Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Fréttir
Tekjuöflun nkissjóðs eitt
erfíðasta ágreiningsmáiið
- Alþýðuflokkur og Framsóknaiflokkur samstíga gegn Sjálfstæðisflokki
Fyrstu aðgerðir í ríkisfíármálum,
peninga- og vaxtamálum, svo og skatt-
ar og önnur tekjuöflun ríkisins verða
með erfiðustu málum í stjómarmynd-
unarviðræðum Alþýðuflokks. Sjálf-
stæðisfiokks og Framsóknarflokks.
Það varð Ijóst eftir fundinn í gær.
Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur eru samstíga gegn Sjálfstæðis-
flokki í kröfum í þessum málaflokkum.
Sjálfstæðismenn tóku afar dræmt í
hugmyndir þeirra í gær. Það hefur
ekki orðið til að auka bjartsýni manna
um að úr verði ríkisstjórn. Til að levsa
þennan ágreining var ákveðið að setja
á stofn undimefnd.
Agreiningurinn er meðal annars um
það hversu stór skref eigi að stíga til
að rétta af halla ríkissjóðs og hvemig
afla eigi ríkissjóði þeirra tekna.
Hugmyndir Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks í skattamálum eru um
aukna skatta á atvinnui-ekstur. svo
sem með fækkun undanþáguákvæða.
Þeir tala einnig um hærri eignaskatt,
nokkuð sem sjálfstæðismenn em lítt
hrifnir af.
Athygli hefur vakið hversu samstíga
alþýðuflokksmenn og framsóknar-
menn em í ríkisfjármálum gegn sjálf-
stæðismönnum. Sneiðir Framsóknar-
flokkur með því að fjármálastjórn
Þorsteins Pálssonar.
I þessu sambandi er vert að gefa
gaum orðum sem Steingrímur Her-
mannsson lét falla eftir fund með Jóni
Baldvini Hannibalssyríi á miðvikudag.
Steingrímur sagðist halda að á milli
flokkanna tveggja væri ekki langt bil
í ríkisfjármálum eða félagsmálum.
Húsnæðiskerfið
Alþýðuflokkurinn hefur harðlega
gagnrýnt hvemig ríkisstjómin hefur
haldið á húsnæðismálum. Telur hann
flárþörf kerfisins stórlega vanáætlaða.
Hefur hann sett fram kröfu um kaup-
leiguíbúðir.
Kröfur Alþýðuflokksins f húsnæðis-
málum standa bæði í Framsóknar-
flokki og Sjálfstæðisflokki, sem
stendur fast á séreignarstefríunni. Er
ljóst að þetta verður þungt og erfitt
mál í stjómarmyndunarviðræðunum.
Lífeyrissjóðir
Alþýðuflokkurinn setur fram kröfu
um einn sameiginlegan lífeyrissjóð og
samræmd lífeyrisréttindi fyrir alla
landsmenn. Þingmenn flokksins fluttu
í vetur frumvarp um að þjóðarat-
kvæðagreiðsla skyldi fara fram um það
mál.
Þorsteinn Pálsson lýsti fyrir kosn-
ingar yfir andstöðu Sjálfstæðisflokks-
ins við þessar hugmyndir. I kosninga-
yfirlýsingu Sjálfstæðisflokksins er
boðað að starfsemi lífeyrissjóða og al-
mannatrygginga skuli endurskipulögð
með það fyrir augum að allir lands-
menn njóti sambærilegra lífeyrisrétt-
inda. Tryggt verði sjálfstæði einstakra
lífeyrissjóða.
Kosningastefriuskrá Framsóknai--
flokksins boðar samræmt lífeyris-
sjóðakerfi þannig að sjóðimir myndi
eina lífeyrisheild.
Menn búast ekki við að lífeyrismálin
verði eins erfið og húsnæðismálin.
Flokkamir tala allir um samræmingu
lífeyrisréttinda og að fjármagn lífeyr-
issjóðanna nýtist á heimaslóðum.
Landbúnaöur ekki útræddur
Þótt alþýðuflokksmenn hafi gleypt
búvömsamninginn er landbúnaðurinn
ekki útræddur. Búast má við að bæði
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur
muni reyna að sækja gegn Framsókn-
arflokki á um aukið ffjálsræði í
sölukerfi lanabúnaðarins.
Sjálfstæðismenn þrýsta á um frekari
þróun í frjálsræðisátt í viðskiptalífi.
Þeir fá stuðning Alþýðuflokks til að
ganga lengra en þeir komust með
Framsóknaiflokki.
I utanríkismálum er stefría þessara
flokka hvað líkust. Þó má búast við
röddum vinstra megin úr Framsóknar-
flokki um betri undirtektir við kröfu
um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd
og skyld mál.
I viðræðunum við Kvennalista virt-
ust Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur hafa komið sér niður á leið til
að bæta hag þeirra sem verst hafa
kjörin. Er ekki að sjá að þessi mála-
flokkur verði erfiður í viðræðunum nú.
Kvótakerfið er þverpólitískt mál.
Afstaða manna til þess fer fremur eftir
því úr hvaða kjördæmi þeir koma.
Allir flokkar eru opnir fyrir lagfæring-
um en ekki er talið að kröfum um
grundvallarbreytingar verði haldið
lengi á lofti. -KMU
Seðlabankinn viii ekki gengisfellingu:
Uppgjöf að fella gengið
- segir Bjami Bragi Jónsson aðstoðarbankastjóri
Margir hagfræðingar óttast nú að
gengislækkun sé framundan. Eins
og skýrt var frá í DV í gær er sagt
í hagfræðiritinu Vísbendingu að það
liggi í augum uppi „að gengislækkun
krónunnar sé framundan til að
draga úr frekari halla á viðskiptum
við útlönd." Eins sagði Sigurður B.
Stefánsson, framkvæmdastjóri Verð-
bréfamarkaðs Iðnaðarbankans h£, í
blaðagrein í gær að nú gerðist „æ
áhættusamara að halda gengi krón-
unnar föstu áfram.“
Seðlabankamenn virðast hins veg-
ar alls ekki vera á þeim buxunum
að fella gengið, ef marka má um-
mæli Bjama Braga Jónssonar,
aðstoðarbankastjóra Seðlabankans,
í samtali við DV í gær. „Það væri
óþarfi og alger uppgjöf ef gengið
væri fellt. Það eru til íjölmargarleið-
ir til að takast á við þann vanda sem
er fyrir hendi ef menn eru ekki í
vinsældaleit heldur ætla sér að ná
tökum á efnahagsmálunum.
Gengisfellingin er einfaldlega eng-
in lausn. Hinir einstöku þættir
efnahagslífsins þurfa að vera í skap-
legu jafrívægi innbyrðis og vanda-
málið eru ríkisfjármálin. Fyrir alla
meginhluta atvinnuveganna er
gengið hins vegar í lagi.
Okkar afstaða er að þetta sé um-
frameftirspumarhalli. Það er stað-
reynd að skuldastaða ríksins er
orðin ákaflega slæm. Það er alger
nauðsyn að takast á við þann vanda.
Því held ég að ef menn virkilega
beina sjónum sínum að því að leysa
vandann muni gengisfelling ekki
verða nauðsynleg. Ef ekkert verður
að gert má hins vegar gera ráð fyrir
að eftirspumin þiýsti á gengið og
veikji það og einnig er hugsanlegt
að háir vexir hafi sömu áhrif. En að
gengisfelling sé einhver lausn er
ákaflega frumstætt viðhorf. Menn
verða að fara að átta sig á því að
það eru til fleiri en ein hagstjómar-
aðferð,“ sagði Bjami Bragi Jónsson,
aðstoðarbankastjóri Seðlabankans.
Þeir hagfræðingar, sem rætt var
við í gær, voru sammála um að
ástæðan fyrir þessari umræðu nú um
gengisfellingu væri sú braut sem
mönnum sýndust stjómarmyndun-
arviðræðurnar hafa snúist að sumu
leyti inn á.
Talið er að grípa þurfi ti! harka-
legra aðgerða í ríkisfjármálum í því
skyni að rétta stöðu ríkissjóðs af. í
stað þess hafa stjómarmyndunarvið-
ræðumar snúist hingað til að miklu
leyti um aukin útgjöld. Því höföu
menn áhyggjur af því að ekki yrði
gripið til nauðsynlegrar aðhaldssemi
heldur vandinn jafnvel aukinn.
Þetta myndi að þeirra mati óhjá-
kvæmilega kalla á gengisfellingu.
Hvort nýhafiiar stjómarmyndun-
arviðreeður Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks
verða þessu marki brenndar er hins
vegar ekki ljóst enn.
-ES
Útvegsbankamálið:
Sævar Haraldsson og Kjarni. DV mynd E.J.
Kjami skaust í
efsta sætið
Hvítasunnukappreiðar Fáks hófust
í gær með keppni i B flokki. í dag
verður keppni í A flokki og á morgun
góðhestakeppni barna og unglinga og
kappreiðar. Á mánudaginn verða úr-
slit kappreiða, úrslit í A og B flokki
góðhesta og verðlaunaafhending.
Nokkrir hestar skám sig úr í B flokks
keppninni í gær. Það var Kjami Har-
alds Sigurgeirssonar, sem Sævar sonur
hans sýndi. Kjarni stendur efstur
þeirra fimm hesta sem fara i úrslita-
keppnina en þeir em þessir:
B flokkur gæðinga Einkunn
1. Kjarni Haraldar Sigurgeirssonar
8,72
Knapi Sævar Haraldsson
2. Brjánn Sigurbjöms Bárðarsonar
8,67
Knapi eigandi
3. - 4. Stelkur Ragnars Petersen 8,58
Knapi eigandi
3. - 4. Stjömublakkur Rögnu Boga-
dóttur 8,58
Knapi Reynir Aðalsteinsson
5. Isak Sigurbjörns Bárðarsonar 8,37
Knapi Hafliði Halldórsson. E.J.
Hallvarður vanhæfur
- vegna setu bróður hans í bankaráði
Meirihluti Hægtaréttar vísaði í gær
frá Sakadómi ákærum á hendur sjö
fyrrum bankastjórum Útvegsbanka
íslands vegna vanhæfis ríkissaksókn-
ara, Hallvarðs Einvarðssonar, í
málinu. Er Hallvarður talinn van-
hæfur vegna setu bróður hans í
bankaráðinu en enginn bankaráðs-
maður var ákærður.
Þá staðfesti Hæstiréttur í gær dóm
Sakadóms um að ekki væri rétt að
kveðja þá Hallvarð Einvarðsson og
Albert Guðmundsson til að gefa vitna-
skýrslu fyrir dómi og upplýsa þar um
samskipti sín og lánveitingar til Hall-
varðs úr Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins en Hallvarður fékk sem kunn-
ugt er lán af svokölluðum „ráðherra-
kvóta" lífeyrissjóðsins fyrir milligöngu
þáverandi fjármálaráðherra.
í kröfugerð lögmanna bankastjóra
Útvegsbankans segir að þau tengsl
sem vom milli ríkissaksóknara og
Alberts Guðmundssonar og Jóhanns
Einvarðssonar hafi verið þess eðlis að
ríkissaksóknari sé vanhæfur til að
taka ákvörðun um ákæm í málinu og
Hallvarður hafi af sömu ástæðu verið
vanhæfur til að stýra rannsókn máls-
ins sem rannsóknarlögreglustjóri
ríkisins.
Dóm Hæstaréttar kváðu upp hæsta-
réttardómararnir Magnús Thorodd-
sen, Guðrún Erlendsdóttir, Gaukur
Jömndsson og Guðmundur Jónsson.
Halldór Jónsson skilaði hins vegar
sératkvæði í málinu.
Samkvæmt lögum á dómsmálaráð-
herra nú að skipa sérstakan saksókn-
ara í málinu sem tekur ákvörðun um
áframhaldið, hvort rannsaka eigi mál-
ið frekar og hvort og þá hverja eigi
að ákæra.
Samkvæmt upplýsingum DV er
þetta í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins
sem ríkissaksóknari er dæmdur van-
hæfur til meðferðar opinbers máls.
-ój
Waldheim tilnefndur
til friðarverðlauna
Kurt Waldheim, forseti Austurríkis
sem undanfarna mánuði hefur sætt
harðri gagnrýni vegna meintrar þátt-
töku hans í ógnarverkum nasista í
síðari heimsstyijöldinni, hefur verið
tilnefrídur til friðarverðlauna Nóbels.
I frétt í norska fréttablaðinu Dag-
bladet, í morgun segir að Waldheim
sé meðal þeirra sem tillögur hafa bo-
rist um sem friðarverðlaunahafa árið
1988. Hefur blaðið þetta eftir heimild-
armönnum í friðarverðlaunanefrídinni
og segir jafnframt að tilnefningin hafi
borist frá Hans Koechlcr, prófessor í
stjómmálaheimspeki við háskólann í
Innsbruck. fjy
Mikil vopnalen er Norræna kom
Lögreglan á Seyðisfirði sagði að
þegar Norræna lagðist að bryggju á
Seyðisfirði um klukkan átta í gær-
morgun hefði hafist nákvæm leit á
komufarþegum. Alls komu um 300 far-
þegar með skipinu og 80 til 100 bílar.
Leitin stóð í fimm klukkustundir.
Auk lögreglunnar á Seyðisfirði voru
við leitina lögreglumenn frá Egilsstöð-
um, vegalögreglunni og útlendingaeft-
irlitinu. Ekkert ólöglegt fannst.
Á milli fjögur og fimm hundruð far-
þegar fóru með skipinu út.
-sme