Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Qupperneq 30
42
FOSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
S""4
SMÁSKÍFA VIKUNNAR
Hurrah - If love could kill
(KITCHENWARE)
Þessir drengir eru feiki-
efnilegir, það fer ekki á
milli mála. Það er einkar
bjart yfir þessu lagi, hljóm-
urinn bjartur og skær og
raddimar sömuleiðis. Og
auðheyrilega hafa þessir
piltar einhvern tíma heyrt
í Bítlunum og öðrum þeim
sem uppi voru á blóma-
skeiði þeirra. Þetta er
gáfumannapopp í léttari
kantinum.
AÐRAR GÓÐAR
Elvis Costello - Blue Chair
(IMP)
Hér er bítlafílingurinn líka
á ferðinni. Costello fer á
kostum í léttu og hressu
lagi með gamaldags hljóm
og gullfallegri melódíu. Ef
þetta er ekki boðlegt hvar
sem er þá er ekkert boðlegt.
Bruce Springsteen - Fire
(CBS)
Onnur smáskífan úr fimm-
plötukassanum og ef eitt-
hvað þá á þetta lag eftir
að ná lengra en War. Þetta
er lag eftir Brúsa en hann
gaf Pointer systrum það á
sínum tíma og hefur ekki
gefið það fyrr út sjálfur.
Þetta er rólegheita lag
þrungið tilfinningu og þeg-
ar um slíkt er að ræða
komast fáir með tærnar þar
sem Springsteen hefur hæl-
ana.
Hue And Cry - I refuse
(CIRKA)
Dúett þeirra Kanebræðra
með frísklegt pojp með sin-
fónískum keim, eiginlega
blanda úr ýmsum áttum, en
smekklega hrært saman og
vænlegt til vinsælda. Svei
mér þá.
Anita Baker - Caught up in
the rapture (ELEKTRA)
Soulsöngkona síðasta árs
með lag af soulplötu síð-
asta árs, getur ekki verið
annað en gott. Og það er
það svo sannarlega. Mýkt
og tilfinning í fyrirrúmi og
gullfalleg melódían bætir
enn um betur.
EITT ÞREYTT
Status Quo - Dreaming
(PHONOGRAM)
Þeir eru enn við sama hey-
garðshornið, Rossi og
félagar, þeir eru enn að
gefa út sama lagið, nú heit-
ir það Dreaming og er
hvorki betra né verra en
síðast.
-SÞS-
Kinks - Think Visual
Minnir
Kinks er með lífseigari rokkhljóm-
sveitum; hefur starfað óslitið frá árinu
1962 en ferillinn hefur verið ósköp
brokkgengur. Framanaf var Kinks
heimsnafh, sem átti hvem smellinn á
fætur öðrum í efstu sætum vinsælda-
listanna. Síðan hallaði undan fæti og
hefur hljómsveitin reyndar aldrei náð
að rétta úr kútnum hvað vinsældimar
snertir. Hins vegar hefur hún gert
marga góða hluti í gegnum árin þótt
ekki hafi alltaf hátt farið.
Aðaldrifijaðrir Kinks í gegnum tíð-
ina hafa verið þeir Davis bræður, Ray
og Dave, og hefúr Ray verið öllu meira
áberandi af þeim tveimur enda aðal-
söngvari og lagasmiður hljómsveitar-
innar.
Og þeir bræður standa enn fyrir sínu
einsog heyra má á þessari plötu sem
nýlega kom út; þeir halda sig enn á
svipuðum slóðum í tónlistinni og í
upphafi ferilsins, hreint og beint rokk
með lítilsháttar blúsívafi.
Og hér tekst þeim sérdeilis vel upp,
því þessi plata er virkilega skemmtileg
áheymar og tvímælalaust það besta
sem frá hljómsveitinni hefur komið
um langt árabil.
Það má vera að endurreisn gamla
rokksins frá bítlaárunum hafi gefið
Ray Davis endumýjaðan kraft en hér
fer hann í mörgum lögum hreint á
kostum sem lagasmiður. Hans sterka
hlið hefur alltaf verið að geta samið
létt rokklög með fallegum grípandi
melódíum og þessi plata ber það með
sér að þessi gáfa hefúr ekki yfirgefið
hann.
Textasmíðamar hafa líka leikið í
höndum hans og gera enn, þeir gerast
á gömlu dagana
ekki mikið betri textasmiðimir í rokk-
inu nú á dögum.
En þrátt fyrir stórgóða plötu á ég
ekki von á að ný gullöld sé að renna
upp fyrir Kinks, hér vantar til dæmis
áberandi smell til að selja plötuna en
einhvemveginn held ég að þeim Ray
og félögum sé sama, þeir gera þetta
fyrst og fremst fyrir ánægjuna. Og hún
er ósvikin... hjá okkur líka.
ú3þS-
nefní vegna þess að annars
þyrfti vinurinn að punga út
störfé fyrir nafn þess þekkta
ííMilÍJPIÖS *
lag sent Alison IVIoyet á
þessa stundina i fjórða sæti
hreska vinsældalistansog
er skráð vera eftir IVloyet og
einhvern J, Guiot. Guiot
þessi er enginn annaren
Dave Stewart i Eurythmics,
sem vegna samníngs sins
.u
RCA gripur ti) þess ráðs að
nota dulnefní. , . Sviareru
rniirnnmmmrmmmmwm
plötur í Svíþjóð með þeim
ódýrari i Evrópu, Ekki eru
Sviarþó jafn þjóðltollir
plötukaupendur og við ís-
lendingar því söiuhæsta
platan i Svíþjöð á nýliðnu
ári var piata Eurythmics,
Revenge, sém seldíst i tæp-
lega 4UU þusund
eintökum. . . Rlýja lagið
hanslggy Pop, Real Wíld
Cliild, erlangtfráþví nýtt
því lagið varsamið árið
1957 af Ástraliumönnunum
Jolmny ö'Keefe, J. Greenan
og Ö. Oweus, Þá hétþaó
TheWilde One og náði
nokkrum vínsældum i Ástr-
Roger Waters og fleiri - When The Wind Biows
Vandað og fjölbreytt
When The Winds Blows er tónlist
úr samnefndri kvikmynd. Kvikmynd
þessi er teiknimynd með friðarboð-
skap. Eitthvað hefúr efnið heillað
poppstjömur því úrvals tónlistarmenn
eiga lög á þessari ágætu plötu. Fyrstan
ber að nefria Rogers Waters sem er
skrifaður fyrir tónlist kvikmyndarinn-
ar og svo eiga nokkrir úrvals popparar
einstök lög.
Waters er sem kunnugt er hættur í
Pink Floyd og hefur stofnað hljóm-
sveitina The Bleeding Heart Band.
Hann hefur gefið út eina sólóplötu sem
kom út fyrir einu og hálfú ári. Vakti
hún nokkra athygli en dræmar mót-
tökur.
Hér gerir hann tilraun til að skrifa
fyrir kvikmynd og tekst allsæmilega
upp þótt ekki sé því að neita að tón-
list hans á When The Wind Blows
minnir allnokkuð á meistaraverk
hans, The Wall.
Annars skiptist tónlistin á When the
Wind Blows í tvennt. Fyrri hlið plöt-
unnar hefur að geyma lög flutt af
öðrum en Waters. Seinni hliðin er svo
hin eiginlega kvikmyndatónlist eftir
Waters.
Það er sjálfur David Bowie sem á
titillag myndarinnar. Lagið er dæmi-
gerð tónsmíð eftir Bowie þar sem ágæt
útsetning eykur þægileg áhrif lagsins.
Ekki veit ég til þess að Hugh Com-
well úr The Stranglers hafi áður komið
fram sem einstaklingur. Hér gerir
hann það með miklum ágætum í Facts
And Figures. Gott lag sem verður
betra við hverja hlustun. Eitt besta lag
Genesis á nýjustu plötu þeirra In-
visible Touch og jafnframt það sér-
kennilegasta er The Brazilians. Phil
Collins og félagar hafa lánað það í
myndina. Lagið er eingöngu spilað og
er áhrifamikið. Squeeze er með létt-
rokkað lag What Have They Done og
smiðshöggið á fyrri hlið When The
Wind Blows rekur svo Paul Hardc-
astle með léttjössuðum óði The
Shufile.
Seinni hliðin er svo framlag Roger
Waters. Þar þyngist heldur betur tón-
listin. Hápunkturinn á þeirri hlið er
magnað verk The Russian Missile.
Ahrifamikill óður um stríðsrekstur.
Annars er tónlist Waters einkum æf-
ingar í tækni með töluðu máli sem
nýtur sín örugglega vel í myndinni en
verður nokkuð leiðigjamt til lengdar.
Þó ber að nefúa Folded Flag sem er
fallegt og vel með farið lag sem minnir
óneitanlega á Pink Floyd.
Þrátt fyrir nokkra annmarka er
When The Wind Blows vel heppnuð
plata og sú besta í lengri tíma sem
gerð er fyrir kvikmynd. Kemur þar til
helst að á fyrri hlið plötunnar hefur
sérlega vel tekist með tónlistarmenn
og lög þeirra. Og tónlist Roger Waters
er alltaf heillandi þótt ekki sé maður
alltaf sáttur við piltinn.
HK
Pet Shop Boys - DISCO
Orð að sönnu
Pet Shop Boys eru býsna skiýtið
fyrirbrigði. Eftir að dúettinn hafði
starfað saman um nokkurt skeið, án
vemlegs árangurs, tók markaðurinn
skyndilega við sér. Nokkura ára gam-
alt lag þeirra, West End Girls, komst
á vinsældalista og þar með var piltun-
um borgið.
West End Girls er reyndar það besta
sem heyrst hefur frá Pet Shop Boys
til þessa. Prýðis dans og dægurlag.
Það var og að finna á breiðskífúnni
Please sem kom út á síðasta ári. Þessi
fyrsta plata piltanna innihélt reyndar
mestmegnis eldra efni enda höfðu þeir
verið iðnir við kolann áður en vin-
sældimar fóm að segja vemlega til
sín. Tónlist Pet Shop Boys gæti sem
best flokkast undir diskó þó sú tónlist-
arstefiia sé að mestu liðin undir lok.
Lögin em taktföst og stundum borin
ofurliði af tilkomumiklum hljóm-
borðsleik. Tónlistin minnir stundum á
New Order og er þar ekki leiðum að
líkjast. Pet Shop piltamir em þó mun
jxippaðri. Að því leyti má segja að
platan DISCO sé tónhstarlega rökrétt
framhald af Please þó ekki sé frum-
leikanum fyrir að fara.
Á DISCO em aðeins sex lög, flest
sótt í lagasafn piltanna. Platan inni-
heldur meðal annars nýjar hljóðbland-
anir (Remix) af lögum eins og West
End Girls, In The Night og Opportun-
ities. Eina nýja lagið á plötunni er
Suburbia sem náði nokkrum vinsæld-
um seint á síðasta ári. Ýmis aðilar
hafa tekið að sér að aðstoða dúettinn
við hljóðblönduninna og tekst þeim
misvel upp. Endurútgáfa lagsins West
End Girls er til að mynda frekar mis-
heppnuð. In The Nigth og Suburbia
em aftur á móti dæmi um hið gagn-
stæða. Þetta em tilkomumiklar út-
setningar og stundum liggur við að
íburðurinn beri tónlistina ofurliði.
DISCO er diskó, eins og nafrúð gefur
reyndar til kynna. Ekki fjarri lagi að
útnefna hana dansplötu síðasta árs.
Pet Shop Boys er frísklegur dúett. Hér
er hreyfanleikinn í fyrirrúmi.
-ÞJV
aliu. Siðarbirtist lagið á
undír núverandí nafni Real
Wiltf Chíid. . . Holly
Johnson, ehin at liðsmönn
um Frankie GoesTo
Hoilywood, hefur geftð út
í hyggju að vtnna að sóló*
plötu með vorinu. Jafnframt
hefut hann látíð það koma
skýrt fram að hann muniii
hafda áfram að starfa með
Frankieogstrákunum. . .
Simply Red eru með nýja
breiðskifu í burðarliðnuin,
IVIen And Women heitir grip-
urinn og kemur út í næsta
mánuði... Voko Ono hefur
gertsamníng við stórtút-
gáfufyrirtæki vestanhafs um
útgáfurétt á æviminningum
sínuni, sem frúín iiyggst
bráttliefja skriftírá.. .
Nafnið Bruee viróist hafa
einhvern töframátt um þess-
- ar mundir í Bandarikjummt.
Þarberauðvitað fyrstaó
geta Bruce Springsteen; sem
er margföld heimsstjarna,
en svo hefur Bruce Hornsby
* tiú hæst víð nýlega og svo
ei aö koma fram á sjónar-
svíðið enn einn Brúsinn,
hann heitir Bruce Wills, sem
sendir frá ser sína fyrstn
plötu intian tíóar og er þess-
um nyja Brúsa spáð glæstri
framtið.. . hless.