Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1987, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1987, Síða 32
48 MÁNUDAGUR 9. MARS 1987. Andlát Guðmunda Vilhjálmsdóttir lést 2. mars sl. Hún fæddist i Vinaminni á Eyrarbakka 8. október 1907. dóttir hjónanna Vilhjálms Ásgrímssonar og Gíslínu Erlendsdóttur. Maður hennar var Guðmundur Kr. H. Jós- epsson vörubifreiðastjóri sem lést 13. september 1969. Þeim hjónunum varð 10 barna auðið og eru þau öll á lífi. Hulda Böðvarsdóttir lést 1. mars sl. Hún fæddist 24. ágúst 1924 og ól mestan aldur sinn í Reykjavík. Eftir- lifandi eiginmaður hennar er Siggeir Blöndal Guðmundsson og eignuðust þau fimm börn. Útför Huldu verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Útför Áslaugar Ólafsdóttur, Álfa- skeiði 82. Hafnarfirði. fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 15. Bjarni Vilhjálmsson, fvrrverandi þjóðskjalavörður. verður jarðsung- inn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 13.30. VIKAN AUGLÝSINGADEiLD Þverholti 11. sími 27022 F YRIRTÆKI - ATVINNUREKENDUR! VIKAN er ekki sérrit, heldur Qölbreytt, víðlesið heimilisrit, og býður hagstæðasta aug- lýsingaverð albra íslenskra tímarita. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni, bílskúr við Vesturbraut 1, Hafnarfirði, þingl. eign Snjólaugar Benediktsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. mars 1987 kl. 14.30. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 102. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1984, og 2. og 8. tölu- blaði þess 1985 á eigninni Lyngmóum 12, 2. hæð t.v., Garðakaupstað, þingl. eign Kristjáns Þorgeirs Magnússonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka Islands, Guðmundar Óla Guðmundssonar hdl. og Gjaldheimtunnar í Garða- kaupstað á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. mars 1987 kl. 15.00. Bæjarfégetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 68., 72. og 74. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eign- inni Stekkjarflöt 17, Garðakaupstað, þingl. eign Þórðar Einarssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Gústafssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. mars 1987 kl. 15.30. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 110., 114. og 119. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Holtsbúð 45, Garðakaupstað, þingl. eign Jóns Einars Böðvarsson- ar, fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudag- inn 12. mars 1987 kl. 16.00. ________________________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Selbraut 26, Seltjarnarnesi, þingl. eign Kjartans Jónssonar, ferfram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. mars 1987 kl. 16.45. ____________________Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Laufási 4, n.h., Garðakaupstað, þingl. eign Gunnars Þórs ísleifssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 12. mars 1987 kl. 17.30. ___________________Bæjarfógetinn í Garðakaupstað. í gærkvöldi Eriing B. Snorrason: „Spennandi og skemmtileg spurningakeppni“ Það var afarfátæklegt það sem ég horfði á um helgina þar sem ég var staddur í Vestmannaeyjum og í gær- kvöldi fór svo til allt í handaskolun hvað varðar fjölmiðla. að hlusta og horfa. En ég sá þátt um Ágúst Sig- urðsson og fjölskyldu hans í Kaupmannahöfn og fleiri sem þar lifa. Sá þáttur var mjög athvglisverð- ur og merkilegur í marga staði enda eru margir íslendingar sem lagt hafa leið sína til Kaupmannahafnar. Að öðrum þræði var ég að horfa til þess að athuga hvort þar væri einhver sem maður þekkti til. Á laugardags- kvöldið sá ég spumingakeppnina á milli Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Menntaskólans í Revkjavík sem var mjög skemmtileg, spennandi og merkileg. Þessir ungu menn vissu nánast svör við flestum spumingun- um og þá hljóta þeir að vita enn meira um allt annað. Daginn eftir var svo þáttur Ólafs Ragnarssonar um þjóðlíf og þjóðtrú okkar íslend- inga sem var vel unninn og fróðleg- Erling B. Snorrason. ur. Það má vera að eitthvað yfimáttúmlegt sé til þó ekki trúi ég á huldufólk í steinum og annað þess háttar. Það er margt merkilegt í fjölmiðl- unum og margir fræðandi þættir. Þar finnast mér Stiklur Ómars Ragnarssonar hafa borið einna hæst. Svo em póstar á borð við fréttirnar sem maður kann ekki að gangrýna en fylgist alltaf með. Ekki síður hjá þeim á stöð 2. Páll Magnússon er léttur og skemmtilegur fréttamaður. Og ég hef á tilfinningunni að þeir séu eitthvað að reyna að vera öðm- vísi en þeir á Sjónvarpinu með þvi að koma með eitt og annað sem kannski ekki mundi teljast frétt- næmt. Ég hef ferðast mikið erlendis og séð þar af leiðandi mikið af sjón- varpi og get ekki sagt annað en að við stöndum okkur vel hér heima Þorsteinn Kr. Sigurðsson lést 1. mars sl. Hann fæddist 2. ágúst 1904 og ólst upp á Hellissandi á Snæfells- nesi. Hann var sonur hjónanna Steinunnar Magnúsdóttur og Sig- urðar Þorsteinssonar. Þorsteinn starfaði lengst af hjá Kol og salt hf., eða í um 25 ár. Eftir að fyrirtækið var lagt niður réðst hann til Eim- skipafélags íslands þar sem hann starfaði til ársins 1977. Eftirlifandi eiginkona hans er Guðmunda Kristj- ánsdóttir. Þau hjónin eignuðust fjóra syni. Útför Þorsteins verður gerð frá Áskirkju í dag kl. 13.30. Bergný Ólafsdóttir, áður til heimil- is á Hringbraut 74, andaðist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 3. mars. Gísli Andrésson, Hálsi í Kjós, lést af slysförum sunnudaginn 1. mars. Jarðsungið verður frá Hallgríms- kirkju í Reykjavík í dag, 9. mars, kl. 13.30. Guðrún Guðmundsdóttir, Bala, Miðnesi, andaðist í Sjúkrahúsi Keflavíkur aðfaranótt föstudags 6. mars. Ingibjörg Jónasdóttir, Garðabraut 24, Akranesi, lést í Vífilsstaðaspítala 5. mars. Ragnhildur Björg Metúsalems- dóttir, Þingholtsstræti 21, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 10. mars kl. 15. Jóhann Kr. Þorsteinsson, Eggja- vegi 3, Reykjavík, verður jarðsung- inn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. mars kl. 13.30. Ýmislegt Kvenfélag Kópavogs heldur aðalfund sinn í félagsheimili bæjar- ins 12. mars nk. kl. 20.30. Félagsfundur í Heimilisiðnað- arfélagi Islands haldinn á hótel Esju 4. mars 1987 sam- þykkir eftirfarandi ályktun: „Eundurinn styður framkomna ályktun frá stjórn Stéttarsambands bænda, þar sem óskað er eftir að landbúnaðarráðherra láti fara fram hlutlausa rannsókn á málefnum ís- lensku ullarinnar." Létu fundarmenn í ljós þungar áhyggjur yfir því ófremdarástandi sem ríkir í meðferð og vinnslu ísl. ullarinn- ar. Leikdeild á Kirkjubæjar- klaustri sýnir „Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir“ I vetur hefur verið starfandi unglingahóp- ur innan leikdeildar ungmennafélagsins Ármanns á Kirkjubæjarklaustri. Hóp þann skipa að mestu leyti unglingar úr efstu bekkjum Kirkjubæjarskóla. Æfingar hafa staðið yfir á leikritinu Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir, í leikgerð Ólafs Hauks Símonarsonar. Leikstjóri verksins er Guðrún Halla Jónsdóttir. Leikritið verður frumsýnt í félagsheimilinu Kirkju- hvoli þriðjudaginn 10. mars kl. 21 og önnur sýning á verkinu verður einnig þar á sama tíma fimmtudaginn 12. mars. Einnig er fyrirhugað að fara í leikferð með sýning- una og gefa sunnlenskri æsku og öðru áhugafólki um leiklist færi á að sjá sýning- „una og verða sýningar á eftirtöldum stöðum sem hér segir: Föstudaginn 13. mars í Leikskálum, Vík í Mýrdal, kl. 21. Laugardaginn 14. mars í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli, kl. 21 og sunnudaginn 15. mars að Hótel Ljósbrá, Hveragerði, kl. 16. Hugeflisþjálfun Þann 13. mars nk. mun Þrídrangur standa fyrir kvöldnámskeiði í hugeflisþjálfun að Hótel Loftleiðum. Hugeflisþjálfun kennir aðferðir til að auka sköpunarhæfni, minnisgetu og hæfileikann til að finna úrlausn vandamála. Virkjaðir verða ónot- aðir möguleikar einstaklingsins með djúpslökun, sjálfssefjun og notkun ímynd- unaraflsins til að yfirvinna slæmar lífs- venjur eins og reykingar og ofát. Jafnframt verða kenndar aðferðir til að bæta sjálfsímynd, efla sjálfstraust og yfir- vinna neikvæða sjálfsgagnrýni. Hugeflis- þjálfun byggir m.a. á aðferðum búlgarska vísindamannsins dr. Georgi Lozanov. Leiðbeinandi er Garðar Garðarsson. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Þrídrangs frá upphafi og hefur leiðbeint og túlkað á ýmsum námskeiðum um heild- ræn málefni. Upplýsingar fást að Tryggva- götu 18 í síma (91)-622305. Afnám togveiðibanns út af Austfjörðum Síðan 13. febrúar sl. hafa togveiðar verið bannaðar á allstóru svæði austur af landinu. Sl. mánudag var svæði þetta kannað undir eftirliti veiðieftirlitsmanna sjávarútvegsráðuneytisins og voru niður- stöður þær að smáfiskur virðist genginn af svæðinu og afli víðast tregur nema syðst á því. Með hliðsjón af þessu ákvað ráðu- neytið að ofangreint togveiðibann félli úr gildi kl. 12 á hádegi 5. mars sl. Námskeið í skyndihjálp Reykjavíkurdeild RKÍ heldur námskeið í skyndihjálp. Það hefst þriðjudaginn 10. mars að Ármúla 34 (Múlabæ) kl. 20 og stendur yfir 5 kvöld. Skráning í síma 28222. Námskeiðsgjald er kr. 1000. Leiðbeinandi verður Guðlaugur Leósson. Öllum heimil þátttaka. Á námskeiðinu verður leitast við að veita sem almennasta þekkingu um skyndihjálp. Meðai annars verða kennd viðbrögð við öndunarstoppi, beinbrotum, bruna og sýnd myndbönd um ýmsa þætti skyndihjálpar. Nú er gott tækifæri fyrir fólk að læra fyrstu viðbrögð við slysum eða endurbæta fyrri þekkingu. Talið er nauðsynlegt að fólk fari í gegnum allt námskeiðið á 3 ára fresti til að halda þekk- ingunni við. Námskeiðinu lýkur með verkefni sem hægt er að fá metið í ýmsum skólum. Tímaiit i s i ÆSKAN Roon 9»t nmtum feaeW bnSttmn tíf (afov.l Albert Guðmundsson í aðal- viðtali Æskunnar 2. tbl. Æskunnar 1987 er komið út. Aðal- viðtalið að þessu sinni er við Albert Guðmundsson, fyrrum atvinnumann í knattspyrnu og núverandi iðnaðarráð- herra. Albert var einn hæstlaunaði at- vinnuknattspyrnumaður í Evrópu á sínum tíma. Hann var bæði Frakklands- og ítal- íumeistari með liðum sínum. I þessu viðtali rekur hann knattspyrnusögu sína í stórum dráttum. Fleira má nefna af efni blaðsins. Litið er inn í djassballettskóla og sagt frá æfingu 10-12 ára telpna. Spurningaleikur- inn heldur áfram og í þessu blaði eigast við Barnaskólinn í Hveragerði og Mýrar- húsaskóli. í starfskynningunni er íjallað um nám og starf veðurfræðings. í popp- þættinum ræðir Jens Kr. Guðmundsson við liðsmenn hljómsveitarinnar Rauðir fletir. Sigurður Helgason skrifar um vin- sæla knattspyrnufélagið Manchester United. I leikarakynningu er sagt frá Don Johnson og birt litmynd af honum. Vegg- mynd af enska knattspyrnuliðinu Arsenal fylgir Æskunni en það vill svo til að Al- bert Guðmundsson lék einmitt með því fyrir nákvæmlega 40 árum. Æskan er 56 síður að stærð og prentuð í Odda hf. Rit- stjórar eru Eðvarð Ingólfsson og Karl Helgason en útgefandi er Stórstúka ís- lands. Blaðið kemur út 9 sinnum á ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.