Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1987, Síða 36
P p| p -|- -J- jP^ -J- |
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er
notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Vaxandi
fyigi við
að Stefán
fái BB
Þeirri skoðun vex nú fylgi innan
Framsóknarflokksins að heimila skuli
Stefáni Valgeirssyni að merkja lista
sinn BB þrátt fyrir að kjördæmisráð
flokksins í Norðurlandi eystra hafí
lagst gegn því.
Þessar upplýsingar fékk DV frá ein-
um af þingmönnum Framsóknar-
flokksins. Málið verður rætt í
framkvæmdastjóm flokksins næst-
komandi þriðjudag
I DV í gær var sagt að komið væri
að því að taka ákvörðun um hvort
víkja ætti Stefáni úr þingflokknum.
„Það hefur ekkert verið fjallað um
' ii*etta mál í þingflokknum," sagði Dav-
■ íð Aðalsteinsson sem gegnir for-
mennsku í þingflokki Framsóknar-
flokksins þessa dagana.
„Það hefur ekkert verið ákveðið með
það eða hvort það verður yfirhöfuð
rætt,“ sagði Davíð.
-KMU
Hluthafar
Amarflugs
koma saman
Stjóm Amarflugs hefur boðað hlut-
hafa til fundar í næstu viku. Þar
verður afgreidd tillaga stjómar um að
heimilað verði að auka hlutafé félags-
ins um 82 milljónir króna til viðbótar
því sem samþykkt var í fyrra.
Meginástæðan er sú að tap á nýliðnu
ári varð meira en menn höfðu búist
við eða um 120 milljónir króna sam-
kvæmt bráðabirgðatölum, að sögn
Kristins Sigtryggssonar framkvæmda-
stjóra.
Stjórn félagsins hefur markað þá
stefhu að einbeita sér að áætlunarflugi
milli Islands og Evrópu en leggja
minni áherslu á sérstök verkefhi er-
lendis og stofna dótturfélag um
innanlandsflugið.
-KMU
Ávallt feti framar
68-50-60
,viO>0lLAsrð(
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA10
LOKI
Má þá ekki endurreisa
Hafskip með sama hætti?
FOSTUDAGUR 30. JANUAR 1987.
Farniannadeilan:
Nú situr allt
pikkfast aftur
segir Guðlaugur Þotvaldsson ríkissáttasemjari
„Menn höfðu verið að reyna þá
leið að setja kröfúna um breytt
vinnufyrirkomulag um borð aftur
fyrir og því þótti mér rétt að láta
reyna á þá leið með formlegri miðl-
aðilar
sýnist
unartillögu. Eftir að báðir
hafa eindregið hafhað henni
mér að tillaga skipafélaganna um
breytt vinnufyrirkomulag og kaup-
hækkanir út frá því verði sá grund-
völlur sem næst verður reyndur,"
sagði Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari í morgun.
Guðlaugur sagðist ekki hafa boðað
annan samningafúnd enda teldi
hann rétt að menn fengju einhvem
tíma til að hugsa ráð sitt.
Tillága sáttasemjara var formleg
miðlunartillaga en þær verður að
bera undir félagsfund beggja deilu-
aðila. Hún var felld í gærkveldi með
nær öllum atkvæðum á fúndum
beggja deiluaðila. Sjómenn sögðu
hana ekki ganga nógu langt fyrir
þá en fulltrúar skipafélaganna sögðu
hana alltof háa. Tillagan gerði ráð
fyrir 7,5% kauphækkun í stað 6%
sem skipafélögin höfðu boðið. Lág-
markslaun yrðu 26.500 krónur á
mánuði en fteru upp í 27.800 við lok
samningstímabilsins. Þá var gert ráð
fyrir að sérstakt álag, sem undir-
menn fa greitt, yrði 60% en sjómenn
höfðu farið fram á 73%.
„Ég taldi rétt að sýna fram á það
í atkvæðagreiðslu um miðlunartil-
löguna hve breitt bil er á milli
deiluaðila í stað þess að vera að gefa
um það skýrslur. Úrslit atkvæða-
greiðslunnar sýna betur en nokkuð
annað hve mikið ber í milli,“ sagði
Guðlaugur Þorvaldsson. Hann tók
fram að hann myndi kalla til sátta-
fúndar um leið og eitthvað breyttist
frá þvf sem nú er. -S.dór
Landflutningar eru nú meiri en dæmi eru til um á þessum árstíma. Vöruflutningabílarnir hafa ekki
undan aö flytja vörur út á land enda þótt veðurenglarnir geri sitt til að halda vegum opnum með
vorveðráttu á Þorra. Undanskildir eru þó Vestfirðir þar sem sundurskornir aurblautir vegir koma í
veg fyrir alla landflutninga sem stendur. S.dór/DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Þurrt á
Norður- og
Austur-
landi
Á laug^jtlaginn verður suðaustan
átt um allt land, 4-6 vindstig og súld
við suður- og vesturströndina. 2-4
vindstig og skýjað en þurrt á Norð-
ur- og Austurlandi. Hiti 0-6 stig.
Vilja eriendan
hluthafa í
ÚtvegsbankannS
— nd ctnifsLknn irHhnn ^
- og stórfækkun útibúa
Hugmyndir um skipulag bankakerf-
isins gerjast nú hratt. Framsóknar-
menn hafa bryddað upp á því við
sjálfstæðismenn að ef Útvegsbankinn
verði „endurreistur“ nú þegar sem
hlutafélag verði það með 25% aðild
erlends hluthafa. Þá er hugsað að Iðn-
aðarbanki og fleiri innlendir einka-
bankar gangi í félagið á seinni stigum.
Áður hafa sjálfstæðismenn sýnt
áhuga á þátttöku erlendra aðila í
bankastarfseminni, svo sem með opn-
un umboðsskrifetofa hér. Matthías
Bjamason viðskiptaráðherra mun ít-
rekað hafa lýst því yfir að hann hleypi
ekki útlendingum að bönkunum sem
beinum aðilum nema að 25%. Fram-
sóknarmenn egna hann nú til þess.
Þá fylgir þessari hugmynd, um Út-
vegsbankann hf„ að útibúakerfi
Landsbanka og Búnaðarbanka og
jafnvel bankanna í heild verði endur-
skoðað og dregið stórlega saman.
Fleiri breytingar í bankamálunum
hanga á spýtunni, enda er vandamál
Útvegsbankans einungis einn þáttur
þeirra úrlausnarefna sem stjómar-
flokkamir fást nú við í bankamálun-
Sjá einnig bls. 3
-HERB
Sorpdeilan í Kópavogi:
Lausní
augsýn
„Ég hreinsaði allan bæinn í gær að
ráði lögfræðings míns og framvegis
mun ég hreinsa austurbæinn reglu-
lega. Vesturbæinn í Kópavogi snerti
ég hins vegar ekki vegna þess að þar
er allt annar samningur í gildi,“ sagði
Þorbjöm Tómasson, verktaki sorp-
hreinsunar í Kópavogi, oft nefndur
„töframaður sorpsins".
Ýmislegt bendir nú til að lausn sorp-
deilunnar í Kópavogi sé í augsýn en
þar hefur verið deilt um eftir hvaða
töxtum ætti að greiða sorphreinsunar-
mönnum vinnu sína.
„Ég á von á því að deilan um sorp-
hreinsunina leysist í dag þó eftir standi
deilan við Þorbjöm verktaka um
greiðslu verðbóta," sagði Stefán L.
Stefánsson á bæjarskrifetofúnum í
Kópavogi í morgun.
-EIR
Þijú innbrot í morgun:
Þrennt var
handtekið
Lögreglan í Reykjavík handtók tvo
menn og eina konu í morgun en þau
em grunuð um innbrot á þrjá staði í
borginni auk þess að hafa unnið
skemmdarverk á bílum. Staðimir, sem
tilkynnt var um innbrot í, vom Hen-
son í Skipholti, Eldhúsval í Sigtúni
og JB blikksmiðjan á Ægisgötu en
bílamir, sem skemmdir vom, vom á
Þórsgötunni.
Ekki lá ljóst fyrir í morgun hve
miklu hafði verið stolið úr þessum fyr-
irtækjum þar sem nýbúið var að
tilkynna innbrotin og yfirheyrslur yfir
hinum grunuðu rétt að byrja.
-FRI