Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Side 9
FÖSTUDAGUR 5. JUNÍ 1987.
9
Utlönd
y tt
.
Margaret Thatcher er nú spáð áttatíu sæta meirihluta á þingi,
Simamynd Reuter
Bob Hawke, forsætisráðherra Astralíu, kveðst öruggur sigurvegari kom-
andi kosninga þar i landi. Símamynd Reuter
Efnahagsstefna
Hawkes vinsæl meðal
kaupahéðna
Kaupahéðnar í Ástralíu veita Bob
Hawke forsætisráðherra ótvíræðan
stuðning. Er það niðurstaða skoð-
anakönnunar sem fjánnálatímant
lét gera í tilefni kosninganna sem
haldnar verða þann 11. júlí næst-
komandi.
Helmingur kaupahéðnanna sagði
efnahagsstefnu Verkamannaflokks
Hawkes traustvekjandi en aðeins
þrettán prósent studdi stefriu stjóm-
arandstöðunnar í efriahagsmálum.
Stjómarandstaðan sundraðist fyr-
ir tveimur mánuðum er sambands-
stjóri Queenslands, Bjelke-Petersen.
reyndi að afla Þjóðarflokki sínum
meiri stuðnings. Hann dró sig úr
baráttunni fyrr í þessari viku og
reyna nú Fijálslyndi flokkurinn og
Þjóðarflokkurinn enn á ný að standa
saman gegn Verkamannaflokknum.
Aukið fylgi íhaldsflokksins
Skoðanakönnun breska blaðsins
Guardian sem birt er í dag, sýnir að
íhaldsmenn njóta nú stuðnings 44 pró-
senta kjósenda, verkamannaflokkur-
inn er með 34 prósent og kosninga-
bandalagið 20 prósent.
Greint var frá niðurstöðu skoðana-
könnunarinnar fyriríram í gær,
skömmu eftir að sex milljörðum punda
var kippt burt af hlutabréfamarkaðn-
um eftir að orðrómur barst um aðeins
tveggja prósenta meirihluta íhalds-
flokksins.
Samkvæmt þessum nýjustu tölum
hlyti Margaret Thatcher forsætisráð-
herra, áttatíu sæta meirihluta á þingi.
Er þessi niðurstaða samkvæmt því sem
spáð var áður en kosningabaráttan
hófst en skoðanakannanir síðustu
daga hafa gefið til kynna að bilið milli
íhaldsflokksins og Verkamanna-
flokksins færi stöðugt minnkandi.
Kaupmannahafnarbúum þykir ónotalegt að halda kjötkveðjuhátið i kalsaveðri og hafa að þessu sinni ákveð-
ið að biða til hvitasunnu.
Skarpari
skil í dönsk-
um stjómmálum
Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmaraiahö&u
Lokaumræður áttu sér stað í danska
þinginu á miðvikudag. Einkenndust
þær mjög af komandi kosningum sem
boðað verður til við opnun þingsins í
október og líklega verða í nóvember.
Reyndu flokkarnir að hrósa sér fyrir
afrek sín á kjörtímabilinu og gera lítið
úr verkum annarra flokka.
Þegar á heildina er litið virðast vera
skarpari skil í dönskum stjómmáhmi
nú en áður. Er um að ræða hægri og
vinstri blokkir. Stjómarflokkamir
standa ásamt stuðningsflokki sínum.
Róttæka vinstn flokknum. og með
Framfaraflokkinn til hægri. Hefur
Róttæki vinstri flokkurinn lofað
áframhaldandi stuðningi sinum við
stjórnina þannig að ekkert verður um
samstarf yfir miðjima. það er við jafn-
aðarmenn.
Jafhaðamienn og sósíalistar virðast
hafa náð saman og segjast vera sam-
mála um níu af tíu atriðum er sett
verða á oddinn í kosningabaráttunni.
Vinstri flokkamir munu aðallega
boða úrbætur á hinni félagslegu
skekkju sem orðið hefur á valdatíma
ríkisstjómarinnar þar sem bilið milli
ríkra og fátækra hefur síaukist.
Poul Schluter forsætisráðherra
hafnar slíku tali og segir viðskiptavini
félagsmálastofnananna aldrei hafa
verið færri en nú. Virðist hann ætla
að heyja sína kosningabaráttu með
því að vara fólk við rauðri stjóm, ef
slík stjóm kæmist til valda yrði allt
jafnslæmt og fyrir 1982 þegar jafhaðar-
menn vom við völd.
Svo virðist sem Poul Schluter, (orsæt-
isráðherra Danmerkur, muni i
komandi kosningabaráttu vara fólk við
rauðri stjóm.
Reyndar er ekki friður á stjómar-
heimilinu og ber þar hæst átök vinstri
manna, sem em talsmenn bænda og
kristilegra, og talsmanna umhverfis-
vemdar um umhverfisvemd og þá
sérstaklega þátt bændanna. Þarf
Schluter að koma á ró fyrir nýtt þing
í haust.
í þingumræðunum á miðvikudag
kom fram tillaga frá vinstri flokkunum
um kosningar nú en hún var felld.
Verður sumarið heitt í meira en einum
skilningi fyrir danska stjómmála-
menn. Komandi kosningabarátta mun
án efa skerða sumarfrí margra þeirra.