Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Iþróttir
Valur Ingi-
mundarson er
búinn að gera munnlegt sam-
komulag um að halda áfram
þjálfun Njarðvíkurliðsins í
körfuknattleik.
„Ég mun leika með liðinu eins
og endranær." sagði Valur í
spjalli við DV.
„Við höldum sama mannskap
sem spilaði með liðinu á síðasta
vetri þó að nokkur félög hafí ve-
rið að reyna að fá ýmsa leikmenn
til sín." sagði Valur Ingimundar-
son í samtali við DV.
Valur náði frábærum árangri
rneð Njarðvikurliðið á síðasta
keppnistímabili en liðið varð þá
bæði íslands- og bikarmeistari.
Þrátt fyrir að Valur hafi leikið
með liðinu samhliða þjálfuninni
átti liann sjálfur mjög gott tíma-
bil.
Margir leikmenn í öðrum félög-
um hugðust brevta til og fara í
önnur félög en eftir að samþykkt
var að fjölga liðum í úrvalsdeild-
inni hættu margir við þau áform
sín. -JKS
Um síðustu
helgi fór fram undirbún-
ingskeppni hvítasunnubikarsins,
á vegum Golfklúbbs Reykjavíkur.
Keppni þessi er elsta golfkeppni
hérlendis en þetta mót var fyrst
haldið árið 1937.
53 þátttakendur voru í undir-
búningskeppninni sem var 18
holu höggleikur, en 16 bestu
komust áfram í holukeppnina.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. YzuruOgino............67
2. Gunnar P. Þórisson.....69
3. Gunnlaugur Reynisson...69
Besta skor átti Ivar Hauksson,
73 högg.
Sl. sunnudag fór fram öldunga-
mót hjá GE í Grafarholti. Leikin
var punktakeppni í karla- og
kvennaflokki. Urslit urðu þessi:
Karlar:
1. Eyþór Fannberg........46
2. Júlíus Ingibergsson....39
3. Guðjón Einarsson.......37
Konur:
1. Gyða Jóhannsdóttir....43
2. Hanna Aðalsteinsdóttir.29
3. Guðríður Guðmundsdóttir ....27
-JKS
Juanito Co-
mes, sem Real Madrid
dæmdi í 4 ára keppnisbann vegna
alvarlegs brot í Evrópuleik gegn
Bayem Múnchen á dögunum var
í gær seldur til 2. deildar liðsins
Malaga. Ákvörðun Rea! Madrid
vakti mikla athygli.
Juanito, sem hafði leikið um
ellefu ára skeið með Real Madrid,
samdi til eins árs við Malaga.
-JKS
Mun marka-
regnið fylgja
Valsliðinu?
- 3. umferðin leikin um helgina
Þriðja umferðin í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspymu hefst á morgun og
verða þá leiknir íjórir leikir en síðasti
leikur umferðarinnar fer íram á mánu-
dagskvöldið. Einnig fer fram heil
umferð í 2. deild um helgina.
• Valsmenn halda norður yfir heið-
ar á morgun og leika gegn KA á
Akureyrarvelli og hefst leikurinn kl.
14.00. Valsmenn hafa ekki tapað leik
á mótinu til þessa og reyna örugglega
að halda áfram á sömu braut. Leikur-
inn verður þeim örugglega erfiður því
KA-liðið er alltaf erfitt heim að sækja.
Þeir unnu mikilvægan sigur í síðustu
umferð á útivelli gegn Víði og eru
greinilega á réttri leið.
• FH-ingar fá Víði í heimsókn í
Hafnarfjörðinn kl. 14.00. Leikir þess-
ara liða hafa ávallt verið jafnir og
spennandi. FH-liðið heíúr ekki unnið
leik á mótinu enn sem komið er og
leggja þeir líklega allt í sölumar í
þessari viðureign til að hljóta sín
fyrstu stig í deildinni. Víðismenn hafa
hlotið eitt stig, þeir gerðu jafntefli við
Valsmenn í fyrsta leik mótsins og em
frægir fyrir sína miklu baráttu.
• Völsungar og Akumesingar leika
á Húsavík kl. 14.00. Völsungar sigmðu
Þórsara á Akureyri í síðasta leik og
trvggðu sér um leið sín fyrstu stig í
deildinni. Mikil barátta er í liðinu og
stefha þeirra að halda sér í deildinni
í sumar og gott betur. Akumesinga
bíður því eidiður leikur en þegar mest
á ríður em þeir til alls líklegir.
• Keflvíkingar og Þór frá Akureyri
leika í Keflavík kl. 14.00. Keflvíkingar
fengu stóran skell í síðasta leik gegn
Val og má ætla að leikmenn liðsins
geri allt til að sú saga endurtaki sig
ekki. Þórsliðið kom vemlega á óvart
í fyrstu umferð þegar þeir lögðu Fram
að velli en komu svo niður á jörðina
aftur eftir tapið gegn Völsungi. Þessi
viðureign verður ömgglega tvísýn og
spennandi.
• Síðasti leikur þriðju umferðar
verður svo á mánudagskvöldið og
leiða þá saman hesta sína, Fram og
KR og verður örugglega um hörku
viðureign að ræða. KR-ingar koma
mjög sterkir til þessa móts og em til
alls líklegir í deildinni í sumar. Þeir
hafa sigrað í báðum leikjum sínum á
mótinu. Framarar töpuðu fyrsta leikn-
um en unnu síðan Akumesinga í
síðasta leik og sýndu þar sitt rétta
andlit. Bæði lið munu berjast til síð-
asta blóðdropa í þessum leik, enda
mikið í húfi fyrir bæði lið. Leikurinn
hefst á aðalvelli Laugardalsvallar á
mánudagskvöld kl. 20.00.
• Þrír leikir fara fram í 2. deild í
kvöld og hefjast þeir allir kl. 20.00.
KS-ingar frá Siglufirði fá Víkinga í
heimsókn en Víkingur er eina liðið í
deildinni sem er taplaust til þessa. Á
Laugardalsvelli leika ÍR-ingar og
Vestmannaeyingar og á Kópavog-
svelli leika Breiðablik og Selfyssingar.
• Á morgun leika svo ÍBÍ og Leiftur
á Isafirði og á Vopnafirði Einherji og
Þróttur og hefjast báðir leikimir kl.
14.00. -JKS
• íslandsmótiö hefst á nýjan leik um helgina. Hér sjáum við landsliðsmann-
inn Pétur Arnþórsson í kröppum dansi. DV-mynd Brynjar Gauti
EM í körfubolta
Úrslitakeppni A-þjóða í körfubolta
stendur nú sem hæst í Grikklandi.
Sovétmenn, núverandi meistarar, em
sigurstranglegir að þessu sinni. Úrslit
hafa orðið sem hér segir:
Spánn - Frakkland...........111-70
Rússland - Frakkland 107-78
Spánn - Rúmenía 116-98
ísrael - Tékkóslóvakía 99-83
Pólland—Holland 91-84'
ítalía - V-Þýskaland 84-78
X l'- ^ V W
fi V **■ Á
b
Stórsigur
LA Lakers
Los Angeles Lakers vann ótrúlega
léttan sigur á heimavelli yfir Boston
Celtics í fyrsta úrslitaleiknum á milli
þessara liða. Lokatölur leiksins urðu
126-113 Lakers í vil. Leikurinn var
eign Lakers frá upphafi til enda.
Lakers komst eftir stuttan tíma í
9-0 og fljótlega í annarri lotu varð
staðan 51-30. Mótspyrna Boston var
lítil sem engin og virkuðu leikmenn
liðsins þreyttir enda búnir að standa
í erfiðum leikjum á undan gegn
Detroit Pistons. Hins vegar léku
leikmenn Lakers við hvem sinn fing-
ur, úthvíldir og fyrir löngu búnir að
tryggja sér rétt í úrslitum.
James Worthy var stigahæstur hjá
Lakers og skoraði 33 stig, Magic
Johnson skoraði 29 stig.
Hjá Boston var fuglinn Larry Bird
sá eini sem lék af eðlilegri getu og
skoraði 32 stig.
Næsti leikur liðanna verður í dag
og einnig í Los Angeles. Ef með þarf
fara næstu þrír leikimir fram í Bost-
on Garden.
-JKS
• Boston Celtics tapaði illa í fyrsta urslitaleiki
um gegn Los Angeles Lakers.