Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Síða 32
44
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Játvarður
hinn breski
á í mesta basli við föður sinn
- Philip prins - vegna þess
að hann vill alls ekki sætta
sig við brotthlaup sonarins
úr hernum. Elísabet hefur
haldið sig meira í fjarlægð
en fylgst með eiginmannin-
um taka drenginn á beinið.
Niðurstaðan af öllu þessu
verður væntanlega sú að
kappinn fær frið til þess að
sinna háskólanámi sínu og
hermennskan verður látin
öðrum og áhugasamari
þegnum landsins eftir á
næstunni.
Linda Evans
er að skapa nýja tísku í
Hollívúdd. Hún lætur sér
ekki nægja alla herðabreiðu
kjólana í Dynastyþáttunum
heldur pantaði á dögunum
átta jakkaföt á sjálfa sig -
unnin af þekktasta skraddara
borgarinnar. Verðið er litlar
sjö hundruð þúsundir og
verður Lindu ekki skota-
skuld úr því að greiða
reikninginn því þáttaröðin
um glitliðið malar þátttak-
endum ómælt gull dögum
saman.
Liza Minnelli
fékk næstum hverja krónu
eftir föður sinn, Vincente
Minnelli. Hálfsystir hennar -
Christiane Minnelli Miro -
er lítið hrifin og heimtar sinn
skerf af kökunni. Systirin
segir Lizu hafa sest að karlin-
um á dánarbeðinum og haft
þau áhrif á hann að erfða-
skránni var breytt hið snar-
asta. Þetta segja kunnugir
hins vegar hina mestu firru
en telja að Vincente hafi
með þessu viljað bæta Lizu
ömurlega barnæsku þegar
hún dvaldi með vímuefna-
sjúklingnum móður sinni -
Judy Garland.
DV-myndir Ragnar S
og tígurkvensur hvæstu á gestina.
Gunnars-
liðiðá
íslandi
Girndareldur Gunnars
Larsen er kominn til Islands.
Þarna er um að ræða eins
konar tískusýningu - Fire of
Desire - sem hefur vakið
mikla athygli þar sem sýning-
arhópur þessa danska ljós-
myndara kemur fram. Atriðin
sem sýnd voru á Broadway
eru frumsýnd einmitt hér og
því ekki ennþá vitað um við-
brögð almennings á Norðurl-
öndum við herlegheitunum.
Síðustu sýningar fengu harða
gagnrýni vegna ruddaskapp-
ar og grófleika sem frændum
vorum þóttu keyra úr hófí
fram á fyrri sýningum.
A sviðinu hérna voru klúx-
klanmenni, glitkvendi,
nunnur, tígurkvensur og
svartklædd brúður í gagnsæj-
um kjól - svo fátt eitt sé nefnt.
Gunnar fylgdist sjálfur
grannt með öllum smáatrið-
um enda þekktur fyrir
nákvæmni í ljósmyndaheim-
inum. Tískublað kappans -
Gunnars - er upparit útgefið
í Parísarborg og eingöngu
selt dýrum dómum þar sem
réttu kaupendanna er að
vænta. Gunnar Larsen hefur
verið búsettur í Frans undan-
farna áratugi og rekur ljós-
myndastúdíó skammt frá
Lúxemborgargarðinum í
hjarta Parísar.
Ljosmyndarinn Gunnar Larsen kom sjálfur frjam í lok sýningar með sýningar-
fólkinu og tók við lófaklappi viðstaddra.
Á sviðinu voru klúxklanmenni og glitkvendi jöfnum höndum...
... nunnurnar létu sig ekki heldur vanta ...
, Ársháta'ð
enskuskólanna
Enskuskólamir English Intem-
ational og Junior Intemational í
Boumemouth hafa reynst mörgum
landanum aðgöngumiði inn í hinn
engilsaxneska heim. Árshátíð skól-
anna er haldin hérlendis um hver
áramót og hingað komu af því tilefhi
í upphafi þessa árs eigandi skólanna,
Peter Penberthy, og kennaramir
Michael Roberts og Barbara og Adr-
ian Britton. Meðfylgjandi DV-mynd
tók Bj.Bj af dansandi glöðum gestum
á árshátíðinni.