Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1987, Qupperneq 36
FRÉTT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987.
Verfdræðingar
í verkfall
Verkfall verkfræðinga, sem
starfa á verkfræðistofum, hófst á
miðnætti og nær það til um 70
manns, samkvæmt upplýsingum
sem DV fékk hjá Guðlaugi Þor-
valdssyni ríkissáttasemjara.
Verkfallið nær ekki til verk-
fræðinga hjá ríki og sveitarfélög-
um. sem semja sér, en tekur til
verkfræðimenntaðra starfsmanna
verkfræðistofanna. Að sögn ríkis-
sáttasemjara er ekki búist við því
að nýr fundur í deilunni verði boð-
aður fvrr en eftir hvítasunnu.
Hilmar Sigurðsson. formaður
samninganefndar ráðgjafarverk-
fræðinga. sagði í morgun að
samningar strönduðu á launaliðum
og væru kröfur verkfræðinga upp
á nær 50 % launahækkun frá jan-
úarlaunum en þar inni í væri
"Sir vinnutímastytting upp á 8.5%.
Sagði hann að ráðgjafarverkfræð-
ingar hefðu boðið 17-18% launa-
hækkun. Ekki bjóst hann við að
samningar næðust alveg á næst-
unni. þar sem báðir aðilar hefðu
lýst því vfir að þeir hefðu gengið
eins langt í samnomulagsátt og
þeir teldu fært.
-ój
Gulko vann
' toppuppgjörið
Anna Gulko sigraði Tyhala á
skákmótinu á Egilsstöðum og tókst
þannig að verða ein efst með 4
vinninga. Þeir Sævar Bjarnason,
Dan Hansson og Tyhala koma í
humátt á eftir með 3 vinninga.
Úrslit urðu þau að Gulko sigraði
Tyhala, Lárus Jóhannesson og
Þröstur Árnason gerðu jafntefli,
Sævar Bjarnason sigraði Róbert
Harðarson, Dan Hansson sigraði
Adelman. Pálmi Pétursson og Per-
enyi gerðu jafntefli, Þröstur
Þórhallsson og Tómas Björnsson
gerðu jafntefli, Jón G. Viðarsson
ií jfc og Ólafur Kristjánsson einnig jafn-
tefli. Jón Á. Jónsson sigraði
Hannes Hlífar Stefánsson, Thuesen
sigraði Elvar Guðmundsson, Hrafn
Loftsson sigraði Gerald Hund og
Gylfi Þórhallsson sigraði Zavan-
elli.
-JFJ
LOKI
Fær rebbi ekki lika brún-
aðar umframkartöflur?
Níu hundrað milljónir
i oseljanlegu kjeta
- 500 tonn af nautakjöti ofan í refi á 5 krónur kflóið
refimir fá innan tíðar, verða aeld á mánuði og nú stefhir í jafhvægi
refabændum á 5 krónur kílóið til milli framleiðslu og neyslu. Svína-
málamynda. Þetta er hakk fyrir kjötsneysla eykst einnig jafrit og
rúmar 100 milljónir króna. Þar af þétt og engar umframbirgðir eru til
lenda 30 milljónir á framleiðendum af því. Þá er kjúklingakjötið ótalið
beint, 20 milljónir á sláturleyfis- en vitað er, þrátt fyrir torfengnar
höfum og 50 milljónir á Framleiðni- upplýsingar, að í þeirri grein hefur
sjóði sem hefur tekjur af framleiðslu verið umframframleiðsla síðan í
á þessu kjöti og mjólk. haust og að kjúklingabændur og
Annars hefúr nautakjötsneysla eggjaframleiðendur beijast í bökk-
aukist að undanfömu um 3040 tonn um um þessar mundir. -HERB
Hrikalegar umframbirgðir af
óseljanlegu kindakjöti liggja nú í
frystigeymslum víðs vegar um
landið. Það em um 2.000 tonn af
lambakjöti og um 1.000 tonn af ær-
kjöti, að heildsöluverðmæti hátt í
800 milljónir króna. Nú er verið að
hakka 500 tonna umframbirgðir af
nautakjöti í refafóður og þar fiúka
100 milljónir.
Ærkjötsbirgðimar era að mestu
eign Framleiðnisjóðs sem leysti út
hjá bændum í haust um 900 tonn.
Þetta kjöt átti að selja Sovétmönn-
um fyrir lítinn pening en það tókst
ekki. Enginn markaður er fyrir þetta
kjöt né lambakjötið nema þá á broti
af skráðu heildsöluverði hérlendis.
Þetta má því teljast að miklu leyti
tapað fé en enginn veit ennþá hvem-
ig á að bregðast við þessum skelli.
Þau 500 tonn af nautakjöti sem
Tafðist
Mikil leit fór fram í gær að fimm
tonna báti. Báturinn fór frá Vest-
mannaeyjum klukkan hálfsex á
miðvikudag, á leið til Hafnarfjarðar.
Þegar ekkert hafði heyrst til ferða
bátsins á fimmtudagsmorgun óskaði
Slysavamafélagið eftir aðstoð Land-
helgisgæslu. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar hóf leit skömmu eftir hádegi
í gær. Leitað var á venjulegri sigl-
ingaleið. Veður var mjög gott á
þessum slóðum. Um miðjan dag varð
þyrla að fara til Reykjavíkur til að
ná í meira eldsneyti. Þá fór flugvél
Flugmálastjómar ásamt þyrlunni til
áframhaldandi leitar.
Báturinn fannst klukkan 19.30 í
gærkvöld. Var hann þá á siglingu
undan Staðarbergi á Reykjanesi á
leið til Hafharfjarðar og virtist allt
vera í stakasta lagi um borð í bátn-
um. Einn maður var um borð. Hann
sagði við DV í morgun að þegar
hann hefði verið búinn að sigla í
fjóra tíma frá Vestmannaeyjum hefði
drepist á vél. Hefði hann verið á
reki í sjö til átta klukkustundir og
rekið í suðvesturátt, og þar með af
venjulegri siglingaleið. Talstöðin í
bátnum datt út þegar vélin bilaði
og tókst manninum ekki að koma
henni í gang á ný.
Þegar báturinn fannst vora félagar
í Slysavamafélaginu famir að ganga
fjörar, allt frá Landeyjarsandi að
Reykjanesi. Hálfdán Henrysson hjá
Slysavamafélaginu vildi fá að koma
þakklæti til allra sem aðstoðuð við
leitina.
-sme
Mikil lert að báti:
t* .; * ;j> ;a
S T'l h? :: !-^*i ■>. *
Kristbjörg Sveinsdóttir VE í Hafnartjaröarhöfn.
DV-mynd S
létt
yfir
landslýð
Veður helst áfram með betra mót-
inu og á morgun verður hæg,
breytileg eða norðaustlæg átt. Víða
verður léttskýjað til landsins en
sums staðar skýjað við ströndina -
einkum norðantil. Hiti 8-13 stig
nema á annesjum fyrir norðan. Þar
verður heldur svalara.
Steingrímur
í utan-
ríkismál
Skipting ráðuneyta er talin verða
umræðuefhi fljótlega á milli Alþýðu-
flokks, Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks.
Forystumaður í Framsóknarflokkn-
um kvaðst í gærkvöldi búast við að
Sjálfstæðisflokkur sætti sig ekki við
annað en að hafa forsætisráðuneytið.
Á móti yrði hann að fallast á að hafa
þrjá ráðherra eins og hinir.
Steingrímur Hermannsson tæki þá
utanríkisráðuneytið en fengi einnig
undir sig utanríkisviðskipti við það
að viðskiptaráðuneytið yrði lagt nið-
ur. Fjármálaráðuneytið kæmi í hlut
Alþýðuflokks.
Viðmælandi DV bjóst við að sjávar-
útvegsráðuneytið gæti orðið bitbein
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks en Alþýðuflokkurinn kæmi
ekki til greina í það frekar en land-
búnaðarráðuneytið.
-KMU
Innflutn-
ingsbann
á grænmeti
Einokunarvofan er farin að sýna sig
í grænmetismálunum. Innflutnings-
bann á ellefu tegundir gengur í gildi
á þriðjudaginn kemur og Sölufélag
garðyrkjumanna neitar að afgreiða
einn dreifingaraðilann vegna þess að
hann vill ekki lofa því að versla ekki
beint við bændur.
„Þetta era skýlaus lagabrot og við
höfum kvartað undan þessu við við-
komandi yfirvöld," sagði Gísli V.
Einarsson hjá Mata í samtali við DV.
Gísli sagði einnig að þessar aðgerðir
Sölufélagsins væra beinlínis til þess
fallnar að halda verði á grænmeti
miklu hærra en eðlilegt gæti talist.
„Yfirvöld tolla grænmeti óþarflega
hátt þegar ekki er um innflutta fram-
leiðslu að ræða á markaðinum, í
sumum tilfellum hátt í 100%,“ sagði
Gísli V. Einarsson.
-A.BJ.