Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
DaÉ
í Cannes
Frændur vorir Danir hafa vit á að
halda sig þar sem fjörið er og að sjálf-
sögðu lögðu þeir allnokkrir leið sína
til Cannes á kvikmyndahátíðina.
Kirsten Lehfeldt skemmti sér greini-
lega ágætlega á ströndinni en til
þess að létta lund hennar og nær-
staddra ljósmyndara var fyrirsætan
frá Fjóni - Jette Mailand - eins og
ábyrgðarsending af himnum.
Belgíski kraftajötunninn Luc Van Lierde reyndi fyrir
skömmu að setja nýtt heimsmet með því að draga tíu
tonna vörubíl eftir aðalgötunni í heimabæ sínum á sem
stystum tíma.
Lierde tókst að draga bílinn 25 metra en var þá svo
óheppinn að renna illilega á hálli götunni og meiða sig
þannig að hann varð að gefast upp. Metið bíður betri
tíma.
IMM
Símamynd Reuter
Rainier meö föðurnum sem meðal annars lagði á ráðin um að ræna synin-
um.
Mónakó:
Ódæl
furstamóðir
Eplið hefur ekki fallið langt frá
eikinni þegar Stefanía af Mónakó
fæddist. Hún þvkir minna allmjög á
ömmu sína - Charlotte - móður Ra-
iniers. Sú góða kona var fjöllynd
mjög - reyndar svo að til vandræða
horfði fvrir eiginmanninn Pierre de
Polignac.
Elskhugar Charlotte voru meðal
annars fangar sem voru skjólstæð-
ingar hennar - en Charlotte starfaði
mikið að fangahjálp. Bílstjórinn.
nuddarinn, allmargir dansarar og
leikarar - að óglevmdum franska
fjöldamorðingjanum Mad Pierrot -
lentu í náðinni reglubundið. Að lok-
um var eiginmaðurinn fullsaddur á
tilteþtum eiginkonunnar og þau
skildu eftir níu ára hjónaband.
Charlotte hélt Rainier litla og
barðist faðir hans árum saman fyrir
því að fá soninn til sín. Hann taldi
Charlottu óhæfa móður og ein af til-
raunum Pierre til þess að ná syninum
var mannránsáætlun sem lögfræð-
ingar töldu hann á að leggja til
hliðar - gegn talsverðri fjárupphæð
frá Charlotte. Karl lét til leiðast og
þáði aurana.
Lyktir urðu þær að afi Rainiers ól
hann upp heima í Mónakó og korn-
ungur tók Rainier við furstadæminu.
Þykir honum hafa tekist stjórnin vel
en erfiðleikarnir með Stefaníu prins-
essu ræna kappann lífsgleði og
heilsu. Hún þykir ótrúlega lík ömmu
sinni og er því kvöl furstans allt ft-á
æskuárunum framlengd með fram-
ferði dótturinnar. Þar er varla
nokkuð að breytast ef að likum lætur
því Charlotte var á sínum tíma bana-
hress allt fram i andlátið.
Charlotte, móðir Rainiers fursta, var
ódæl mjög og hamstraði elskhuga
eins og hver dagur væri hennar síð-
asti.
45
__________,t -
Sviðsljós
Ólyginn
sagði... </
Játvarður prins
er kominn með eina huggulega
kvenveru sér við hlið. Sú heitifc ^
Elanor og hefur það helst sér til'
ágætis að vera lifandi eftirmynd
hinnar bráðhressu Fergie. Svo
líkar eru kvensurnar í útliti að
það þarf fleira en eitt tillit til
þess að átta sig á að þarna er
ekki eiginkona Andrews á ferð-
inni. Annars var Játvarður helst
að halla sér að Ijóskunni Romy
Adlington en það samband var
snarlega rofið þegar i Ijós kom
að Romy hafði fleiri en einn í
takinu í einu. Að sjálfsögðu
voru það dagblöðin sem fyrst
voru með þær fréttir og sam-
dægurs var Romy tekin af
gestalista hallarinnar.
x J
Karl Bretaprins*1
er í slæmu máli núna. Flugu-
fregnir herma að hann hafi eytt
allmörgum dögum á Italíu einn
á ferð með þarlendri þokka-
gyðju og hvín nú hressilega í
hans vel klæddu eiginkonu.
Bretar segja þau hjónin fjar-
lægjast hvort annað óðfluga og
á Diana ekki góða daga á
heimavelli. Hún varð einnig fyr-
ir því áfalli fyrir skömmu að
uppáhaldslífvörðurinn hennar
lenti í bílslysi og lét samstundis
lífið. Þegar í Ijós kom hversu
náið samband hans og Diönu
var orðið á síðasta ári var kapp-
anum sagt upp störfum en
eitthvað mun Diana samt hafcF' ‘
leitað til hans í erfiðleikum eftir
það - enda maðurinn trúnaðar-
vinur númer eitt, tvö og þrjú.
Nú er hann sumsé ekki til stað-
ar lengur og því heldur lítið við
að vera í hallargarðinum.
Sean Connery
er farinn að eldast og næmi
karlsins fyrir fögrum Ijóskum
dofnar dag frá degi. hiann er
góðu vanur i hlutverki þess
eldklára núllnúllsjö og fagrar
konur flykkjast ennþá í kring-
um kappann eins og mý á
mykjuskán. Meðfylgjandi
mynd sýnir eftirlaunanjósnar-
ann með jaggerljóskuna Jerry
Hall sér við hlið og augljós-
lega verður hún að hafa sig
alla við ef takast á að vekja á
orðræðunum einhverja at-
hygli. Jerry lætur samt ekki slá
sig út af laginu enda brosmild
og geðgóð kona með afbrigð-
um.