Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Side 21
FIMMTUDAGUR 7. MAI 1987.
21
Iþróttir
Steinar kemur heim
- Ennþá óvíst í hvaða félag hann fer. Gylfi fór ekki til Hameln. Margir hugsa málið
„Forráðamenn 2. deildar liðsins
Runar gerðu mér ákveðið tilboð sem
mér leist ekki vel á. Ég er því búinn
að gefa þetta frá mér og er á heim-
leið,“ sagði landsliðsmaðurinn
Steinar Birgisson í samtali við DV
í gærkvöldi en hann lék sem kunn-
ugt er með Kristiansand í Noregi
síðasta vetur og varð markakóngui'
í 1. deild.
„Hugur minn er hjá Víkingi, því
get ég ekki neitað, en þaö er ekkert
öruggt í jjessu. Ég gæti þess vegna
endað hjá öðru félagi. En eitt er víst:
ég hlakka mjög mikið til að koma
heim þótt mér hafi liðið mjög vel hér
í Noregi."
- Nú slógu margir því fostu að þú
yrðir áíram hjá Kristiansand. Hvað
gerðist?
• Gylfi Birgisson, Stjörnunni, biður
eftir kalli frá Hameln i Vestur-Þýska-
landi.
„Ég verð að viðurkenna að ég var
nokkuð sár þegai' ljóst var að ég
yrði ekki áfram hjá félaginu. Það
sem kom í veg fyrir áframhaldandi
veru mína þar voru smáatriði sem
ég gat ekki sætt mig við.“
• Margir handknattleiksmenn
eru á faraldsfæti þessa dagana og
margir hugsa málið. Við slógum á
jjráðinn til íjögurra í gærkvöldi og
spurðumst fyrir um stöðu mála.
Gylfi Birgisson
Éins og greint var frá í DV á dög-
unum stóð til að Gylfi Birgisson,
Stjömunni, færi til vestur-þýska liðs-
ins Hameln, sama liðs og jæir
Kristján Arason og Atli Hilmarsson
léku með um tíma. „Þeir buðu mér
• Hannes Leifsson, fyrirliði Stjöm-
unnar. Norskt lið hefur sett sig i
samband við hann en Hannes hefur
ekkert svar gefið af eða á.
að koma og kíkja á aðstæður og ég
ákvað að fara. En þegar ég haföi
samband við þá hjá Hameln, kvöldið
áðui- en halda skyldi út kom babb í
bátinn. Þá var komið upp eitthvert
leiðindamál innan félagsins, mér alls
óviðkomandi, og ég hætti við að fara
í bili. En ef ég heyri frá jieim aftur
fer ég út og lít á þetta hjá þeim. Ef
ekkert verður úr þessu mun ég leika
með Stjömunni næsta vetur,“ sagði
Gylfi Birgisson í gærkvöldi.
Sigurður Gunnarsson
„Mín mál em öll í biðstöðu og
verða það þangað til í sumar. Ég
jiarf einfaldlega að hugsa málið og
tek ekki ákvörðun fyrr en eftir-að
keppnistímabilinu hér lýkur,“ sagði
Sigurður Gunnarsson hjá Tres de
Mayo á Spáni við DV í gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum DV, sem
em öruggar, hefur Sigurður úr vmsu
að velja en efst á blaði em Saab i
Svíþjóð og svo áframhald hja Tres
de Mayo. Þá hefur nafn Fram verið
nefnt í jæssu sambandi.
Þorbergur Aðalsteinsson
„Það er ekkert nýtt af mér að
frétta. Ég hef að vísu skrifað undir
eins árs samning hjá Saab sem leik-
maður en ég vil ekki þjálfa. Þeir em
að revna að finna annan þjálfara en
það gengur illa. Framtíð mín hér i
Svíþjóð byggist að öðm leyti nær
eingöngu á því hvort ég kemst að
hér í háskólanum en ég fæ svar við
• Steinar Birgisson leikur aftur hér
á landi á næsta keppnistímabili en
ennþá er ekkí frágengið með hvaða
liði.
umsókninni í júlí. Ef ég fæ ekki
skólavist geri ég eitthvað róttækt í
múlunum og verð þá örugglega ekki
lengur i Svíþjóð en þetta eina ár sem
ég samdi um,“ sagði Þorbei-gur Aðal-
steinsson í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Hannes Leifsson
í lokin má geta þéss að fvrirliði
Stjörnunnar. Hannes Leifsson. hefur
fengið upphringingu frá norsku liði
i 3. deild. Hefur Hannes enn enga
ákvörðun tekið. ..Ég er mjög upptek-
inn í prófum við Lögregluskólann
þessa dagana og er ekkert að hugsa
um þetta j>ó jmð kunni að geta verið
gert síðar.” sagði Hannes.
-SK
• Þorbergur Aðalsteinsson verður
eitt ár enn hjá Saab i Sviþjóð en
mun i lengstu lög neita að þjálfa
liðið.
• Sigurður Gunnarsson hjá Tres
de Mayo á Spáni er enn að hugsa
málið og að eigin sögn verður á-
kvörðun um félagaskipti, ef af þeim
verður, tekin i sumar.
maiarvöll á iþróttasvæði félagsins að Hlíðarenda. Nýi völlurinn er á sama stað og
irðveg og er völlurinn i alla staði mjög góður, að sögn Valsmanna. 3. september
jamla vellinum og var hann vigður af séra Friðriki Friðrikssyni. Þetta var fimmti
im tíma en sá fyrsti á Hliðarenda.
/rrverandi formaður Vals, fyrstu spyrnuna á nýja vellinum. Við það tækifæri flutti
ason, formaður landssambands KFUM, (sjá mynd) flutti einnig ávarp og lagði bless-
ilunni léku Valur og Ármann i 5. flokki, fyrsta leikinn á nýja vellinum.
-JKS DV/mynd S
Reims - Martigues...............2-0(2-1)
Tours - Ales....................1—0(2—3)
Juventus slegið út í
ítalska bikarnum
Seinni leikimir í 8 liða úrslitum ítölsku
knattspymunnar voru leiknir í gærkvöldi.
Juventus var slegið út af 2. deildar liðinu
Cagliari og komu þau úrslit verulega á
óvart. Úrslit urðu eftirfarandi:
Bologna - Napoli............2-4(2—7)
Parma - Atalanta..............0-0(0-1)
Juventus - Cagliari...........2-2(4-5)
Inter - Cremonese..............1—1(3—5)
Jafnt hjá Manchester Utd
Einn leikur fór fram í ensku 1. deild-
inni, Coventry og Manchester United
gerðu jafhtefli, 1-1, á Highfield Road í
Coventry.
-JKS
Siggi Gunnars bjaigaði
Tres de Mayo fra falli
skoraði sigurmark liðsins gegn San Fost og liðið er svo til sloppið
„Þetta var óskaplega mikilvægui-
sigur sem þýðir nánast að við enmi
sloppnir við fall í 2. deild eftir mikið
basl í vetur. Við eigum eftir að leika
þrjá leiki og tveir af þeim eru á heima-
velli. Við þurfum að vinna annan
heimaleikinn og þá erurn við endan-
lega sloppnir." sagði Sigui'ðui'
Gunnarsson. handknattleiksmaðm'
hjá spánska félaginu Tres de Mayo. í
samtali við DV i gærkvöldi.
..Fym hálfleikurinn var ákaflega
slakrn' af okkar hálfu og staðan að
honum loknum var 11-6 fyrir San
Fost. Við náðimi svó að leika mjög
vel í þeim síðari og skomðimi sigm'-
markið þegar rúm mínúta var til
leiksloka. Þetta vm- tæpt hjá okkur
því síðustu mínútuna vorum við
tveimm' leikmönnum fæm. Þeim tókst
hins vegar ekki að skora." sagði Sig-
urður.
Það var einmitt Sigm'ðm' sjálfur sem
skoraði sigurmark Tres de Mayo og
hinn íslendingurinn í liðinu. Einár
Þorvarðarson landsliðsmai-kvörður.
átti mjög mikinn þátt í siginmun og
varði frábærlega vel. Sigurðm- vár
einnig mjög friskm' og skoraði sjö
marka Tres de Mayo. Þess má geta
að Siggi skoraði sigurmarkið úr
hraðaupphlaupi.
-SK
33 valdir á OL smáþjóða
- íslendingar keppa í sex greinum í Monaco
Keppni smáþjóða Evrópu fer fram í
Monaco 14. til 17. maí nk. Þátttöku-
lönd auk íslands verða: Luxemburg.
Liechtenstein, Andorra. San Marino.
Monaco, Malta og Kýpur. Þetta er í
annað sinn sem keppni af þessu tagi
fer fram.
ísland tekur þátt í eftirtöldum iþrótt-
um: körfuknattleik, júdói. fijálsum
íþróttum, sundi, skotfimi og lyftingum.
Keppni þessari var komið á fyrir til-
stuðlan Alþjóðaólympíunefndarinnar,
sem veitir styrki til þátttöku. Gisli
Halldórsson, formaður Ólympinefndar
íslands, og Bragi Kristjánsson, sem
verður fararstjóri, taka þátt í ferðinni
af hálfu Ólympíunefndar Islands.
Eftirtaldir keppa fyrir íslands hönd
á leikunum í Monaco í einstökum
greinmn.
Lið Islands í körfuknattleik
Pálmar Sigurðsson, Jóhannes Krist-
bjömsson. Jón Kr. Gíslason. Ivai-
Webster. Guðmundur Bragason, Torfi
Magnússon. Gvlfi Þorkelsson. Valur
Ingimundarson. Hreinn Þorkelsson.
Henning Henningsson, Hreiðar Hreið-
arsson og Magnús Matthíasson. Eftir
er að velja 10 af þessum 12 leikmönn-
um.
Lið íslands í frjálsum íþróttum
Jóhann Jóhannsson, Guðni Sigm'-
jónsson. Aðalsteinn Bemharðsson,
Pétur Guðmundsson, Svanhildur
Kristjónsdótth-, Oddný Ámadóttir og
Þórdís Gísladóttir.
Lið íslands í sundi
Magnús Ólafsson, Ingólfur Ámason,
Amþór Ragnarsson. Eðvarð Þór Eð-
varðsson, Bnmdís Ólafsdóttir. Hugrún
Ólafsdóttir, Helga Sigurðardóttir og
Ragnheiður Runólfsdóttir.
Lið íslands í skotfimi
Tryggvi J. Sigmannsson og Kristinn
Kristinsson.
Lið íslands í júdói
Ómar Sigurðsson, Karl Erlingsson,
Halldór Hafsteinsson og Sigurður H.
Bergmann.
Lið íslands i lyftingum
Haraldur Ólafsson og Birgir Borg-
þórsson.
-JKS