Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Page 33
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1987.
4^
Sviðsljós
Madonna
heiðruð
Hin blíðlynda Madonna vann tónlistarverðlaunin amer-
ísku fyrir besta popprokkmyndbandið úr herbúðum
kvenna. Þetta er í fjórtánda skipti sem verðlaunin eru
veitt og athygli vakti að Madonna sætti sig furðanlega
við nærveru ljósmyndara á staðnum, jafnvel stillti sér
upp fyrir sína fornu féndur og sést árangurinn á með-
fylgjandi Reutersmynd.
Bjargar lögfræð-
ingurinn í horn?
Rollingurinn Mick Jagger sést hér leita ráða hjá lögfræð-
ingnum Elliot Mottley á Barbados eftir að ljóst var að
yfirvöld á eyjunni mundu gefa út ákæru á hendur sambýl-
iskonu hans og barnsmóður - Jerry Hall. Hún verður
látin svara til saka fyrir fíkniefnasmygl og nú eru allar
klær hafðar úti til þess að finna rétta lagakrókinn út
úr vandanum.
Dolly í
Ástralíu
Kántrísöngkonan Dolly Parton er nú í Ástralíu á hljóm-
leikaferð. Bomban hefur sjaldan litið betur út eins og sjá
má á þessari Reutersmynd sem tekin var í Bretlandi þeg-
ar hún fór þar um síðastliðinn sunnudag - á leið sinni
í land andfætlinganna.
Jerry Hall
handtekin
Fyrirsætan fagra og sambýliskona Rollingsins Micks
Jagger- Jerry Hall - sést hér yfirgefa lögreglustöðina í
Holeston á eyjunni Barbados eftir að hún var handtekin
fyrir fíkniefnasmygl síðastliðinn þriðjudag. Á henni
fannst allnokkurt magn af marijuana.
Ölyginn
sagði...
Michael J. Fox
glæðír vonir smávöxnu strá-
kanna um heim allan. Þrátt
fyrir að hann verði að teljast
óvenjustuttur í annan end-
ann hlaut Mikki samt fyrsta
sætið í skoðanakönnun
meðal nemenda í Vestur-
heimi. Spurt var um uppá-
haldsmanngerðina og
reyndist hann langhlut-
skarpastur - Di varð númer
tvö og Mæamilöggan Don „I,
hafnaði í þriðja sætinu.
Margur er knár þótt hann sé
smár segir einhvers staðar
og sannast eftirminnilega á
mínístjörnunni.
Rudolf Nurejev
sýndi að hann er ekki alveg
skaplaus þegar dansarinn
var á ferð fluleiðis nýlega.
Ballettséníið reiddist yfir
sætaúthlutun á þeim eðla
sagaklassa og stappaði nið-
ur fótunum sem best hann
gat. Þegar ekkert úrvalssæti
losnaði samt þrátt fyrir harð-
ar aðgerðir henti kappinn
saltmöndlum yfir hefðardúll-
urnar í betri sætunum og
varð ekki vinsælasti maður-
inn á staðnum fyrir bragðið.
Samantha Fox
fékk ekki heitustu óskina
uppfyllta á síðasta ári. Það
var ökuskírteini en bomban
heldur áfram að falla á próf-
inu með miklum tilþrifum.
Þetta er í sjöunda skiptið
sem fallistinn berst í bökkum
og velta menn því fyrir sér
hvað geti valdið. Einna helst
er að álykta að vaxtarlagið
byrgi kvensunni sýn og fátt
við því að gera nema ráða
einkabílstjóra í framtíðar-
stöðu svo Samantha fari
ferða sinna óheft af ytri að-
stæðum.