Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Neytendur
DV
Husgögn i garðinn
Nú þegar sólin lætur sjá sig dag eft-
ir dag fannst okkur sem ekki væri úr
vegi að athuga hvar hægt væri að fá
garðhúsgögn og hvað þau kostuðu.
Við hringdum því á nokkra staði til
að fá þessar upplýsingar.
í Seglagerðinni Ægi er mikið úrval
af garðhúsgögnum. Hægt er að kaupa
þau í settum en einnig má fá keypt
einstök húsgögn úr flestum settunum.
Settin kosta frá kr. 10 þúsund þau
ódýrustu upp í kr. 24 þúsund þau dýr-
ustu.
Ef menn vilja kaupa einstaka hluti
kosta borðin írá rúmum þrjú þúsund
krónum upp i rúmar fimm þúsund.
Hver stóll kostar frá kr. 2.500 upp í
kr. 4.100. Sófar kosta um fjögur þúsund
krónur. Öll húsgögnin eru úr tré.
í Miklagarði fást sólstólar og bekk-
ir. Þeir eru úr jámgrind sem á er
strengdur dúkur. Hver stóll kostar kr.
1.990 og svefnbekkur kostar kr. 3.990.
Borð eru ekki til þessa stundina en
eru væntanleg á næstunni.
í IKEA fást einnig garðhúsgögn.
Þau eru seld stök og kosta stólar kr.
840-1.200. þriggja sæta sófar kr. 3.490,
borð kr. 1.470-2.890. Fyrrnefndu borð-
in em kringlótt og úr jámi en þau
síðamefhdu með sporöskjulagaðri tré-
plötu.
Verslunin Bústofn í Kópavogi býður
mikið úrval garðhúsgagna. Húsgögnin
em ýmist úr fum eða hvítmáluðu
járni. Þau em seld í settum eða í
lausu. Ódýrasta settið kostar kr. 9.500
Garðhúsgagnasett hjá Seglagerðinni Ægi kosta frá kr. 10 þúsundum og upp í
24 þúsund.
I Seglagerðinni Ægi er mikið úrval af garðhúsgögnum.
DV-mynd Brynjar Gauti
• ' jfíf ? m
1 * 1 "'&SM
en í því er borð, tveir stólar og sófi.
Séu húsgögnin keypt í lausu kostar
stóll frá kr. 940 til kr. 4.100, borð frá
kr. 2.400-6.700, og sófi frá kr. 3.400 til
kr. 8.900.
Einnig hefur verslunin á boðstólum
sólhlífar sem kosta kr. 2.950 og gas-
grill á bilinu 24-29 þúsund krónur.
í Hagkaup fást garðhúsgögn úr mál-
uðu jámi. Þau fást ýmist í settum eða
lausu og eru á ýmsu verði. Þannig
kostar borð með fjómm stólum kr.
2.879 og borð með tveimur stólum og
tveimur kollum kr. 2.679.
Stakur stóll kostar 679-1989 og koll-
ur kostar kr. 329. Einnig fást legu-
bekkir og kosta þeir kr. 1.989.
-PLP
Hátíðarterta
Marengs með þeyttum rjóma og hnausþykku súkkulaði er ekki beint hitaeiningasnautt en við skeytum ekki um
það um helgina.
Þessi hátíðarterta, sem við rák-
rnnst á í norsku blaði, freistaði okkar
og er tilvalin sem eftirréttur um
hvítasunnuna, nú eða með kvöld-
kaffinu. í tertuna fer eftirfarandi:
Botninn
4 eggjahvítur
2 dl sykur
2 matskeiðar kartöflumjöl
'A tsk. hjartarsalt
Fyllingin
1 stór banani
4 dl þeyttur rjómi
1 dl bananalíkjör
Fersk ber eða frosin
Súkkulaðisósan
1 dl kakó
1 dl sykur
1 dl vatn
2 msk. smjör
Þeytið eggjahvítumar mjög vel.
Látið sykurinn og kartöflumjölið
varlega út í og síðast hjartarsaltið.
Teiknið tvo hringi á bökunarpappír
sem lagður er ofan á plötu úr ofnin-
um. Hafið botnana um það bil 25 cm
í þvermál. Smyrjið þá marengs jafnt
á botnana. Bakið þá við 150°C hita
þangað til botnamir em lausir frá
og vel þurrir. Takið þá varlega af
bréfinu og kælið.
Blandið svo öllu sem í sósuna á
að fara í pott. Hitið og sjóðið í nokkr-
ar mínútur og hrærið stöðugt í á
meðan.
Þeytið rjómann stífan og bætið
bananalíkjömum út í. Skerið banan-
ann í þunnar sneiðar og látið ofan
á annan botninn. Smyrjið þá helm-
ingnum af rjómanum yfir bananana
og botninn. Látið svo hinn botninn
yfir og smyrjið afganginum af rjóm-
anum yfir hann. Raðið berjunum
ofan á og rétt áður en tertan er bor-
in fram er heit súkkulaðisósan sett
á og látin dijúpa út yfir barmana.
-A.BJ.
Verslanir í Reykjavík
lokaðar á laugar-
dögum í sumar
Á laugardaginn kemur breytist af-
greiðslutími verslana í Reykjavík en
á undanfömum árum hefur verslunum
í höfuðborginni verið meinað að hafa
opið á laugardögum yfir sumarmánuð-
ina júní, júlí og ágúst.
Þetta margumdeilda afgreiðslubann
byggist á kjarasamningum milli Kaup-
mannasamtaka íslands og Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur sem
samþykktir vom í júní árið 1982.
Þess ber einnig að geta að 18. nóv-
ember 1983 gerði Borgarráð Reykja-
víkur breytingu á samþykkt um
afgreiðslutíma verslana í Reykjavík.
Samkvæmt breytingu Borgarráðs er
verslunum heimilt að hafa opið frá kl.
8 til 20 frá mánudögum til föstudaga,
hafa opið til kl. 22 á föstudögum og
til kl. 16 á laugardögum allan ársins
hring.
Kjarasamningar Kaupmannasam-
takanna og VR kveða hins vegar á
um það að verslunum sé heimilt að
hafa opið til kl. 18.30 á mánudögum
til föstudaga, til kl. 21 á föstudögum
og til kl. 16 á laugardögum. Þó skulu
verslanir í Reykjavík vera lokaðar á
laugardögum í júni, júlí og ágúst, en
á þeim tíma mega verslanir vera opnar
til kl. 20 á fimmtudögum.
Kjarasamningar Kaupmannasam-
takanna og VR þrengja því töluvert
að þeim afgreiðslutíma sem Borgarráð
heimilar.
Það eru einkum samningsaðilar VR
sem hafa haft frumkvæðið að því að
binda þannig með samningum af-
greiðslutíma verslana í Reykjavík en
í Kaupmannasamtökunum virðast
vera nokkuð skiptar skoðanir um rétt-
mæti slíkrar skuldbindingar. Við hér
á neytendasíðunni hljótum hins vegar
að spyija hvort neytendum komi mál-
ið ekki við. Hvað segja þeir um málið?
-KGK
ntzmkiJI
Það hefur oft verið heitt í kolunum vegna lokunartíma verslana í Reykjavík.