Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
7
Atviimumál
Hiti í Kína og Tíbet:
Þorsteinn ræð-
ir við Zhu Xun
Á döfinni er að íslenskir jarðvís-
indamenn og jarðhitasérfræðingar
taki að sér veruleg verkefni í Kína og
Tíbet. Hér er stödd sendinefnd að aust-
an og hafa þeir Þorsteinn Pálsson
iðnaðarráðherra og Zhu Xun, jarð-
fræði- og jarðauðlindaráðherra
Kínverja, átt vinsamlegar samræður
um þessi mál.
Sérstök sendinefnd iðnaðarráðu-
neytisins fÓB til Kína fyrir ári og
kynnti hún sér meðal annars jarð-
hitamál í Tíbet og Tjanjin. 1 framhaldi
af því var staðfest viljayfirlýsing um
gagnkvæmar heimsóknir til þess að
fjalla um hugsanleg verkefni, um þjálf-
un fleiri kínverskra nemenda í Jarð-
hitaskóla Sameinuðu þjóðanna hér á
landi og loks um sérstök rannsóknar-
verkefhi og áætlanagerð við jarðhita-
virkjun Islendinga í Kína.
Þetta var áréttað í heimsókn Stein-
gríms Hermannssonar til Kína. Ferð
Kínverjanna hingað nú er liður í því
að koma fyrirhuguðum samskiptum á.
-HERB
Samskiptaörðug-
leikar í kaupfélaginu?
„Þessi nýi kaupfélagsstjóri kom fyrir
2 árum þegar kaupfélagið var mjög
illa statt. Hann ætlaði heldur betur
að redda málunum og gerir 'það með
því að reka fólk eða gera því ómögu-
legt að starfa. Virðist hann njóta
dyggrar aðstoðar sumra heima-
manna, einkum oddvitans," sagði
Viggó Einarsson, fyrrverandi starfs-
maður Kaupfélags Skaftfellinga.
Um nokkurn tíma virðist hafa ver-
ið um samskiptaörðugleika að ræða
í kaupfélaginu í Vík í Mýrdal og
nokkur kurr verið í mönnum. „Eg
er ekki eina dæmið, þetta hefur snert
10-12 manns og menn hafa fengið
nóg. Ég tók við rekstri Víkurskálans
og átti að reka hann fram í júní og
sýna fram á hagnað. Hann var rétt-
um megin við strikið hjá mér sem
er ekki auðvelt á þessum árstíma.
Samt átti að láta mig hætta og ég
var sakaður um að stela vinnutíma
fyrir mig og starfsfólk mitt, tíma-
fjöldinn væri óeðlilega mikill. Þá
fékk ég nóg.“
Hagræðing í rekstri
„Þegar ég tók við stefndi fast í
gjaldþrot, meðal annars vegna þess
að kaupfélagið var ofmannað. Til að
ná fram hagræðingu í rekstri ýmissa
deilda varð að láta eitthvað af fólki
hætta,“ sagði Friðbjörn Níelsson
kaupfélagsstjóri. Friðbjörn vildi ekki
kannast við neitt ósætti meðal sinna
starfsmanna né almennan kurr í
bænum.
„Þetta eru sárindi af hálfu manna
sem ekki hafa uppfyllt þær kröfur
sem gerðar hafa verið til þeirra.
Viggó var ráðinn vegna mikils þrýst-
ings um að taka hann inn og þá í
stuttan tíma, sem ekki er venjulegt.
Hann stóð sig ekki.“
-JFJ
Látúnsbarkinn góði, unninn af Jóni
Snorra á gullsmíðaverkstæði Jens
Guðjónssonar.
DV-mynd Brynjar Gauti
Látúns-
barka-
lertinni
lokið á
Vest-
fjörðum
Um helgina var haldin fyrstu
undanúrslit í keppninni á vegum
Stuðmanria og ríkissjónvarpsins
um látúnsbarkann, sem er að sögn
mesta stjörnuleit síðan leitin var
gerð að kvenhetjunni í kvikmynd-
inni „Gone with the wind“.
Fyrstu undanúrslitin voru á
Vestfjörðum; á Patreksfirði og í
Hnífsdal. Sigurvegarinn á Patreks-
firði var ungur Tálknfirðingur ,
Jóhann Jónsson að nafni. Jóhann,
sem er starfsmaður Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar, hlaut 82 stig af 100
mögulegum.
A Hnífsdal sigraði eini fulltrúi
kvenþjóðarinnar, Málfríður
Hjaltadóttir. Hún hlaut einnig 82
stig af 100 mögulegum. Vegna þess
að aðeins einn fulltrúi frá hverju
kjördæmi kemst í úrslit í sjón-
varpssal þann 5. júlí varð að varpa
hlutkesti milli Jóhanns og Málfríð-
ar. Upp kom hlutur Jóhánns
Tálknfirðings og verður hann því
fulltrúi Vestfjarðakjördæmis í úr-
slitum látúnsbarkakeppninnar.
Til undanúrslita í keppninni velj-
ast þeir fimm er fyrst láta skrá sig
á hverjum stað. Tveir keppnisstaðir
eru í hverju kjördæmi og að sögn
Jakobs Magnússonar stuðmanns
eru enn laus sæti í undanúrslitum.
PV
1ft
Fhig og bíll
í Amsterdam
- og öll Evrópa
er þér opin
Þegar þú ert stiginn upp í
bílaleigubíl í Amsterdam átt þú
greiða leið um alla Evrópu.
Bílaleigubílar eru ódýrari í
Amsterdam en í öðrum borgum
og því er hentugt að fara þangað
hvort sem um er að ræða stutta
viðskiptaferð eða lengri
sumarleyfisferð með alla
Qölskylduna.
Bílaleiga sú sem Arnarflug skiptir
við er Interrent, stórt og traust
fyrirtæki með þjónustustöðvar um
alla Evrópu.
Verð frá kr. 12.810
miðað við hjón með 2 börn í viku.
Bifreið: Ford Fiesta.
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, sími84477
rvo’; •
s\ð°sta,vs^
SÖ09>S\ 0rri \>r'ú . ör
\,0r S!^súe't0Í' V^&t ° \ac\91
VrcA' fyr^0 ,c *** rr^
BYRJAR í EVRÓPU!
Það má til sanns vegar færa að allt byrji í
EVRÓPU. Fjölmörg hjónabönd hafa byrjað í
EVRÓPU. Um næstu helgi byrjar tónleikaferð
Mezzoforte í EVRÓPU og í kvöld byrjar
pottþétt hvítasunnuhelgi! Ath. aðeins opið til
kl. 23.30 annað kvöld - laugardagskvöld.