Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Qupperneq 30
42
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
POPPLAG VIKUNNAR
STUÐMENN - POPPLAG í
G-DÚR
Stuðmenn eru komnir
aftur og enn sem fyrr
bregða þeir á leik eins og
í þessu lagi sem er samtím-
is að ég held létt grín að
iðnaðarrokkinu en um leið
stórgott rokklag í þeirri
deildinni. Þeir sem ekki fá
fiðring í tær og raddbönd
við að heyra þetta eru illa
staddir...
ÖNNUR GÓÐ POPPLÖG
U2 - I STILL HAVEN’T
FOUND WHAT l’M LOOKING
FOR (ISLAND)
Bono og félagar í U2 eru
tvímælalaust rokkhljóm-
sveitin með STÓRU ERRI
í heiminum í dag. Og ekki
ætti þetta lag að draga úr
velgengninni, enda eitt
besta lag þlötunnar The
Joshua Tree og er þó margt
frábærra laga á þeirri
plötu. Þetta er lágvært eig-
inlega hógvært lag sem býr
yfir miklum innri krafti og
Bono fer hér hreint á kost-
um í söngnum.
HERBERT GUÐMUNDSSON
- TREYSTU Á SJÁLFAN ÞIG
(TÓNLISTARMENN FYRIR
VÍMULAUSA ÆSKU)
Herbert hefur sýnt það
og sannað að hann er lipur
lagasmiður þegar hann vill
það við hafa og hér hefur
honum tekist virkilega vel
upp í léttu popplagi sem
grípur hlustandann fljótt
og lætur vel í eyrum. Lagið
er mjög einfalt og sama er
að segja um hljóðfæraleik-
inn. Hebbi syngur þetta vel
að auki.
EIRÍKUR HAUKSSON - ÉG
ANN ÞÉR ENN (TÓNLISTAR-
MENN FYRIR VÍMULAUSA
ÆSKU)
Gömlum blúshundum
hlýnar heldur betur um
hjartaræturnar þegar þeir
heyra svona lag. Það er
Axel Einarsson sem hefur
samið lagið og það heyrist
langar leiðir að þetta lag
hefur hann sett saman af
mikilli ánægju. Og það sem
enn betra er að Eiríki
Haukssyni tekst að yfir-
færa ánægjuna og kraftinn
í sönginn með glans. Fyrir-
taks blússöngvari Eiríkur.
HOUSEMARTINS - FIVE
GET OVER EXITED (GO
DISC)
Love Love Love - Hverjir
eru svo smekklausir að
stela þessu gamla stefi
þeirra Bítlanna úr All You
Need Is Love og syngja Fun
Fun Fun í staðinn? House-
martins af öllum; ég er svo
aldeilis hlessa. Þetta er
ljótur blettur á annars
ágætu, hressu rokklagi.
-SþS-
David Bowie - Never Let Me down:
Thompson Twins - Close To The Bone
David Bowie er að líkindum sá tón-
listarmaður sem flestir geta samþykkt
að hafi verið einna merkastur poppara
á síðasta áratug. Bowie naut vinsælda
íyrir lög eins og Starman, Life on
Mars og Heroes, sem fylla flokk
klassískra popplaga, en Bowie hlaut
einnig ómælt lof gagnrýnenda fyrir
listrænt hugrekki, frumleika og sí-
fellda endumýjun. Menn gátu treyst
því að þótt jörðin hætti að snúast
myndi David Bowie halda áfram að
þróast í óvæntar og heillandi áttir.
Hver gæti annars ímyndað sér að
óreyndu að plötur eins og Ziggy Stard-
ust, Low og Young Americans séu
gerðar af einum og sama manninum?
Sá David Bowie, sem hér er lýst,
hætti að vera til eftir útkomu hinnar
frábæm Scary Monsters árið 1980.
Bowie 9. áratugarins er hinn dæmi-
gerði rokkari, til þess að gera sáttur
við sig og umhverfi sitt og þar með
tilbúinn að taka þátt í hrunadansinum
kringum rokkljónið án sérstakra fyrir-
vara.
Never Let Me Down er aðeins þriðja
plata Bowies á síðastliðnum 7 árum
en Bowie hefur á þessum tfma í aukn-
um mæli snúið sér að kvikmyndaleik
og kvikmyndatónlist, sbr. Absolute
Beginners og Labyrinth. Let’s Dance,
1983, skaut Bowie endanlega upp á
stjörnuhimin vinsældalistanna en
Tonight, 1984, var hins vegar and-
lausasta verk Bowies til þessa.
Þótt Bowie hafi glatað sérstæðu
sinni í rokkinu er því ekki að neita
að Never Let Me Down er stór fram-
för fi"á Tonight-plötunni.
Áþreifanlegust er breytingin til
meira rokks og Bowie virðist aftur
hafa tekið leikgleði sína. Lögin á
NLMD munu hafa verið samin með
hljómleikaflutning í huga og skilar
það sér vel því yfirbragð skífunnar er
létt og hressilegt. Hin nýja átakalausa
stefiia Bowies endurspeglast hins veg-
ar í vali hans á meðspilurum en þar
em m.a. Carlos Alomar, fomvinur
Bowies, og gítarleikarinn Peter
Frampton sem var upp á sitt besta
fyrir rúmum áratug. Þessir menn kom-
ast ágætlega frá sínu en leikur þeirra
verður seint talinn til nýsköpunar.
Hressileg rokklög em sem fyrr segir
uppistaða NLMD og ber þar hæst
Beat of Your Drum, ’87 and Crý og
Zeroes. Glass Spider sker sig nokkuð
úr því þar fer Bowie með mystíska
dæmisögu um glerkóngulær í Asíu og
Time Will Crawl er eitt besta lagið
með ágætum texta um vora trylltu
veröld.
Þegar upp er staðið skortir þessar
lagasmíðar þó þá dýpt sem gerir
skemmtilega plötu að verulega góðri.
Bowie er ekki mikið niðri fyrir á
NLMD og platan getur ekki talist til
hans bestu en hún er þó allténd
skemmtileg áheymar og maður skyldi
ekki vanmeta það á þessum síðustu
og...tímum.
Skúli Helgason
Kameljón án litskrúðs
Daprir tvíburar
Það er erfitt að fóta sig á frægðar-
svellinu og ekki einu sinn víst að þó
það takist einu sinni að menn haldi
jafnvæginu nema stutta stund. Þetta
hefur hljómsveitin Thompson Twins
fengið að reyna heldur betur.
Hljómsveitin er tæpra tíu ára og
framanaf gekk hvorki né rak en uppúr
1980 fór að rofa til og hátindinum
náði hljómsveitin með plötunni Into
The Gap sem kom út 1983. Þá var
hljómsveitin tríó og var það enn þegar
næsta plata kom út en hún fékk frek-
ar dræmar viðtökur. Síðan hefur það
gerst að einn lítill negrastrákur er
hættur í hljómsveitinni og þau skötu-
hjúin Tom Bailey og Alannah Currie
tvö eftir.
Og enn liggur leiðin niður á við því
þessi fyrsta plata Thompson Twins
eftir fækkun er ekki uppá marga fiska.
Tónlistin er að miklu leyti innantómt
og líflaust tölvupopp og nær aldrei að
komast á flug.
Útsetningar eru flatneskjulegar og
þegar við bætist að tónsmíðamar eru
í lakari kantinum er ekki við miklu
að búast.
Síðasta lagið sem Thompson Twins
gerðu vinsælt var King For A Day og
virðist nafhið hafa orðið að áhrínsorð-
um fyrir hljómsveitina.
-SþS-
Bernie Taupin - Tribe
Textahöfundur
tekur lagið
Nafh Bemie Taupin er þekkt í tón-
listarheiminum. Ekki fyrir það að
hann sé söngvari eða lagasmiður held-
ur er hann einn þekktasti textahöf-
undur sem um getur. Þótt textar hans
hafi víða farið þá er hann aðallega
frægur fyrir að vera höfundur lang-
flestra texta Eltons John. Nær sam-
starf þeirra allt til ársins 1969 þegar
báðir vom í leit að frægð og frama.
Hefúr samstarf þeirra síðan verið mjög
farsælt og á Bemie Taupin texta við
öll þekktustu lög Elton John.
Textar Taupin rista kannski ekki
mjög djúpt en hann er leikinn með orð
og snyrtilegri textar finnast varla í
poppheiminum.
Einhvem veginn hafði maður aldrei
hugsað út í það að Bemie Taupin
gæti sungið og einn daginn mundi
koma út plata frá honum með hans
eigin tónlist. Það kom því á óvart þeg-
ar plata hans, Tribe, kom út fyrir
stuttu.
Það var því fyrst og fremst forvitni
sem réð þvi að Tribe var sett á fóninn
við fyrsta tækifæri. Sú forvitni dofnaði
samt fljótt. Eins og vænta mátti em
textamir hinir boðlegustu en varla
verður sama sagt um tónlistina. Ekki
Nýjar
plötur
veit ég nákvæmlega hvað mikinn hlut
Taupin á í gerð laganna. Ásamt hon-
um er Martin Page titlaður höfundur
laga og er ekkert nánar getið um þá
samvinnu. Martin Page er annars allt
í öllu. Hann stjómar upptökum og
leikur á ýmis hljóðfæri. Elton John
kemur lítið við sögu, syngur aðeins í
bakröddum, varla greinanlegur.
I heild em lögin á Tribe frekar dauf,
em flest léttrokkuð og ekki eftirminni-
leg, þótt eitt og eitt nái aðeins uppfyrir
meðalmennskuna. Rödd Taupin er
ekki mikil. Ekki verðurt annað sagt
en að hann nýti rödd sína allsæmi-
lega. Aftur á móti kemur Bemie
Taupin víða við í textagerð. Fjallað
er um látnar persónur í Desperation
Train, fjallað um villta vestrið í The
New Lone Ranger og eitt lagið heitir
Billy Fury og fjallar um þekktan popp-
söngvara sem var upp á sitt besta í
byijun Bítlatímabilsins. Minnisstæð-
asta lagið á Tribe er Corrugated Iron.
í ágætu lagi fjallar Taupin um kjör
svartra í Suður-Afríku.
Ekki hef ég trú á að Bemie Taupin
öðlist frægð sem söngvari og get ég
ekki bent á eitt lag sem líklegt er til
vinsælda af Tribe. Áftur á móti hlýtur
það góða orð, sem fer af honum sem
textahöfundi, að standa óbreytt.
POPP
SMÆLKl
Sæl nú!.. .Þessa dagana
stendur yfir niikil styrjöid i
biaðaheiminum i Bretlandi
milli poppblaðanna annars
vegarog dagblaðanna i Fleet
Street hins vegar. Deilurnar
snúst um fréttaflutning af
framkomu hinnar umdeiidu
bandarisku hljómsveitar The
Beastie Boys á tónlistar-
hátiðinni f Montreauxi
Sviss nú fyrir skemmstu.
Sum bresku dagblaðanna,
siefpressan svonefnda, hafa
birt hverja forsiöuf réttína
eftir aðra þar sem segir frá
viðbjóðslegri framkomu
Beastie Boys í Sviss og sér-
staklega framkomu þeirra
við fötluð börn, sem voru
sérstaklega boðin á hátíð-
ina. Eiga þeir að hafa gert
grin að krökkunum og hæðst
að fötlun þeirra og þar fram
eftír götunum. Breska popp-
pressan tók upp hanskann
fyrir Beastie Boys og hrakti
allar tröllasögurnar lið fyrir
lið og reyndust þær ekki eiga
við nein rök að styðjst. Er
nú frekar grunnt á þvi góða
milli Fleet Street og popp-
pressunnar og segir í
Melody Maker að önnur eins
ófrægingarherferð á hendur
einni hljómsveit hafi ekki
verið farin síðan Sex Pistols
voru og hétu. Beastie Boys
eiga raunar ekki einungis við
bresku slefpressuna að
glima því einn þingmanna
jhaldsfokksins hefur beitt
sér fyrir því að þeim verði
bannað að koma til Bret-
lands til
hljómleikahalds. . .Gary
Glitter virðist hafa niu líf
eins og kötturinn; margir
töldu þegar honum var
stungið inn á síðasta ári
fyrir Ölvun víð akstur að fer-
illinn væri á enda, en þá var
skammt liðið frá því Gary
gerðí enn eina tilraunina til
að endurvekja gamla frægð.
En Gary er ekki á þeim bux-
unum að gefa sig og hyggst
halda i hljómleikaferð um
Bretland á næstunni.. ,0g
fleiri gamlingjar staulast
fram á sviðið á nýjan leik
um þessar mundir; Roy
gamli Orbison sem stóð á
hátindi frægðarinnar um
1965 hefur gert samning við
Virgin Records i Bretlandi
og fyrsta smáskífan er vænt-
anleg; lagið In Dreams sem
hanngaffyrstút1963!. . .
Tom Petty varð fyrir því á
dögunum að einbýlishús
hans i Kaliforníu branntil
kaldra kola. Rokkarinn var
heima við ásamt fjölskyldu
sinni er eidurinn braust út
en enginn meiddist. Lögregl-
an telur mögulegt að einhver
hafi kveiktí húsi Pettys...
sjáumst...
-SþS-