Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Síða 15
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
15
Mannkynssagan er
ekki skáldsaga
Afstaða Kvennalistans í nýaf-
stöðnum stjórnarmyndunarvið-
ræðum við Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokk olli miklum vonbrigð-
um. Tækifæri var til þess að ná
víðtækri samstöðu um nýtt átak til
þess að bæta kjör þeirra sem
minnst hafa í þjóðfélaginu samfara
alhliða atvinnuuppbyggingu og
framförum. En einkennileg afstaða
Kvennalistans til lögbindingar lág-
markslauna varð til þess að ekki
náðist saman. Kvennalistinn
krafðist lögbindingar þrátt fyrir að
slík aðgerð kallaði annaðhvort á
verðbólgu eða afnám samningsrétt-
ar vegna þess að breytingar á
launahlutföllum verða ekki varan-
legar nema með víðtæku sam-
komulagi allra sem hlut eiga að
máli.
Vinnumarkaðurinn erfólk
Vinnumarkaðurinn á fslandi er
ekki eitthvað sem hægt er að horfa
á og móta að vild úr einhverjum
hægindastól á Seltjarnarnesinu.
Vinnumarkaðurinn er lifandi
markaður þar sem fólk á í hlut, sem
launþegar, sem atvinnurekendur
og oft er sami einstaklingurinn í
mörgum hlutverkum. Lögmál
vinnumarkaðarins eru venjuleg
markaðslögmál og mótast af
hundruðum þúsunda ákvarðana
sem fólkið sjálft tekur. „Réttlæti“
vinnumarkaðarins er ekki ákveðið
ofan frá og ekki nema að takmörk-
uðu leyti í kjarasamningum. „Rétt-
lætið“ er ákveðið á vinnustöðunum
KjaUaiirin
Viljáimur Egilsson
sjálfum þar sem fólkið sjálft starf-
ar. Kjarasamningar, sem ekki eru
í samræmi við almennan vilja
þeirra sem vinna samkvæmt þeim,
eru í besta falli marklitlir.
Raunveruleg launahlutföll ráð-
ast fyrst og fremst í beinum
samningum á vinnustöðunum. Þar
er ákveðið hvort nýir starfsmenn
fara á 5 ára kaup, hvort duglegur
starfsmaður á að fá aukabónus o.s.
frv. Yfirborganir eða óformleg
launakerfi á hverjum vinnustað
eru yfirleitt ekki einkamál eða al-
farið komin undir geðþótta stjórn-
enda, þótt margir þeirra telji að svo
sé. Það er undirstöðuatriði í stjórn-
un að launahlutföllin verða að vera
í samræmi við almenn viðhorf
starfsfólksins og einnig í samræmi
við það sem almennt tíðkast á
vinnumarkaðinum. í ýmsum fyrir-
tækjum eru laun hvers einstakl-
ings trúnaðarmál en þegar að er
gáð geta slík launakerfi ekki geng-
ið nema að vera í takt við tímann.
Hvaðgerirfólkið?
í samningaviðræðum um kaup
og kjör á hinum almenna vinnu-
markaði snúast málin ekki aðeins
um hin beinu áhrif kjarasamning-
formaður S
ungra sjálfstæ
ðmbai
Kðism
bands
smanna
„Mannkynssagan er ekki skáldsaga sem
hægt er skrifa í næstá kafla að vild.
Núverandi launahlutföll á Islandi eiga
sér langa sögu og þeim verður allra síst
breytt með því að svífa í huga sínum á
rósrauðum plusspúðum skýjum ofar...“
„Kvennalistann hefur þvi miður skort þennan skilning. Því miður vegna
þess að með rikisstjórn Kvennalista, Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks
hefði verið raunverulegt tækifæri til þess að vinna ýmsa góða sigra á
tregðulögmálunum."
anna. Þau snúast ekki síður um
að velta því fyrir sér hvernig fólkið
á vinnustöðunum, starfsfólkið og
stjórnendurnir, muni bregðast við
því sem ákveðið er. Sama mat verð-
ur að fara fram þegar lögbinding
lágmarkslauna er á dagskrá. Eng-
inn ber á móti því að lægstu laun
séu afar lág og að það sé meiri
háttar reikningsdæmi að komast
af á slíkum launum. Og ekki bara
ópersónulegt reikningsdæmi, held-
ur raunverulegt, þar sem fólk á í
hlut. En hinir lægstlaunuðu vinna
líka með öðru fólki sem sættir sig
ekki við að 16 ára unglingur sé á
sama kaupi og starfsmaður með
áratuga reynslu, né heldur sættir
það sig við að faglærðir séu á sama
kaupi og ófaglærðir, eða þá að starf
sem alltaf hefur verið greitt með
10% hærra kaupi en annað sé allt
í einu metið jafnt. Til þess að hægt
sé að hækka hina lægstu umfram
aðra þarf almenna samstöðu á
vinnumarkaðinum, samstöðu sem
myndast ekki með lagaboði heldur
með viðræðum, samningum og
jafnvel hugarfarsbreytingu.
Er allt betra en Framsókn?
Mannkynssagan er ekki skáld-
saga sem hægt er að skrifa í næsta
kafla að vild. Núverandi launa-
hlutföll á íslandi eiga sér langa
sögu og þeim verður allra síst
breytt með því að svífa í huga sín-
um á rósrauðum plusspúðum
skýjum ofar og líta niður á hinn
vonda heim og ákveða að nú sé
kominn timi til að skipta mönnum
í réttláta og rangláta. Framfarir
og bætt kjör þeirra sem lakast eru
settir er eilíf barátta við tregðulög-
málin. Árangur i þeirri baráttu
næst ekki nema að fyrir hendi sé
skilningur á því, hvernig fólkið
sjálft hugsar og bregst við þegar
tilteknar aðgerðir eru gerðar.
Kvennalistann hefur því miður
skort þennan skilning. Því miður
vegna þess að með ríkisstjórn
Kvennalista, Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks hefði verið raun-
verulegt tækifari til þess að vinna
ýmsa góða sigra á tregðulögmálun-
um. En nú stefnir allt í það að
Kvennalistinn hafi fært Framsókn
völdin og þá er ljóst að tregðulög-
málin verða ofan á. Þetta er hið
versta mál, því allt er betra en
Framsókn. Nema rugl.
Vilhjálmur Egilsson
Af hverju Keflavíkurganga?
Engin sjálfstæð þjóð sættir sig við
erlenda hersetu til langframa. Ein-
faldlega vegna þess að þá er hún
ekki lengur sjálfstæð.
Það er því ekki að ófyrirsynju að
á þessu landi hefur verið háð barátta
gegn bandarísku herstöðvunum allt
frá lokum siðustu heimsstyrjaldar.
í 36 ár hefur verið háð barátta
gegn herstöðvunum. Ein samtök
hafa leyst önnur af hólmi og íyrir
réttum 15 árum voru Samtök her-
stöðvaandstæðinga stofnuð sem
reynst hafa lífseigust. Þau hafa leitt
andófið undir kjörorðunum Island
úr NATÓ - herinn burt.
Þessi kjörorð voru ekki úr lausu
lofti gripin, þau voru sprottin úr far-
vegi fenginnar reynslu. í þeim
kristallaðist sá skilningur að til þess
að létta af þjóðinni áþján erlendrar
hersetu yrði jaíníramt að berjast
gegn hernaðarbandalaginu og aðild
Islands að því.
í andófinu hafa tvinnast saman
þjóðleg hugsjón um sjálfstæði smá-
þjóðar og reisn gagnvart stórveldum
sem og skilningur á baráttu annarra
þjóða fyrir frelsi og sjálfsákvörðun-
arrétti.
Þannig voru herstöðvaandstæð-
ingar á Islandi vakandi fyrir ofbeld-
isverkum NATÓ-herforingja sem
hrifsuðu til sín völdin í Grikklandi
1967 og afnámu lýðræði í skjóli
bandarískra NATÓ-heretöðva þar.
Islenskir herstöðvaandstæðingar
mótmæltu líka ofbeldisverkum ann-
ars stórveldis, er Sovétríkin, í farar-
broddi Varsjárbandalagsins, gerðu
innrás í Tékkóslóvakíu 1968 og 11
árum síðar innrás þeirra í Afganist-
an. Bæði þessi ofbeldisverk voru
framin í skjóli hemaðarbandalags
og varnarsáttmála.
Víetnamstríðið og landhelgis-
málið
I Suðaustur-Asíu höfðu Bandarík-
in komið sér upp sams konar
Kjallariim
Sveinn Rúnar
Hauksson
læknir
hemaðarbandalagi og NATÓ sem
nefhdist SEATÓ. Það var f skjóli
þess sem herjað var á þjóðir Indók-
ína. Herstöðváandstæðingar
mótmæltu því að sami her og framdi
þjóðarmorð í Víetnam fengi að at-
hafna sig hér á landi. Þeir mótmæltu
því að ísland væri aðili að hemaðar-
bandalagi sem var samábyrgt fyrir
voðaverkunum.
Landhelgisbaráttan var annað
nærtækt mál sem tengdist baráttu
herstöðvaandstæðinga fyrir sjálf-
stæði þjóðarinnar. Þar átti Island í
höggi við annað NATÓ-ríki, breska
heimsveldið á fallanda fæti. Ekki
varð séð að Vamarliðið svokallaða
hreyfði lið né legg gegn hemaðar-
íhlutun Breta í íslenskri landhelgi.
og þess var aldrei að vænta. Það
þarf engan að undra að Keflavíkur-
gangan 1976, þegar landhelgisbar-
áttan stóð sem hæst. vrði fjölmenn-
ari en dæmi em um fyrr og síðar.
Stjórnstöð fyrir kjarnorku-
hernað
Frá 1980 hefur barátta herstöðva-
andstæðinga í æ ríkara mæli tengst
víðtækri hrevfingu meðal allra þjóða
gegn ógn kjamorkutortímingai-.
Rannsókn á innviðum og hlutverki
Keflavíkurherstöðvarinnar og ann-
arra mannvirkja NATÓ og Banda-
ríkjahers hér á landi hefur leitt í ljós
að herstöðin hefur smám saman ver-
ið að þróast úr því sem kallað var
orkuhemað. Herþotiu í Keflavík em
til þess gerðar að bera kjamorku-
vopn og þar er að finna annan
vígbúnað í samræmi við það. Og
þótt reynt sé að bera það á borð fyr-
ir íslendinga, að nýju ratsjárstöðv-
amar á Vestfjörðum séu reistar til
að þjóna öryggi vegfarenda í lofti
og á legi, og séu helst einhvers kon-
ar slysavamatæki, þá er raunin allt
önnur. Um það vitna best ummæli
Wesley McDonalds sem var yfirhers-
höfðingi bæði hjá NATÓ og Atlants-
hafsflota Bandaríkjanna. McDonald
lét svo um mælt fvrir hennálanefrid
öldungadeildar Bandaríkjaþings í
febrúar 1984 að nýju ratsjárstöðv-
amar á íslandi mvndu hafa ..úrslita-
þýðingu fvrir sjóhemaðarstefnu
okkar á Atlantshafi".
Kjarnorkuvopnalaus
Norðurlönd
Samtök herstöðvaandstæðinga
hafa nú um árabil unnið í náinni
samvinnu við norrænar friðarhrevf-
ingar að tillögum imi kjamorku-
vopnalaust svæði á Norðurlöndum.
I skoðanakönnun. sem gerð var 1983.
fengu þessar hugmvndir fylgi 86°0
þjóðarinnar. Og nú. í mars síðast-
liðnum. eftir að Morgunblaðið og
helstu forystumenn Sjálfstæðis- og
Alþýðuflokks höfðu í fjögur ár
bægslast gegn þessum hugmyndum
í takt við talsmenn Atlantshafs-
bandalagsins. kom í ljós í nýrri
skoðanakönnun að þessi yfirgnæf-
andi meirihluti þjóðarinnar hefur
ekki aðeins staðið af sér þennan
áróður heldur styrkst. Níu af hverj-
um tíu (89.6%) lýstu sig hlvnnta
aðild íslands áð kjarnorkuvopna-
lausu svæði á Norðmrlöndimi.
NATÓ-fundurinn
Nú er verið að vísa starfsfólki
bændasamtakanna úr húsi sínu á
Hótel Sögu og raunar gott betur.
flytja það til útlanda. Rýma á fvrir
utanríkisráðherrum NATÓ-ríkjanna
og öryggisliði þeirra. Minnir þetta á
tiltektimar í Háskóla íslands í júní
1968 af sama tilefhi, þegar stúdent-
um, kennurum og öðm starfandi
fólki í Háskólanum var vísað á dyr
til að rýma fyrir Dean Rusk, Pippin-
elli og félögum. Þá stóð Vfetnam-
stríðið sem hæst og í Grikklandi ríkti
einræðisstjórn NATÓ-herforingja.
Tryggja þurfti herrunum öryggi til
að leggja á ráðin.
í dag þurfa NATÓ-herramir að
leggja á ráðin um hvemig best verði
hamlað gegn kröfum um afnám
kjamorkuvígbúnaðar í Evrópu.
Morgunblaðið hefur síðustu vikum-
ar verið helsta áróðursmálgagn
herstöðvaandstæðinga. því þar má
nú lesa dag eftir dag feitletraðar for-
siðufréttir frá Atlantshafsbandalag-
inu um nauðsyn kjamorkuvopna.
Blað allra landsmanna minnir þann-
ig þjóðina. sem vill ekki kjamorku-
vdgbúnað. á nauðsyn þess að berjast
gegn NATÓ og áformum þess.
Fram hefúr komið hjá Weinberger.
hermálaráðherra Bandaríkjanna. og
starfsbræðrum hans að ef NATO
neyðist til samninga um kjamorku-
afvopnum á meginlandi EvTÓpu þá
hafi þeir áform um að efla kjam-
orkuvígbúnað í Norður-Atlantshafi.
Minnug kjamorkuslvsa á liðnum
árum. allt frá Thule í Grænlandi til
Chernobyl. þurfuin við ekki að velkj-
ast í vafa um. hvilík ógn þetta yrði
íslendingum. Færeyingum og öðrum
sem byggja tilveru sína á lífríki þessa
hafs. og það jafnvel þótt aldrei kæmi
til kjarnorkustvTjaldar.
ísland úr NATÓ - herinn burt
Framlag til friðar og afvopn-
unar
Kjörorð herstöðvaandstæðinga
eiga því sem fvrri daginn brýnt er-
indi við þjóðina. Um allan heim er
háð barátta fyrir friði og afvopnun,
gegn hemaðarbandalögum og ógn-
inni sem stafar af vígbúnaði þeirra.
Framlag Islendinga til hennar er
barátta gegn bandarfsku NATÓ her-
stöðvunum og gegn kjamorkuvíg-
væðingu í höfúnum. Jafnframt
berjumst við fyrir kjamorkuvopna-
lausum Norðurlöndum sem skrefi í
átt að útiýmingu allra kjamorku-
vopna. Við krefjumst framtíðar án
kjamorkuvígbúnaðar, framtíðar án
erlendrar hersetu og hemaðar-
bandalaga. Þess vegna tökum við
þátt í Keflavíkurgöngu á morgun.
Sveinn Rúnar Hauksson
„Við krefjumst framtíðar án kjarnorkuvíg-
búnaðar, framtíðar án erlendrar hersetu
og hernaðarbandalaga. Þess vegna tökum
við þátt í Keflavíkurgöngu á morgun.“
eftirlitsstöð í stjómstöð fyrir kjam-