Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Side 18
18
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
Iþróttir
Pálmar skor-
aði 30 stig
Haukar-Valur 66-75
Pálmar Sigurðsson skoraði 30
stig fyrir Hauka í gærkvöldi er
Haukar mættu Val í úrvalsdeild-
inni í körfúknattleik í íþróttahúsi
Hafnarfjarðar í gærkvöldi. Ekki
dugði það Haukum til sigurs því
Valsmenn sigruðu með 66 stigum
gegn 75. Staðan í leikhléi var
26-38, Val í hag.
Haukar skoruðu þrjú fyrstu stig
leiksins en til að byrja með var
leikurinn jafn. Um tíma var staðan
16-15 Haukum í vil en Valsmenn
skoruðu þá 11 stig í röð og breyttu
stöðunni í 16-26. í síðari hálfleik
munaði mest 15 stigum á liðunum.
- Stig Hauka: Pálmar 30, þar af sjö
þriggja stiga körfur, ívar 12, Henn-
ing 8, Ingimar 8, Eyþór 4 og Ólafur
4.
Stig Vals: Tómas Holton 15, Torfi
Magnússon 15, Einar Ólafsson 13,
Páll Amar 9, Sturla 8, Leifur 7,
Bjöm 6 og Svali 4. -RR
Stórleikur
í Njarðvík
Stórleikur verður í úrvalsdeild-
inni í körfúknattleik í kvöld þegar
Njarðvíkingar fá nágrannana úr
Keflavík í heimsókn. Leikur lið-
anna hefct kl. 20.00.
Langt er síðan Keflvíkingar hafa
sigrað Njarðvíkinga á útivelli og
má þvi ætla að Keflvíkingar leggi
allt í sölumar til að breyta því.
Njarðvíkingar em nú efetir í deild-
inni en Keflvíkingar em ekki langt
undan, má því búast við hörkuvið-
ureign. -JKS
Svíaráferð
í Asíu
Gunnlaugur A. Jánsaan, DV, Lundi:
Sænska landsliðið í handknatt-
leik ætlar sér stóra hluti á ólymp-
íuleikunum í Seoul á næsta ári.
Mikið verður um leiki hjá liðinu
fram að keppninni og hefur sænska
landsliðið nú þegar tekið þátt í
tveim mótum það sem af er árinu.
í næstu viku verða tveir landsleik-
ir gegn Danmörku og síðar í
mánuðinum verða síðan tveir leik-
ir gegn Spánverjum. Þá verður farið
í mikla keppnis- og æfingaferð til Asíu
þegar keppni í Allsvenakan lýkur í
vor. Verður þá meðal annars leikið
við Kinverja. Það er greinilegt af þess-
ari upptalningu að Svíar leggja allt
kapp á að undirbúa lið sitt sem beat
fyrir ólympíuleikanna. -SMJ
Meistarar á ferð
Heimsmeiataranir frá Argentínu
leika gegn ítalska liðinu Roma 19.
mars najstkomandi og verður það
fyrati leikur þeirra aíðan þeir urðu
heimsmeistarar. Um leið er þetta
þeirra fyrsti leikur í Evrópu síðan
Diego Armando Maradona lyfti stytt-
unni fógru á Aztekaleikvanginum í
Mexíkó 31. júní á síðasta ári. Ætlunin
er að Argentínumenn leiki annan leik
á Italíu en ef það gengur ekki í gegn
þá munu þeir að öllum líkindum mæta
Köln í V-Þýskalandi.
-SMJ
Þorbergur lék
fárveikur en
gerði 7 mörk
- Saab ennþá í fallhættu
Gurmlaugur A. Jónssan, DV, Lundi
I fyrrakvöld fór fram heil umferð í
Allsvenskan. Þorbergur Aðalsteinsson
lék sárlasinn með Saab gegn Krops-
kultur og tapaði Saab leiknum, 25-27.
Þrátt fyrir að Þorbergur léki þennan
leik illa haldinn af innflúensu og gegn
læknisráði þá varð hann markahæstur
leikmanna Saab með 7 mörk. Ekki
sýndu allir leikmenn Saab sömu hörku
og Þorbergur og vantaði fjóra úr aðal-
liðinu í leiknum vegna veikinda.
Saab hefur gengið illa að undan-
fömu og má það að nokkru rekja til
innflúensufaraldurs sem hefúr geisað
í herbúðum Saab. Þá missti Þorbergur
af mörgum leikjum vegna meiðsla.
Saab er nú að komast í fallsæti en
liðið er í 5. neðsta sæti með 11 stig.
Næst spilar Saab við Hellas og verður
sá leikur að vinnast. Þorbergur kvaðst
vera bjartsýnn á að Saab héldi sér
uppi ef allir leikmenn liðsins væru
heilir heilsu.
-SMJ
Liðin bítast á
um Alan Smith
- fer líklega til Chelsea á 1 millj. punda
Chelsea hefur átt mjög erfitt upp-
dráttar í vetur enda er nú loft lævi
blandið í herbúðum félagsins og liðs-
andi með versta móti. Margir leik-
menn hafa farið fram á sölu og eru
þeir David Speedie og Kerry Dixon
þar á meðal. Speedie er nú úti á þekju
í hveijum leik liðsins. Er það af sem
áður var er hann skapaði meðherjum
sínum færi með þeim hætti sem nafn
hans segir til um.
Keriy Dixon er auk þess hættur að
hrella markverði en gerir í þess stað
John Hollins, framkvæmdastjóra sín-
um, hverja skráveifuna á fætur
annarri. Hann brást til að mynda hinn
versti við er honum var skipt út af um
síðustu helgi.
En nú er John Hollins orðinn lang-
þreyttur á argaþrasi leikmanna og
einbeitingarleysi. Hann hyggst hleypa
nýju blóði í leik liðsins og kaupa einn
athyglisverðasta sóknarmann á Bret-
landseyjum. Alan Smith heitir þessi
skæði leikmaðu1- og hefur hann um
hríð spilað með Leicester. Kaupverðið
er óákveðið en í kviksögum hafa 60
milljónir verið nefridar (1 millj. punda).
Grunur leikur hins vegar á að Hollins
hyggist fá kaupverðið niðursett með
leikmannaskiptum. Miðjumaðurinn
Mike Hazard, sem hefúr ekki náð að
festa sig í sessi í herbúðum Chelsea,
hefur jafrian verið nefndur á nafri í
því sambandi.
Ef af sölu þessari verður skellur
hurðin á nef forkólfanna í Liverpool
og Arsenal. Liðin hafa bæði haft njósn
af pilti og leitað á stúfana.
„Smith hefur átt þátt í mörgum
marka minna og valdið usla með tækni
sinni og hraða,“ segir enski landsliðs-
maðurinn Gary Lineker. Hann lék eitt
sinn við hlið Alan Smith í Leicester.
Það er fúllvíst að Smith getur gert
garðinn frægan með öðrum liðum en
Chelsea. Hann hefúr nú þegar sett 12
mörk í vetur og því er ólíklegt að stór-
liðin hafi sagt sitt síðasta orð í
glímunni um þennan efnilega leik-
mann. -JÖG.
•Alan Smith fer líklega til Chelsea.
rHllaga Wc
I
I
Fulltrúar 92 ensku ari
saman til fúndar í Londc
West Ham United um ba
félganna næstu þrjú árii
Tillagan var samþykkt
landi í dag eru gervigrasi
Oldham og Preston og h
•Gunnar Einarsson, fyrrum lands-
liósmaður í handknattleik, er óspar á
gagnrýni á norska handknattleiks-
menn í viðtali sem birtist við hann í
norsku dagblaði nýverið. Hann segir
til að mynda að norsku landsliðs-
mennimir hugsi meira um að vera á
finum hótelum á keppnisferðum með
landsliðinu en að ná góðum úrslitum
í landsleikjum.
ff
Læriðafs
- segir Gunnar Einarsson við
Norðmenn velta nú mikið fyrir sér
hvemig þeir eigi að fara að því að koma
sér upp sterku karlalandsliði í hand-
knattleik en sem kunnugt er þá stóð
kvennalandslið Norðmanna sig frábær-
lega fyrr í vetur og náði þriðja sæti í
heimsmeistarakeppninni. I vikunni birtist
viðtal í norsku blaði við Gunnar Einars-
son sem hefur nú verið um þriggja ára
skeið í Noregi þar sem hann hefur þjálfað
og leikið. Gunnar, sem nýtur mikillar
virðingar í Noregi, ræðir um það í við-
talinu hvað honum þykir vera ábótavant
í norskum handknattleik.
„Hugsa aðeins um fín hótel“
„Megnið af þeim leikmönnum sem leika
í landsliðinu í dag gerir sér ekki grein
fyrir því sem þarf að leggja á sig til að
ná árangri á alþjóðavettvangi. Þeir eru
ekki nógu harðir af sér og þá skortir aga.
Þeir þola ekki það álag sem fylgir stór-
mótum - en það er hlutur sem má að
nokkru skrifa á reikning félagsliðanna
og þess anda sem ríkir á æfingum í Nor-
egi. Allt of margir leikmanna hugsa frekar
um að hafa það þægilegt á fínum hótelum
í ferðalögum en að einbeita sér að því að
ná góðum úrslitum," sagði Gunnar. Hann
er 31 árs en á árunum 1975-80 lék hann
„Svisslendingar eru |
með mjög sterkt lið“
[
léttri leið“
- segir Bogdan. Flugleiðamótið hefst á mánudag
| - segir John McEnroe
I Kjaftaskurinn heimskunni, Joh
| McEnroe, er nú aftur farinn að hrella dón
Á mánudag, 2.febrúar, hefet Flug-
leiðamótið í handknattleik í Laugar-
dalshöll. Að þessu sinni taka fjögur lið
þátt í mótinu. Þetta eru A-landslið
Islands og lið leikmanna yngri en 21
árs, landslið Sviss og landslið Alsír.
Opnunarleikur mótsins verður milli
A-landsliðs Islands og unglingaliðsins.
Hefet viðureign liðanna kl. 20.00. Að
þeim leik loknum munu Alsírbúar
mæta Svisslendingum.
Á þriðjudeginum verður síðan leikið
á tveimur stöðum á landinu. Á Akur-
eyri mætir A-landslið íslands Alsfrbú-
um en unglingamir leika gegn
Svisslendingum á Akranesi.
Fyrmefridi leikurinn hefet kl. 19.00
en sá síðamefndi kl. 20.00.
Úrslit mótsins ráðast síðan á mið-
vikudagskvöld í Laugardalshöll. Þá
leikur unglingaliðið við Alsír en A-
landsliðið mætir Svisslendingum.
Fyrri leikurinn hefet klukkan 19.00
en sá síðari strax á eftir eða um 20.45.
Þótt íslendingar tefli nú fram sínu
sterkasta liði eiga þeir þó ekki sigur-
inn vísan á mótinu. Bæði Alsír og
Sviss æfa nú af kappi fyrir B-keppnina
á Italíu í næsta mánuði. Flugleiðamót-
ið er liður í undirbúningi beggja þjóða
fyrir þá hörðu keppni.
„Svisslendingar eru mjög sterkir," sagði
Bogdan Kowalczyk, landliðsþjálfari ls-
lands, á blaðamannafundi í gær. „Alsírbú-
ar leika einnig vel í tæknilegum skilningi.
Þeir mæta sóknarmönnum okkar mjög
framarlega á vellinum og trufla þannig
leik liðsins. Leikimir verða þvi afar erfiðir
enda er það ætlunin. Þeir eru liður í undir-
búningi okkar fyrir ólympíuleikana í
Seoul.“
Við hvetjum alla til að fjölmenna á þessa
landsleiki sem nú eru framundan. Ahorf-
endur styðja ekki aðeins við bakið á
leikmönnum með nærveru sinni, hand-
knattleikssambandið hlýtur einnig sinn
skerf. Sá fjárstuðningur er afar mikilvæg-
ur því án peninga getur landsliðið aldrei
staðið undir þeim væntingum sem til þess
eru gerðar.
-JÖG.
ara og skemmta áhorfendum. Fyrsti tennii
I leikur hans eftir langt hlé fór fram
landskeppni í Bandaríkjunum á þriðjudai
| Viðureign þessi var æfing Bandaríkjí
■ manna og Svía fyrir mikið innanhússmí
I semframáaðfaraíFíladelfíuínæstuviku.
, McEnroe lagði sænska tennissniltingin
Mats Wilander að velli, 6-4 og 6-4.
I Þótti McEnroe óvenju spakur í leiknui
* enda var sigur hans aldrei í hættu. „Ég t
| á réttri leið,“ sagði hann eftir leikinn, „c
Iég finn að ég næ toppnum að nýju.“
McEnroe sigraði einnig í tvíliðaleik
Irxvirlo c-írvttrn TJrxfm* TTlamVirtirjrV
asar
landa sínum Peter Flemming, 6-3 og 6-4. Afb
Ivar það Wilander sem beið ósigur, í þetta skip
ið ásamt félaga sínum Mikael Penfore.
IWilander náði sór ekki á strik í landskeppi
inni enda nýgiftur og rétt byrjaður að æfa eft
■ sælu hveitibrauðsdaganna.