Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Síða 32
44
FÖSTUDAGUR 5. JUNÍ 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Tony Curtis
hefur snúið baki við leiklistinni
og haslar sér nú völl sem mynd-
listarmaður á Hawaii. Berfættur
með upplitað hárið málar karl-
inn allt mögulegt sem fyrir augu
ber og þarf engan að undra að
listamennirnir Matisse og Van
Gogh eru hans stærstu fyrir-
myndir. Karlinn segist láta frá
sér málverk með því hugarfari
að það sé hans eigið afkvæmi
og er því fullur trega við hverja
sölu. Þessi hressi leikari hefur
ekki einungis snúið baki við
Thaliu heldur er Bakkus kominn
á svartan lista líka. Ekki fer vín-
dropi eða pillubrot inn fyrir hans
varir framar að eigin sögn og
J útlitið fer stórbatnandi í takt við
nýupptekið lífernið.
Victoria
Principal
á ekki að sleppa auðveldlega
við bílslysin hérna megin grafar.
Þegar Victoria var um tvítugt
lenti hún í alvarlegu slysi sem
gerði það að verkum að hún
sagðist hafa áttað sig á því að
maðurinn ,er ekki eilífur. Við
þrottför hennar úr Dallasþáttun-
um hafa framleiðendur komist
að þeirri niðurstöðu að svið-
setningin á förinni muni einna
Ahelst verða framkvæmanleg í
bílslyssformi. Hún á aö brenna
huggulega til bana í logandi
flakinu en að því loknu má svo
alltaf síðar lifga kvenmanninn
við, blanda í atburðina minnis-
leysi og skella henni í plastikað-
gerð.
Rainier fursti
hefur ekki farið varhluta af þessa
heims áhyggjum enda tekur lífið
sjálft lítið mark á því hvort menn
búa í hreysi eða höll. Karl held-
ur sér samt allvel líkamlega,
stundar enda markvissa líkams-
þjálfun daglega. Aukapundin
vilja þó safnast utan á hans
hátignarlega skrokk enda er
Rainier sælkeri hinn mesti og
naslar í öll möguleg sætindi
milli mála. í slíkum tilvikum
koma barnabörnin sér ágæt-
lega, þau er sumsé hægt að
taka í fangið og gefa ammin-
ammi að smjatta á - og þá er
ekki mikið við því að segja þótt
einn og einn biti ruglist upp í
afann góða og gjafmilda.
I>V
ís-
skápur
r
1
sólbaði
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Það eru ekki allir íssskápar
sem anda köldu. Þessi ísskápur, sem
sést á myndinni, er ættaður frá Akur-
eyri og í sumarblíðunni á dögunum
brá hann sér eins og aðrir Akur-
eyringar út í sólina og hitaði sig
upp. Annars virðist þetta hafa verið
stutt sumar á Akureyri því það var
eins og við manninn mælt - mánu-
daginn fyrsta júní var kominn
norðankaldi og rigning. Hitastigið
fór niður í fjögur stig og vinur okkar
á svölunum brá sér því inn í eldhús
aftur og fór aftur að anda köldu.
Kvenmanns-
lausir
Rotarymenn
Rotarymenn hérlendir hafa ekki fengið á sig salómonsdóm eins og bræð-
ur þeirra vestra og koma því saman kvenmannslausir enn um sinn. í
henni Ameríku féll hins vegar dómur fyrir skömmu þess efnis að óheim-
ilt væri að reka klúbb þann úr heildarsamtökunum sem hafði stigið það
örlagaríka skref að hleypa kventegundinni inn á fundina - og skrá kvens-
urnar sem fullgilda félaga að auki.
A Islandi er ódæmt ennþá og því haldast Rotaryfundir kyngreindir enn
um sinn. Á meðfylgjandi DV-myndum BG eru félagsmenn í Rotaryklúbb-
um Garða og Seltjarnarness - en síðarnefndir buðu fyrrnefndum til teitis
á Nesinu. Ræðumaður kvöldsins var Vernharður Bjarnason en honum
var klappað lof í lófa að tölu lokinni.
Einar Elísson kaupmaður, Jón Sveinsson framkvæmdastjóri, Örn Eiðsson,
forseti Rotaryklúbbsins i Görðum, Jón B. Stefánsson starfsmannastjóri og
Ólafur G. Einarsson alþingismaður.
Hann lét fara vei um sig á svölunum í sólinni.
DV-mynd JGH
Vernharöur Bjarnason, fiskvinnslu- og innflutningsmaður, og Jóhannes Benedikt Blöndal hrl., Halldór E. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, og Guðjón
Ástvaldsson bílasali. Jónatansson vélsmiður og Gróttuvörður.
jón Sveinsson framkvæmdastjóri, Börkur Thoroddsen tannlæknir og Magn-
ús Valdimarsson í Pólum.
Gunnar Bjarnason, vélaverkfræðingur og formaður klúbbsins á Seltjarnar-
nesi, og Örn Smári röntgenlæknir.