Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1987, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1987.
31
íþróttir
Hvað segja norsku blöðin?
STUMPENE L0S!
, VERREwrrvSsfiÍS^M
iRqqnarok pq UHevua
Töpin tvö gegn íslendingum:
Bns og rótarfyll-
ing án deyfingar!
Sigur Islendinga á Norömönnum
vakti gífurlega athygli í Noregi en
Osvold í
stríði við
Forest
Þaö eru fleiri knattspymukappar
en Sigurður Jónsson sem eiga undir
högg aö sækja í ensku knattspym-
unni. Á meðal þeirra er norski
landsliðsmaðurinn Kjetil Osvold. Sá
leikur undir stjóm Brian Clough hjá
Nottingham Forest og hefur hann
shtið varamannabekknum í allra
síðustu umferðum. Ástæðan er ekki
slök framganga Osvold heldur hitt
að hann hefur lagt sig fram um aö
hundsa vilja félagsins og að mæta í
landsleiki með Noregi.
„Ég þekki vel að Osvold hefur
heimild í samningi sínum til að leika
með norska landsliðinu í vissum til-
fellum,“ segir Brian Clough, „en það
má ekki horfa fram hjá því að hann
sleppir leikjum með félagi sínu nán-
ast í hvert sinn sem slíkt gerist. Þetta
mál þarf ég að ræða við Osvold. Ég
er oft spurður hvað valdi setu Norð-
mannsins á bekknum. Svarið er í
raun sáraeinfalt. Hann er aldrei til
staðar þegar kalhð kemur." -JÖG
eðlilega htla lukku. Tíaldað var
svörtu í dagblöðum og virðist
heimurinn á heljarþröm sé þeim
flett.
í Aftenposten, einu útbreiddasta
blaði landsins, segir til að mynda
að sigur íslendinga á Norðmönnum
marki skil í knattspymusögu
heimamanna.
„Loksins beið norska hðið algert
skipbrot," segir í blaðinu, „og um
leið er það sokkið til botns.“
í Arbeiterbladet segir hins vegar
að „htla-fmgurs þjóðin“ íslending-
ar hafi unnið sinn fyrsta sigur á
útivelh í átta ár en því miður á
norskri grand.
Eins og rótarfylling án deyf-
ingar
Blaðamenn norska Dagblaðsins
fara ekki í launkofa með skoðun
sína, fremur en félagar þeirra á
öðrum þarlendum blöðum. Á
íþróttasíðunni er harðorð grein
undir fyrirsögninni „Verra en það
versta:
„Annað tapið gegn íslandi á ör-
fáum dögum,“ segir í greininni, „er
sem rótarfylhng án deyfingar.
Aldrei hefur það verið voðalegra
að sitja í stúkunni á Uhevaal. í sam-
anburði við það hlutskipti er
tannlæknastóliinn sem vindsæng."
í sama blaði segir á öðrum stað
Pétur ekki með
Fram í Prag?
Flest bendir til þess að Pétur
Ormslev glími ekki með Framhðinu
í Tékkóslóvakíu. Þar á félagið að
etja kappi við Spörtu frá Prag. Viður-
eignin er þáttur í Evrópukeppni
meistarahða og er senn framundan
sú síðari. Fram tapaði fyrri leiknum
hér heima, 0-2.
„Ég er enn slæmur í löppinni,"
sagði Pétur Ormslev í örstuttu spjalh
við DV í gær.
„Ég er því ekki bjartsýnn á að ég
leiki með Framhðinu gegn Spörtu í
Tékkóslóvakíu."
-JÖG
að Haakan Lundgren dómari hafl
verið hagstæður Norðmönnum
fram úr hófl.
„Hann gerði aht sem maður gat
óskað sér en framlag hans dugði
ekki norska hðinu til sigurs," segir
blaðamaðurinn í grein sinni.
Ragnarrök á Ullevaal
Ragnarök á Uhevaal, er tröhstór
fyrirsögn í Verdens Gang, stærsta
dagblaði Norðmanna.
í umsögn um leikinn segir að
hann hafi verið lyginni líkastur.
„Ég reyni hvað ofan í annað að
khpa mig í handlegginn og vakna
th veruleikans í þeirri von að þetta
hafi aht verið vondur draumur,"
segir fréttamaður blaðsins og er
honum mikið niðri fyrir.
„Við töpuðum, 0-1, fyrir íslandi,“
heldur hann áfram, „með níu at-
vinnumenn í okkar hði, á heimvehi
og þar fyrir utan með sænskan
dómara á okkar bandi. Það er því
ljóst að við erum á sama stahi og
hð Færeyinga, Grænlendinga og
Lúxemborgara. Leikurinn við ís-
land er harmsaga í norskri knatt-
spymu. Gjörvöh Evrópa hlær að
ófórum okkar. Við getum þó glaðst
yfir einu. Snjórinn mun falla innan
tíðar og hvað sem öðru líður þá
erum við örugglega betri en íslend-
ingar í skíöastökki.“
-JÖC^j
PerVoldtók
við af Knapp
Brottrekstur enska knattspymuþjálf-
arans Tonys Knapp frá norska 1.
dehdar félaginu Brann hefur vakið
gífurlega athygli í Noregi. Mál þetta
fáer verulegt vægi hér í blöðum enda
tekur það á sig nýja mynd á degi hverj-
um.
Eins og málum er nú komiö er rétt
eins víst að brottvikning Knapp muni
draga dilk á eftir sér. Nú þegar eru
illiifláiilillÉWtiillira
samtök norskra þjálfara flækt í máhð
sem hófst, eins og margir vita, með
trúnaðarbroti Knapps viö félag sitt.
Nýr þjálfari hefur nú verið ráðinn
th Brann og heitir Per Vold. Hann er
nú þegar farinn að prédika yfir leik-
mönnum hðsins. Per Vold mun stýra
félaginu í úrshtum bikarsins og í þeim
leikjum sem eftir eru í norsku 1. dehd-
inni. -JÖG
liiliiiiiiíiiiiiiliiiiiiiiipliviliiil:
Souness fékk
5 leikja bann
Graeme Souness, framkvæmdastjóri og leikmaður með Glasgow
Rangers, var í gær dæmdur í fimm leikja bann af sérstakri hegöunar-
nefnd innan skoska knattspymusambandsins. Bannið kemur í kjölfar
brottvísunar vegna Kjaftbrúks viö dómara í leik gegn Celtic í upp-
hafi keppnistímabilsins.
Souness fékk aövörun um að haga sér sómasamlega í framtíðinni
en fékk ekki peningasekt. Souness verður löglegur á nýjan leik með
Rangers þegar hðið mætir Aberdeen í úrsbtaleik skoska dehdarbik-
arsins á Hampden Park. -JKS
Stórsigur
hJáTBR
Lið TBR, sem tekur þátt í Evr-
ópukeppni félagshöa í badminton
í Austurríki þessa dagana, keppti
sinn fyrsta leik á mótinu í gær.
TBR fór vel af stað og sigraði írsku
meistarana, CYM Badminton Club
frá Dublin, 6-1.
Aö sögn Daníels Stefánssonar
var sigur TBR aldrei í hættu. Liðið
er í góðri æfingu um þessar mund-
ir og er hugur í mönnum fyrir
næsta leik en haim er 1 dag gegn
finnsku meisturunum SMASH frá
Helsintó. -JKS
Aloha mót í
Gratamoiu
Á morgun, laugardag, fer fram í
Grfarholti styrktarmót fyrir sveit
GR sem keppa mun fyrir íslands
hönd í klúbbakeppni Evrópu í golfi
á Spáni í nóvember nk. Kylfingar
eru hvattir til að fjölmenna á mót-
iö og styðja þannig sveitina. Leikin
veröur 18 holu punktakeppni með
fullri forgjöf. Ræst verður út frá
kl. 9.00.
• Á sunnudag kl. 10.00 fer fram
unglingamót í Grafarholti. Leikin
verður Joursome".
• Á laugardag fer fram Akra-
pijónsmótiö í golfi á Akranesi.
Keppt veröur í kvennaflokki.
-JKS
Ósanngjam
sigur V-Þjóð-
veija á Dönum
Siguiöur EjöinaBon, DV, Þýakalandi:
Mark Rudi Vöhers á 33. mínútu
tryggði Vestur-Þjóðverjum sigur
gegn danska landsliðinu í vináttu-
leik þjóðanna i Hamborg.
Leikmenn danska hðsins yfir-
sphuöu þá þýsku langtímum
saman. í fýrri hálfleik átti Preben
Elkjær Larsen hörkuskot í þverslá
og skömmu síðar sleppti slakur
dómari augljósri vítaspymu þegar
Herget fehdi Jesper Olsen innan
vítateigs. -SK
Siggi lék með
Sheff. Wed og
stóð sig vel
Sigurður Jónsson lék með Sheff-
ield Wednesday gegn Shrewsbury
í enska dehdabikamum í vikunni.
„Siguröur sphaði allan leiktímann
og skilaði hlutvertó sínu vel,“ sagði
H. Mackreh, ritari Shefiheld Wed-
nesday, í samtah við DV í gær.
-JKS
Gunnar og
Rögnvaldur
dæma í Noregi
Handknattleiksdómararnir
Rögnvaldur Erlingsson og Gunnar
Kjartansson dæma leik í Evrópu-
keppni meistarahða um helgina.
Þaö er leikur norska hðsins Sta-
vanger og danska hðsins Kolding
og fer leikurinn fram í Noregi.
Þetta er fyrsti alvöruleikurinn í
langan tima sem íslenskir dómar-
ar er fengnir th aö dæma í
Evrópukeppni meistarahða.
• Þeir hafa einnig veriö th-
nefhdir af alþjóöa handknattleiks-
sambandinu th aö dæma á
heimsmeistarakeppni kvenna 21
árs og yngri sem hefst í Danmörku
24. október. Mótiö stendur yfir í
10 daga. í byrjun desember munu
þeir dæma á Polar Cup mótinu í
Noregi sem er 6 landa keppni
sterkra handknattleiksþjóöa.
-JKS