Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Síða 28
40
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Andlát
Elenora Þórðaidóttir, Þórufelli 10,
Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala
miðvikudaginn 3. júní.
Sigurður Már Pétursson, Borgar-
holtsbraut 78, Kópavogi, lést í
Uandspítalanum þriðjudaginn 2.
júní.
Jón B. Ólafsson, áður bóndi, Fífu-
stöðum, Arnarfirði, lést í sjúkrahúsi
ísafjarðar 29. maí. Jarðarförin fer
fram frá Bíldudalskirkju laugardag-
inn 6. júní kl. 14.
Gísli Sighvatsson, Birkihvammi 13.
Kópavogi, sem lést miðvikudaginn
27. maí, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju í Reykjavík í dag,
föstudaginn 5. júní, kl. 13.30.
Ólafur Nikulásson, Kirkjuvegi 22.
Selfossi, sem lést 27. maí sl., verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju laug-
vtrdaginn 6. júní kl. 16.
Ingibjörg Marinósdóttir, sem lést
þann 29. maí. verður jarðsungin frá
Landakirkju í Vestmannaevjum
laugardaginn 6. júní kl. 14.
Eyjólfur Helgi Þórarinsson raf-
virkjameistari. Tjarnargötu 41.
Keflavík. sem lést laugardaginn 30.
maí. verður jarðsunginn frá Kefla-
víkurkirkju laugardaginn 6. júní kl.
14.
Utför Benedikts Benediktssonar,
er lést i Borgarspítalanum 27. maí.
fer fram frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 5. júní kl. 13.30.
Útför Odds Ella Ásgrímssonar
verður gerð frá Hveragerðiskirkju
laugardaginn 6. júní kl. 14.
Sýningar
Sumarsýning listasafn ASÍ
Laugardapinn 6. júní kl. 14 verður opnuð
í listasafni ASÍ sumarsýning safnsins. sem
hefur hlotið heitið Áning. Á sýningunni
verða verk eftir ellefu listamenn á sviði
glerlistar. leirlistar. málmsmíði. fatahönn-
unar og vefnaðar. Sýningin verður opin
alla virka daga kl. 16-20. en um helgar
kl. 14 22. Sýningunni lýkur 19. júlí.
Tónleikar
Tónleikar i Selfosskirkju
Föstudaginn 5. júní kl. 20.30 munu Nora
Kornblueh sellóleikari. Óskar Ingólfsson
klarínettuleikari og Snorri Sigfús Birgis-
son píanóleikari halda tónleika í Selfoss-
kirkju. Á efnisskrá tónleikanna eru
einleiks- og kammerverk eftir Lutoslaw-
ski. Webern. Schumann. Stravinsky.
Beethoven og Snorra Sigfús.
Grafík á ísafirði og
í Reykjavík
Hljómsveitin Grafík verður með tónleika í
Uppsölum á Isfirði laugardagskvöldið 6.
júní
og hefjast þeir kl. 21. Munu þeir leika efni
aé1 væntanlegum hljómplötum. Þess má
geta
að meðlimir sveitarinnar eru frá ísafirði og
verða þetta einu tónleikarnir þar á þessu
ári. Mánudagskvöldið 8. júní spila þeir á
Hótel Borg og kemur Sniglabandið einnig
þar fram.
Tilkynriingar
„Skógardagur"
Aðalfundur Skógræktarfélags Islands sam-
þykkti fyrir nokkrum árum að fyrsta laugar-
dag í júm' skyldi vekja sérstaka athygli á
trjá- og skógrækt hér á landi. Þessi „skógar-
dagur“, sem svo hefúr verið nefndur, er að
þessu sinni 6. júní nk. en þá marka skógrækt-
arfélögin víðs vegar um land daginn hvert
með sínu móti, efha til gróðursetningar, skoð-
unarferða, eða halda fræðslufundi fyrir félaga
sína og áhugafólk.
Húnvetningafélagið
í Reykjavik
verður við skógræktarstörf í Þórdísar-
lundi laugardaginn 6. júní. Upplýsingar í
síma 38211.
í gærkvöldi
Guðjón Tómasson framkvæmdastjóri:
Stjaman ósköp svipuð
Orlof húsmæðra í Reykjavík
í sumar mun orlofsnefnd húsmæðra í
Reykjavík starfrækja orlofsheimili. að
Hvanneyri í Borgarfirði. Dvalið verður
eina viku í senn í sex hópum frá 20. júní
til 1. ágúst. Hægt er að velja um eins eða
tveggja manna herbergi sem hvert hefur
sérsnyrtingu. „Heitur pottur", gufubað og
gott sólskýli er á staðnum. Leikfimi er á
hverjum morgni. Bókasafn staðarins er til
afnota fyrir gesti. Guðsþjónusta er í
Hvanneyrarkirkju hvern sunnudag. Á
miðvikudögum er farið í skoðunarferð um
Borgarnes og nágrannasveitir. Frá og með
þriðjudeginum 9. júní verður tekið á móti
umsóknum á skrifstofu Orlofsnefndar að
Traðarkotssundi 6. Fyrstu tvo innritunar-
dagana, 9. og 10. júní, hafa þær konur
forgang sem ekki hafa áður notið dvalar
á vegum nefndarinnar. Skrifstofan verður
opin frá kl. 15 18 máiíudaga til föstudaga.
Gjald fyrir vikudvöl í tveggja manna her-
bergi er kr. 4.700 og í eins manns herbergi
kr. 5.200. Allt innifalið.
Samtök psoriasis
og exemsjúklinga
hafa fengið gistiaðstöðu í verbúð Fisknes
hf„ Grindavík, fyrir þá sem vilja stunda
Bláa lónið. Upplýsingar hjá Sigurgeir sími
92-8280 og hjá Spoex sími 258k).
Kvennaráðgjöfin,
Hlaðvarpanum. Vesturgötu 3. er opin alla
þriðjudaga kl. 20-22. Sími: 21500. símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum. sími 21500. símsvari.
Ég hlustaði minna á útvarp í gær
en til stóð. Ég hlustaði þó aðeins á
nýju útvarpsstöðina, Stjömuna og
mér heyrðist hún vera ósköp svipuð
og Rásin og Bylgjan.
Maður er yfirleitt aldrei kominn
heim íyrr en klukkan sjö og þá er
hlustað á fréttirnar. Það finnst mér
bestu þættimir á öllum miðlum.
Sjónvarpið var ekki með fréttir í
gær, en ég horfði á fréttimar á Stöð
2. Ég verð að segja það að oftar en
hitt þá finnst mér fréttimar á Stöð
2 betri en hjá Ríkissjónvarpinu. Ég
minnist þess til dæmis þegar Bylgjan
var með svokallaða Bylgjuvöku til
að safna fyrir Vímulausa æsku, að
sjónvarpið sagði bara einu sinni frá
því í lokin, en þá var búió að segja
frá þvi tvisvar á Stöð 2. Stöðvamar
taka mismunandi á á fréttunum og
yfirleitt líkar mér betur við Stöð 2.
Ég horfði ekki á annað í sjónvarpi
í gær. Ég fylgist yfirleitt lítið með
föstum þáttum í sjónvarpinu, það er
helst að maður kveiki þegar Fyrir-
myndarfaðir er, það em frábærlega
Guðjón Jonsson
leiknir þættir. Aðrir þættir sem ég
reyni að missa aldrei af em náttúm-
og dýralífsmyndir. Það held ég að
séu vinsælir þættir. Unglingamir á
mínu heimili vilja til dæmis aldrei
missa af slíku efni.
Auk fréttanna þá hlustaði ég á
útvarpsleikritið og fannst það bara
nokkuð gott. Síðan hlustaði ég
svona með öðm eyranu á Stjömuna
á meðan ég dúllaði mér úti í garði.
Eins og ég sagði þá fannst mér þetta
ósköp svipað og á hinum stöðvunum.
Það var kannski helst umræðuþátt-
ur um verðlag á sólarlandaferðum
sem var eitthvað frábmgðinn. Þessi
þáttur bar heitið Hvers eiga bam-
lausu hjónin að gjalda og þar ræddu
fulltrúar neytenda, ferðaskrifstof-
anna og auglýsingastofa um hvort
þessar auglýsingar væm rangar.
Mér fúndust þetta góðar umræður,
en þetta hefur kannski ekki náð til
margra.
Skólaslit Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
Ellefta skólaári Fjölbrautaskóla Suður-
nesja lauk með skólaslitum laugardaginn
23. maí sl. Sú venja hefur skapast að láta
athöfn þessa fara fram í þeim sveitarfélög-
um sem að skólanum standa. Að þessu
sinni fór brautskráningin fram í íþrótta-
húsinu í Sandgerði að viðstöddu fjöl-
menni. Dagskrá var með hefðbundnum
hætti en var um annað nokkuð óvenjuleg.
Þannig var brautskráningarhópurinn
stærri nú en nokkru sinni áður eða sam-
tals 92 nemendur þar á meðal var afhent
1000. brautskráningarskírteinið frá skól-
anum. Margir stúdentanna hlutu braut-
skráningu af fleiri en einni braut, þó sló
Viktor Kjartansson öll met en hann tók
við skírteinum af átta námsbrautum.
Óvenju mörg verðlaun voru veitt að þessu
sinni enda námsárangur með besta móti.
Aðstoðarskólameistari FS er Ingólfur
Halldórsson og skólameistarí er Hjálmar
Árnason.
Magnús með
skemmtidagskrá í sumar
Nú, þegar sumaríiðringurinn hríslast um
landann, fara menn að huga að dansleikja-
haldi og útiskemmtunum. Skemmtikraftar
taka á sprett og raða saman skemmtidag-
skrá. Einn þeirra er Magnús Ólafsson sem
undanfarin sumur hefur ferðast um landið
og skemmt ásamt öðrum. Nú hefur Magn-
ús sett saman eigin skemmtidagskrá sem
er sérstaklega gerð fyrir dansleiki og úti-
skemmtanir. Hér er um að ræða söng, grín
og gleði fyrir alla. Einnig er Magnús með
Bjössa bollu á sínum snærum fyrir bömin
og er hann farinn að syngja þónokkuð
líka. Þeir sem hafa áhuga á að fá þessi
skemmtilegheit geta haft samband við
Auglýsingastofu Magnúsar Ólafssonar,
Austurströnd 10, Seltjarnarnesi. Símar
611533 og 51332. Einnig er Pétur rakari
umboðsmaður Magnúsar í síma 16520.
Lífið veltur á beltunum
1 þessum mánuði kemur hingað til lands
nokkuð sérstakur fólksbíll frá Danmörku
á vegum Almennra trygginga hf. en hann
er festur á sérsmíðaðan vagn með velti-
tækjum. Bílinn verður notaður til að leyfa
almenningi að sanreyna hvernig það er
að velta heilan hring í fólksbíl ólaður nið-
ur í öryggisbelti. Það er danska trygging-
arfélagið Baltica sem lét útbúa bílinn, sem
er af Toyota-gerð, og hafa tugþúsundir
Dana þegar farið í slíka bílveltu og vakti
bílinn gífurlega athygli þar í landi. Al-
mennar fá danskan sérfræðing með
bílnum, sem kemur á þjóðhátíðardaginn,
en verður fyrst sýndur 18. júní nk. og þá
getur fullorðið fólk fundið út með einni
veltu hversu nauðsynlegt það ér að spenna
sætisólamar. Kynningarherferð Al-
mennra ber yfirskriftina „Lífið veltur á
bílnum“ og verður bílinn til sýnis á höfuð-
borgarsvæðinu og væntanlegar víðar á
suðvesturhomi landsins í stuttan tíma.
Er það von tryggingarfélagsins að sem
flestir noti þetta tækifæri og gangi úr
skugga um í eitt skipti fyrir öll að lífið
veltur á beltum í umferðinni.
Stjórnmálin eru eins og veðhlaupahestur. Góður knapi verð-
ur að kunna að detta þannig af baki að hann saki sem
minnst.
Edouard Herriot
Spakmælið
Nýr framkvæmdastjóri
Heilsuhælis
NLFÍ í Hveragerði.
Eiríkur G. Ragnarsson, skrifstofustjóri
Sjálfsbjargar, hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Heilsuhælis Náttúrulækn-
ingafélags Islands í Hveragerði frá 1. júlí
nk. þegar Friðgeir Ingimundarson lætur
af störfum fyrir aldurs sakir. Átta umsækj-
endur voru um starfið. Heilsuhæli Nátt-
úmlækningafélags íslands í Hveragerði
er heilbrigðisstofnun sem á sér enga hlið-
stæðu hér á landi. Hælið cr byggt upp af
félagslegu átaki og rekið í anda náttúm-
lækningastefnunnar sem leggur áherslu á
vernd heilsunnar með heilbrigðu líferni. 1
Hveragerði er reynt að endurhæfa fólk
með neyslu jurta- og mjólkurfæðis ásamt
böðum af ýmsu tagi og hvíld. Heilsuhælið
er í fögru umhverfi og koma sjúklingar
þaðan endurnærðir á sál og líkama.
Aðalfundur
Leiklistarsambands Islands
var haldinn þriðjudaginn 19. maí sl. Á
fundinum urðu miklar umræður um varð-
veislu leiklistargagna, þ.e. upptökur af
sýningum og aðrar heimildir sem hafa
leiklistarsögulegt gildi. Stjórn Leiklistar-
sambandsins var endurkjörin en hana
skipa: Sveinn Einarsson, Pétur Einarsson,
Sigrún Valbergsdóttir, Arnór Benónýsson
og Kjartan Ragnarsson. Aðild að Leiklist-
arsambandi Islands eiga fulltrúar frá
Félagi íslenskra leikara, Félagi leikstjóra
á Islandi, Ríkisútvarpi/sjónvarpi, Þjóð-
leikhúsinu, Leikfélagi Reykjavíkur,
Leikfélagi Akureyrar, Alþýðuleikhúsinu,
Bandalagi íslenskra leikfélaga, Leiklistar-
skóla Islands, Félagi íslenskra listdansara,
Samtökum leiklistargagnrýnenda, Leik-
skáldafélagi Islands og Félagi leikhús-
fræðinga.
Skák
Boðsmót Taflfélags
Reykjavikur
hefst mánudaginn 15. júní kl. 20. Tefldar
erða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi. Öll-
um er heimil þátttaka í boðsmótinu.
Umhugsunartími er 1 'A klst. á fyrstu 36
leikina, en síðan 'h klst. til viðbótar til
að ljúka skákinni. Engar biðskákir.
Skráning þátttakenda í boðsmótið fer fram
i síma Taflfélags Reykjavíkur á köldin kl.
20-22. Lokaskráning verður sunnudag 14.
júní kl. 20-23.
Afmæli
80 ára afmæli á í dag, 5. júní, frú
Helga Ásta Guðmundsdóttir frá
Stóra-Kálfalæk, Arahólum 4,
Reykjavík. Eiginmaður hennar er
Ólafur Magnússon, húsasmíðameist-
ari. Munu þau að taka á móti gestum
á heimili dóttur sinnar í Vesturbergi
115 eftir kl. 16 í dag.
50 ára verður á morgun, 6. júní,
Bjarni Gíslason, Borgartanga 5,
Mosfellssveit. Hann tekur á móti
gestum í Kiwanishúsinu, Smiðjuvegi
13 a, Kópavogi á milli kl. 16-19 á
afmælisdaginn.
70 ára verður sunnudaginn 7. júní,
Gunnar Ásgeirsson, forstjóri,
Efstaleiti 14, Reykjavík (áður Star-
haga 14). Hann og kona hans,
Valgerður Stefánsdóttir, munu taka
á móti gestum í Oddfellowhúsinu á
afmælisdegi Gunnars, milli kl. 16 og
18.