Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 12
12
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
Neytendur
Hverjar eru
bæjarins bestu?
DV ákvað að leggja land uiidir fót
og kanna pylsur bæjarins, bæði verð,
útiit og bragðgæði. Könnun var gerð
á ellefú pylsusölum, þar af átta pylsu-
vögnum og þremur sjoppum.
Til að kanna bragðgæði fékk Neyt-
endasíðan lánaðan einn fráskilinn úr
annarri deild blaðsins. Því næst voru
hann og blaðamaður Neytendasíðu
sveltir um hríð en þegar gamir voru
famar að gaula vom þeir sendir af
stað í pylsuát.
Niðurstöður könnunarinnar era í
stuttu máh þær að pylsumar virðast
jaíhmisjafnar og þær era margar.
Gefnar vora einkunnir frá núil upp í
fimm fyrir sex atriði, en þau era: út-
lit, brauð, pylsa, laukur, annað og
afgreiðsla. Síðan voru einkunnimar
lagðar saman og deilt í þær með sex,
en þannig fékkst meðaleinkunn.
Hæstu meðaleinkunnina fékk pylsu-
vagninn við Sundhöllina en lægstu
einkunnina fékk pylsuvagninn í Aust-
urstræti en þar var remúlaði súrt og
hafði það mikil áhrif á heildarein-
kunn. Annars var einkunnin fimm
ekki gefin nema tvisvar en það var
fyrir brauð hjá Bæjarins bestu, og fyr-
ir útht hjá pylsuvagninum við
Sundhöh. Aðeins einu sinni var gefið
núh og var það fyrir áðumefht remúl-
aði.
Það kom nokkuð á óvart að verð
virðist víðast hvar vera það sama eða
75 kr. Aðeins þrír staðir vora með
annað verð, bæði Nestin, en þar kost-
aði pylsan kr. 90, og Nestuminn við
sundlaug Seltjamamess en þar kost-
aði hún 80 kr.
Ahar pylsumar vora frá sama fram-
leiðanda, SS.
-PLP
Spað i sperðil.
Svona á pylsa að líta út, fimm I ein-
kunn.
Ekki hress með þessa, ólundarsvipurinn leynir sér ekki.
DV-myndir S
Þessi er sú besta.
DV
K / N N A R:
1 JS? J A & ^
Bæjarnesti Essonesti Ártúns- brekku Nesturninn sundlaug Seltjarnarn. Pylsuvagn Laugavegi Pylsvagn v/Vestur- bæjarlaug Pylsuvagn v/Sundhöll Bæjarins bestu Pylsuvagn Lækjartorgi Pylsuvagn Austurstr. Pylsuvagn Laugardal Tvisturinn ' Lokastíg
Verð kr. 90 90 80 75 75 75 75 75 75 75 75
Útlit 1 4 3 5 3 5 3 1 2 2 3
Brauð 3 2 2 3 3 3 5 1 1 4 2
Pylsa 3 3 2 3 4 4 4 3 2 4 3
Laukur 3 3 4 4 5 3 3 2 2 1 3
Annað 3 3 3 3 4 4 3 2 0 3 3
Afgreiðsla 3 2 3 4 4 4 3 3 4 2 3
Meðal eink. 2,7 2,8 2,8 3,7 3,8 4 3,5 2 1,8 2,7 2,8
Lúgan er vist miðuð við það að menn
séu akandi.