnaðarliði til að unnt sé að fá marktæka niðurstöðu. Fyrst verður að fá útflutningsverð hjá söluaðila í þvi landi sem ætlunin er að kaupa bílinn frá. Á það bætist tollnúmeraverð, ef kaupandi ætlar að aka bílnum sjálfur á hafaarbakkann, eða flutningskostnaður í skip. Tryggja þarf flutninginn hingað til lands og mun kostnaður vegna þessa nema um 2,5% af verðmæti bifreiðar- innar. Þá þarf að greiða farmgjöld til skipafélagsins sem annast flutninginn. Neita að gefa upp verð Til að unnt sé að reikna út toll verð- ur að fá svokallað fob-verð en það er það verð sem umboðin gefa tollinum upp sem kaupverð og greiða toll af. Eitt umboðanna, Honda umboðið, harðneitaði að gefa blaðinu upp fob- verð á sínum innflutningi. Önnur umboð sáu ekki ástæðu til að standa í slíkum feluleik og urðu góðfúslega við beiðni um slíkt. Við fob-verð eru lögð flutningsgjöld og vátrygging en samanlagt myndar þessi kostnaður tollverð, cif-verð. Af þessu verði er reiknaður tollur (misjafa eftir vélarstærð og þyngd), oft um 10%, 5% vörugjald, og 1% tollaf- greiðslugjald. Við útkomuna úr framangreindu bætist svo 27,5%o söluskattur og er verðið þá komið. Er hagkvæmt að flytja inn sjálf- ur? Til gamans reiknuðum við út verð nokkurra bíltegunda, miðað við að við flyttum þær sjálf inn frá Danmörku. í öllum tilfellunum reyndist það annað- hvort jafhhátt, eða jafavel hærra, að flytja inn á eigin vegum. Niðurstaðan er því sú að umboðin virðast standa sig nokkuð vel í þessum innflutningi og ekki bera óhóflega mikið úr býtum. -PLP Margir halda að ódýrara sé að flytja bíla inn sjálfir, er það rétt? vinninguf' i Lóttóinu ÞÁTTTÖKUKVITTUtl ER ÁVÍSUIilÁ VINNING, EF ÞÚ HEFUR VALIÐ RÉTTAR TÖLUI(.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.