Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Side 11
FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 1987. 11 Emmanuel Pelaez, fulltrúi stjórnarinnar í Manilla i viðræðunum við upp- reisnarmenn, heilsar Nur Misuari, einum af leiðtogum múhameðstrúar- manna. Simamynd Reuter Vonast eftir samkomulagi Að sögn aðalfulltrúa stjómvalda í Manila hafa samningaviðræður milli stjómarfulltrúanna og múhameðstrú- armanna í suðurhluta Filippseyja gengið svo vel að vonir um samkomu- lag hafa vaknað. Emmanuel Pelaez stjómarfulltrúi skýrði fréttamönnum frá því í gær að hann teldi meira en helmings líkur á að samkomulag næðist við múhameðs- trúarmenn sem krefjast sjálfstjórnar í tuttugu og þrem hémðum á suður- hluta Filippseyja, svæði sem tekur yfir um þriðjung eyjanna. I gær lauk samningalotu sem staðið hefur í tvo sólarhringa,með samkomu- lagi um sjálfstjóm þrettán héraða. Um sex milljónir múhameðstrúar- manna búa á suðurhluta Filippseyja. Þeir em þó minnihluti íbúa þar því að á sömu svæðum búa um fimmtán milljónir kristinna manna. Mikil spenna hefur ríkt á svæðinu undanfama daga. Fulltrúar Alþjóða Rauða krossins lýstu í gær áhyggjum sínum vegna tveggja svissneskra starfsmanna sinna og fjögurra filipp- ínskra hjúkrunarkvenna sem rænt var á þriðjudag. Stjórnarherinn tilkynnti að mannræningjarnir hefðu einn sól- arhring til að skila fólkinu, að þeim tíma loknum yrðu hersveitir sendar á eftir þeim. í gærkvöldi var fólkinu svo sleppt lausu. _________________________________Utlönd Flóttamenn kaupa sér eiginkonur I tmkur L. Haukæcn, DV, Kaupmannahö&i: Margir flóttamenn, er sækja um hæli f Danmörku, em svo hræddir um að verða sendir úr landi að þeir kaupa gjaman danska eiginkonu fyrir hundrað og fimmtíu þúsund danskar krónur. Útborgun er fimmtíu þúsund og síð- an borgar eiginmaðurinn fjögur þúsund á mánuði í tvö ár. Eftir tvö ár geta hjónin skilið án þess að flótta- maðurinn eigi á hættu að vera rekinn úr landi. Verðið þykir dæmigert fyrir mark- aðsverð á konum en lögfræðingar þeir sem annast flóttamenn óttast að þessar kaupgiftingar séu í örum vexti. I nokkrum tilfellum em mánaðar- greiðslumar hækkaðar áður en tveggja ára markinu er náð. Nýta konumar sér þannig ótta flóttamann- anna. I lögffæðingafélaginu hafa þessi hjónabönd verið til umræóu en fyrir- bærið hefúr þekkst í tvö ár. Em það aðallega einstæðar mæður á félags- bótum sem selja sig á þennan hátt til að rétta efnahaginn við. Eins og lögin em í dag þykir lögfræðingum ekki ósennilegt að æ fleiri konur velj i þessa leið út úr Qárhagsörðugleikum sínum. Konumar em blankar og mennimir slegnir ótta við brottvfsun. Lögreglan segist ekki þekkja ýkja mikið til þessara giftinga. Talsmaður hennar segist þekkja til nokkurra hjónabanda þar sem peningar hafa verið aðalástæðan til þess að til þeirra var stofhað. Leggur hann áherslu á að það sé ekki refsivert að borga pen- inga í hjónabandi. Það sé einungis ólöglegt ef aðilamir segjast búa sam- an þó þeir geri það ekki í raun og vem. KJARNHOLTUM BISKUPSTUNGUM á eftirfarandi tímabil: 1. námskeiö 24. maí—5. júní 2. námskeiö 6. júní—20. júní 3. námskeið 21. júní—3. júlí 4. námskeið 5. júlí—17. júlí 5. námskeið 19. júlí—31. júlí 6. námskeið 3. ágúst—15. ágúst Reiðnámskeið, sveitarstörf, íþrótta- og leikjanámskeið, skoðunarferðir um Biskupstungur sund og kvöldvökur eru dæmi um það sem er á dagskrá hjá okkur. innritun fer fram í Skeifunni 3f á skrifstofu S. H. verktaka. Upplýsingar í síma 687787. Þar sem aðsókn er mikil er áhugasömu fólki bent á að skrá sig strax, til að verða ekki af plássi í sumar. Sjáumst í sveitinni í sumar! Yerðmæti vinninga aUt að 28 milljónir! Óvenjuhátt vinningshlutfall! Við getum það með ÞÍNUM STUÐNINGI. ÁFRAM ÍSLAND! Kristján Sigmundsson iandsliðsmarkvörður: þínum stuðningi naðum við 6. besta sæti í heimi á OL ’84 og HM ’86, Stefnum að verðlaunasæti á ólympíuleikunum í Seoul.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.