Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Útlönd
Átökin á Sri Lanka geta
skipt sköpum fyrir S-Asíu
Hermenn á Sri Lanka lyfta særðum félaga sínum um borð i herflugvél. Hann var einn fjörutíu hermanna sem
særðust er skæruliðar tamíla réðust á herbækistöð á Jaffna. Þrír hermenn biðu bana. - Simamynd Reuter
Jón Onruir HaMóissan, DV, Landon;
Síðast í þessari viku birtust í blöð-
um í Evrópu auglýsingar þar sem
fólk er hvatt til að heimsækja para-
dís á jörð. Þetta eru leifar af margra
ára auglýsingaherferð flugfélagsins
á Sri Lanka.
Slagorðið um paradís var heldur
ekki gripið úr lausu lofti því þessi
litla eyja við suðurodda Indlands
hefur verið kölluð paradís í margar
aldir af þeim sem þangað hafa farið
en gamlar sögur herma að aldin-
garðurinn Eden hafi verið þar sem
nú skilur sjór milli Indlands og skag-
ans Jaffha sem flestir munu nú
þekkja af verri tíðindum.
Á Sri Lanka aðhyllast menn líka
þau tvenn trúarbrögð heims sem
umburðarlyndust eru. það er búdda-
trú og hindúatrú. Meirihlutinn
aðhyllist búddatrú sem kennir mein-
leysi afdráttarlausar en nokkur
önnur trúarbrögð. Frá Sri Lanka
berast nú hins vegai' daglegar fréttir
af hroðalegum fjöldamorðum, blóð-
hefndum og bardögum.
Fluttir af Bretum
Það mun enn þá vera friðsamlegt
um að litast á miðhálendi Sri Lanka
þar sem hundruð þúsunda tamíla
vinna við hlið singhalesa á víðáttu-
miklum plantekrum þar sem ræktað-
ur er fimmtungur alls þess tes sem
drukkið er í heiminum.
Bretar fluttu þessa tamíla frá Suð-
ur-Indlandi til þess að láta þá tína
te fyrir markaðinn í London. Tam-
ílar höfðu flutt í nokkrum mæli áður
til eyjarinnar en eins og víðast hvar
um heiminn þar sem kynþáttadeilur
hafa blossað upp má rekja rætur
vandræðanna til afskipta evrópsku
stórveldanna á síðustu öld.
Á Sri Lanka búa nú um sautján
milljónir manna og þar af eru aðeins
þrjár milljónir tamíla frá Indlandi
en þeir tala annað mál, líta öðruvísi
út og stunda önnur trúarbrögð en
meirihlutinn. Fyrir utan þessa tvo
hópa er svo hálf önnur milljón ísl-
amskra tamíla sem byggja einkum
eyjuna að austanverðu en þó þeir
séu flestir tamílar að uppruna standa
þeir við hlið singhalesa í borgara-
stríðinu og vilja ekki sjálfstætt ríki
tamíla.
Barist á Jaffna
Eyjan er lítil, aðeins sextíu og sjö
þúsund ferkílómetrar að stærð eða
eins og tveir þriðju af Islandi. Tam-
ílar hafa á síðustu árum safnast í
auknum mæli til nyrsta héraðs eyj-
arinnar en talsverður fjöldi þeirra
býr þó á eyjunni austanverðri og
vilja baráttumenn fyrir sjálfstæðu
ríki tamíla sameina norðurhéruð við
austurhéruð en ganga með þvi gegn
meirihluta íbúa þeirra héraða. Sjálf-
stæðisbaráttan hefur ekki náð til
miðhluta eyjunnar.
Það er á Jaffhaskaganum, sem er
nyrsti oddi Sri Lanka, þar sem nú
er barist og heita má að allir íbúar
skagans séu nú tamílskir. Skaginn
er mjór, sums staðar eins og eyri,
og ekki lengri en sjötíu kílómetrar.
Flóttamenn hafa streymt til skagans
og þama mun búa um ein milljón
manna, fólk króað inni af herjum
stjómarinnar og skæmliða. Þessu
fólki vildi stjórnin á Indlandi hjálpa
með matarsendingum sem snúið var
við í fyrradag.
Það er þó varla fyrst og fremst af
mannúðarástæðum að indverska
stjórnin lék þann áhættusama leik
að efna til þessarar ferðar sem svo
ekki var farin. Sundið, sem skilur
milli Jaffna og Indlands, þar sem
sögð er áður hafa staðið paradís
Biblíunnar, er mjótt svo fara má yfir
það á fáum klukkutímum á hægfara
báti.
Stjórnirnar áhyggjufullar
Norðan þess búa sextíu milljónir
tamíla í fylkinu Tamílnadu sem er
eina fylkið á Suður-Indlandi þar sem
Kongressflokkur Rajivs Gandhi á
einhvem hlut að stjóminni. í fylkinu
þar við hliðina, Kerala, þar sem þrjá-
tíu milljónir manna búa, náðu
kommúnistar meiri hluta á þingi í
nýlegum kosningum og norður af
þessu fylki er svo Andra Pradesh þar
sem sextíu milljónir manna búa und-
ir stjóm mjög andvígri Kongress-
flokknum.
Allir þessir kjósendur valda ind-
versku stjóminni áhyggjum. Um leið
veldur allt þetta mannfólk, tvö
hundmð milljónir manna á Suður-
Indlandi, fólk skylt tamílum og
trúbræðrum þeirra, stjóminni i
Colombo ekki litlum áhyggjum enda
em íbúar Sri Lanka færri en flestra
fylkja Indlands sem nú telur meira
en sjö hundruð og fimmtíu milljónir
manna.
Ógnunin að norðan hefur gert
meira en flest annað til þess að
þjappa saman singhalesum en mikil
ólga hefur ríkt að undanfomu í
stjórnmálum landsins. Hefur stjóm-
in síður en svo verið föst í sessi
síðustu mánuði. Þingræði hefur ver-
ið á Sri Lanka allt frá því að landið
fékk sjálfstæði frá Bretlandi fyrir
tæplega fjömtíu árum.
Áhrifamikil átök
Þó að stjómin á lndlandi hafi
vegna pólítískra aðstæðna stjómar-
flokksins heima fyrir tekið afstöðu
með tamílum á síðustu dögum er
Indlandsstjórn sennilega mjög í mun
að ekki komi til stofnunar sjálfstæðs
ríkis tamíla á Sri Lanka. Ástæðan
fyrir því er sú að í einum átta hémð-
um Indlands í það minnsta fer fram
öflug barátta fyrir aðskilnaði frá
Indlandi. Er stjóminni umhugað um
að fólk fái ekki siðferðilegan stuðn-
ing vegna sundurlimunar Sri Lanka
í sjálfetæð ríki.
Það er hins vegar mikilvægt fyrir
stjórnina að um leið og hún heyr
baráttu við aðskilnaðarsinna í aust-
ur- og vesturhémðum Indlands eftir
að hafa tapað fyrir kommúnista-
flokki landsins í Kerala og Vestur-
Bengal þá haldi stjómarflokkurinn
áhrifum á Suður-Indlandi. Ef ekki
er Kongressflokkurinn úr sögunni
sem sameiningartákn um landið allt.
Átökin á Sri Lanka munu því hafa
veruleg áhrif á framvindu mála um
alla Suður-Asíu, það heimssvæði sem
áður var breska Indland og nú eru
heimkynni meir en eins milljarðs
manna.
Engar friðarhorfur
í El Salvador
Með grjótkasti mótmæltu námsmenn í San Salvador skotárás á leiðtoga
stéttarfélags kennara á sunnudaginn en hann hafði tekið þátt í mótmæla-
aðgerðum fyrir utan fangelsi í höfuðborginni. Fullyrtu námsmenn að
stjórnin, sem nýtur stuðnings Bandarikjanna, stæði á bak við atburðinn.
- Símamynd Reuter
Jose Napoleon Duarte hefur verið
við völd í E1 Salvador í þrjú ár.
Hann hefur þó ekki getað staðið við
kosningaloforð sín um frið og hag-
sæld í landinu.
Rúmlega sextíu þúsund manns
hafa fallið í stríðinu við skæruliða
sem staðið hefur í átta ár. Almenn
Hart er nú vegið að forseta El
Salvador, Jose Napoleon Duarte,
vegna úrræðaleysis hans.
óánægja ríkir vegna eínahags lands-
ins sem er í rúst og vonir um þjóð-
félagslegar umbætur eru að engu
orðnar.
í ræðu, er Duarte hélt á þingi í
síðustu viku, fór hann orðum um
slæman efhahag landsins og hvatti
skæruliða til þess að leggja niður
vopn. Þykir ræða forsetans einungis
staðfesta úrræðaleysi hans og hefur
henni helst verið líkt við baráttu-
ræðu. „Þetta var sama gamla
tuggan. Ekki er um neina stefhu að
ræða sem gæti breytt ástandinu í
E1 Salvador," segja vestrænir stjóm-
arerindrekar þar í landi.
Mótlæti
Duarte átti við mikið mótlæti að
stríða á síðasta ári. Jarðskjálftar
ollu miklum skemmdum í höfuð-
borginni, íhaldssamir kaupsýslu-
menn beindu spjótum sínum að
forsetanum, hægri flokkamir reyndu
að hvetja til uppreisnar hersins og
verkalýðshreyfingunni óx fiskur um
hrygg.
Það var 1984 sem Duarte var kjör-
inn forseti landsins, sá fyrsti borg-
aralegi í fimmtíu ár. Lá þá nánast
við stjómleysi vegna styrjaldar og
undirokunar.
Samkvæmt bandarískum upplýs-
ingum er þriðji hluti vinnufærra í
E1 Salvador atvinnulaus. Nauð-
synjavömr hafa hækkað um þrjátíu
prósent og meðalárslaun em 864
dollarar. Viðskiptamenn fara fram á
lægri skatta og einkarekstur banka.
Auk þess krefjast þeir að ríkið hætti
eftirliti með útflutningi á kaffi og
sykri. Þeir heimta einnig gengisfell-
ingu en Duarte hefur lýst sig
andvígan henni. f viku hverri flykkj-
ast verkamenn út á strætin og
krefjast vinnu eða launahækkunar.
Bandarískur stuðningur
Herinn, sem Bandaríkjamenn hafa
þjálfað og stutt Qárhagslega, kveðst
hafa stöðvað sókn skæmliða. Þeir
unnu aftur á móti meiri háttar sigur
í mars þegar þeir réðust á bækistöð
hersins í E1 Paraiso. Rúmlega sextíu
hermenn féllu ásamt bandarískum
hemaðarráðgjafa. Skömmu eftir að
herinn lýsti því yfir að allir skæmlið-
ar hefðu verið hraktir burtu frá
svæði kringum virki hersins í norð-
austurhluta landsins gerðu skæm-
liðar árás þar.
Samt sem áður er stuðningur
Bandaríkjanna við stjóm Duartes
meiri en nokkm sinni. Á þessu ári
nemur fjárhagslegur stuðningur
þeirra sjö hundmð og sjötíu milljón-
Um dollara.
Friður langt undan
Friðarviðræður við uppreisnar-
menn hafa þrisvar farið út um þúfur.
Duarte hafhaði nýlega tillögu
skæmliða um að gera styrjöldina
„mannlegri" með því að reyna að
koma í veg fyrir að óbreyttir borgar-
ar verði fómarlömb hennar. Einnig
'stungu skæruliðar upp á nýjum við-
ræðum.
Báðir aðilar standa fast við sitt.
Skæmliðar fara fram á þátttöku í
stjórninni og telja það vænlegustu
leiðina til þess að sætta stríðandi
öfl. Stjómarerindrekar em sammála
um að ástandið í landinu fari versn-
andi og friðarviðræðna sé ekki að
vænta næstu tvö árin.