Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1987, Qupperneq 36
36 FIMMTUDAGUR 7. MAl 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Priscilla Presley á ekki sjö dagana sæla ef fyrri kona Marcos Garibaldi hefur rétt fyrir sér. Joann Nilsen var gift Garibaldi í eitt ár og fékk skilnað vegna þess að eiginmaðurinn sýndi henni ómælda andlega grimmd í hjónabandinu. Að sögn Joann breyttist kappinn strax eftir vígsluna úr aðlaðandi og tillits- sömum elskhuga í geðvondan og ofbeldishneigðan fúlhaus. Karl- greyið er víst ekki einn um að taka slíkum breytingum að hveiti- brauðsdögum loknum en Joann vildi ekki sætta sig við ástandið og reynir nú allt til þess að fá Priscillu til að taka til fótanna. Priscilla er ennþá kyrr og segist ekki hlusta á gamlar og grút- spældar fyrrum eiginkonur. k 'Ú ' Phyllis Gates hafði það af að vera eina konan sem Rock Hudson giftist á lífs- leiðinni og hefur nú fengist til að segja sitthvað um sæluna þeirra í milli. Rock var ótrúlega afbrýði- samur, átti til að gefa henni einn á lúðurinn i fjölmenni og vildi al- farið tala barnamál í svefnher- berginu. Phyllis reyndi á fá stjörnuna til að tala við sálfræðing en það varð árangurslaust. Þegar heimboð hjónanna voru svo ævinlega til karlmanna, sem sner- ust í kringum Rock eins og kettir við rjómaskál, hætti kerlu að lítast á blikuna. Steininn tók úr eitt kvöldið þegar hún kom að leikar- anum kviknöktum í svefnherberg- inu iðandi um gólfið eins og kvenmaður í melluhreiðri. Hún sótti um skilnað og yrti ekki á fyrr- um eiginmanninn nokkru sinni framar. Susan Hanes er öllum ógleymanleg sem lifðu af slysið þegar ferjan Herald of Free Enterprice sökk í hafið. Hún missti unnusta sinn í slysinu en lét það samt ekki stöðva sig í hjálparstörfunum. Flestir farþeg- anna misstu stjórn á sér og reyndi hver sem betur gat að bjarga eig'- in skinni - þannig að konur og börn gátu ekki vænst neinnar aðstoðar. Susan hélt ró sinni, reyndi að róa aðra farþega og tókst að bjarga fimm börnum frá drukknun. Börnin eru á aldrinum ellefu mánaða, átján mánaða, tveggja ára, fjögurra ára og níu ára og segja eftirlifendur að for- dæmi Susan hafi orðið til þess að sumir áttuðu sig og réttu nær- stöddum smábörnum hjálpar- hönd. Þegar börnin voru komin í hendur björgunarmanna hófst hún svo strax handa við að leita meðal likanna að unnustanum sem hún hafði ekki séð síðan ferj- unni hvolfdi. Búkbeygj ur Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: íslandsmeistaramótið í vaxtarrækt var haldið í Sjallanum á Akureyri síðastliðið sunnudagskvöld. Keppt var í nokkrum þyngdarflokkum. Mikill áhugi var á keppninni og voru ófá hrópin sem heyrðust frá áhorf- endum þegar búkarnir voru beygðir og teygðir. Þessi keppni hefur verið haldin í Broadway síðastliðin tvö ár en var í þetta sinnið farið norður heiðar til Akureyrar. Sigurður Gestsson, Akureyri, varð íslands- meistari karla þriðja árið í röð. Asdís Sigurðardóttir, Reykvíkingur, hreppti Islandsmeistaratitil kvenna en þetta er í fyrsta skiptið sem Asdís tekur þátt í Islandsmeistaramóti i íslandsmeistarar karla og kvenna i vaxtarrækt 1987 - Ásdis Sigurðardóttir frá Reykjavík og Sigurður Gestsson frá vaxtarrækt. Akureyri. Þetta er bakhluti búks Sigurðar Gestssonar - Vöðvar i heimskiassa hjá Valbirni Jónssyni frá Marta Unnar - meistari kvenna frá því í fyrra. sannkallaður stjörnuflokkur. Reykjavik en hann var helsti keppinautur meistar- ans. Skriö- jökla- stúdíó J.G. Haukson DV-Akureyri Hljómsveitin Skriðjöklarnir, sem gerði lagið Hesturinn vin- sælt síðastliðið sumar, er ekki af baki dottin. Þeir félagar, með Ragnar Gunnarsson (sót) í farar- broddi, eignuðust sitt eigið hljóðupptökuver að Óseyrargötu 6 á Akureyri nýlega. Að sögn Jöklanna er þetta mjög fullkomið hljóðupptökuver og ætla þeir að taka upp stóra tólf laga plötu á næstu dögum. Platan kemur á markaðinn í júlí. En það eru ekki aðeins Skriðjöklarnir sem ætla að nota verið, þetta er dýrt fyrir- tæki og því verður það leigt þeim sem vilja taka upp. „Ef þú skrifar um okkur, segðu að við séum milljónamæringar," sögðu Skriðjöklarnir þegar Sviðsljósið leit inn til þeirra á dögunum. Þrælhressir menn, Skriðjöklarnir, í hinu nýja og glæsilega upptökuveri sínu. Stóra platan kemur á markað í júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.