Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 6
6 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Viðskipti Byggingar- visitalan hækkar um 0,37 prósent Vísitala byggingarkostnaöar hækkar 1. janúar um 0,37 prósent frá því í desember. Hagstofa ís- lands hefur reiknað hana út og reyndist hún vera 107,9 stig. Þessi vísitala gildir fyrir janúar áriö 1988. Samsvarandi vísitala fyrir eldri grunn er 345 stig. Síðastliðna tólf mánuði hefur byggingarvísitalan hækkað um 18 prósent og undanfarna þrjá mánuði hækkaði hún um 5,4 pró- sent sem gerir um 23 prósent á heilu ári. Hækkunin nú stafar mest af hækkun gatnagerðar- gjalda og hærri töxtum Raf- magnsveitu Reykjavíkur. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 20-22 Lb.lb, Úb.Vb, Sp Sparireikningar 3jamán. uppsögn 20-24 Úb.Vb 6mán. uppsögn 22-26 Úb 12 mán. uppsögn 24-30,5 Úb 18mán. uppsögn 34 Ib Tékkareikningar, alm. 6-12 Sp.lb. Vb Sértékkareikningar 12-24 Ib Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn 3,5-4 Ab.Úb, Lb.Vb Innlán með sérkjörum 18-34 Sb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6-7,25 Ab.Sb, Sterlingspund 7,75-9 Ab.Sb Vestur-þýsk mörk 3-3,5 Ab.Sp Danskar krónur 8,75-9 Allir nema Bbog Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 33-34 Sp.Lb. Úb.Bb. Ib.Ab Viðskiptavixlar(forv.)(1) 36 eöa kaupgengi Almenn skuldabréf 36-37 Lb.Bb, Ib.Ab, Sp Vióskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 36-39 Lb.Bb, Ib.Ab, Sp utlán verðtryggð Skuldabréf 9,5-9,75 Allir nema Úb Útlántilframleiðslu Isl. krónur 31-35 Úb SDR 8-9 Vb Bandarikjadalir 9-10,5 Vb Sterlingspund 10,5-11,5 Vb.Úb Vestur-þýsk mörk 5.5-6,5 Vb Húsnæðislán 3,5 Lifeyrissjóðslán 5-9 v Dráttarvextir 49,2 4,1 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. des. 87 35 Verðtr. des. 87 9.5 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala des. 1886 stig Byggingavísitalades. 344 stig Byggingavisitalades. 107.5stig Húsaleiguvisitala Hækkaði 5% . okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Ávoxtunarbréf 1,3536 Einingabréf 1 2,507 Einingabréf 2 1,466 Einingabréf 3 1,553 Fjólþjóðabréf 1,140 Gengisbréf 1,0295 Kjarabréf 2,518 Lífeyrisbréf 1.260 Markbréf 1,277 Sjóðsbréf 1 1,226 Sjóðsbréf 2 1,226 Tekjubréf 1,317 HLUTABREF Soluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennartryggingar 130 kr. Eimskip 365 kr. Flugleiðir 252 kr. Hampiðjan 136 kr. Hlutabr.sjóðurinn 141 kr. Iðnaðarbankinn 154 kr. Skagstrendingurhf. 186kr. Verslunarbankinn 133 kr. Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt- um og nokkrir sparisj'. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. DV Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur: Hropin sýna að vextimir eru famir að slá á efdrspumina „Hróp manna aö undanfórnu um að vextirnir séu of háir og veiki rekstrarstöðu fyrirtækja sýna best að vextimir eru farnir að virka og slá á eftirspurnina. Það að mönnum finnist vextir of háir ætti að minnka áhuga þeirra á að taka lán. Þaö þýð- ir aftur að menn hætta við fjárfest- ingar og draga saman seglin í rekstri. I kjölfarið minnkar eftirspurn eftir vinnuafli," segir Vilhjálmur Egils- son, hagfræðingur og framkvæmda- stjóri Verslunarráðs íslands. Vilhjálmur segir ennfremur að það sé liðin tíð á íslandi að reka fyrir- tæki með lánsfé á neikvæöum vöxtum. „Áður gátu menn fjármagn- að tap með lánum sem báru nei- kvæða vexti og þannig náð í verðbólguhagnað. Það heyrir sög- unni til. Menn ættu að breyta um hugsunarhátt. Sjái þeir að fyrirtækið er rekið með tapi og allt stefni í óefni ættu þeir frekar að hugsa um að stöðva reksturinn en halda áfram að tapa og taka dýr lán. Það kemur allt- af að skuldadögum fyrr eða síðar.“ Að sögn Vilhjálms eru greinileg einkenni samdráttar í efnahagslífi íslendinga og það fyrr en menn reiknuðu með. „Það stefnir allt í sömu átt. Skattbyröin er að stórauk- ast og þar með minnkar kaupmáttur fólks. Og ég heyri að fleiri fyrirtæki séu nú til sölu en áður,“ segir Vil- hjálmur. -JGH Kaupmenn i höfuðborginni verða varir við óvenjumarga utanbæjarmenn i búðum borgarinnar fyrir þessi jól. Enda er rennifæri á öllum vegum. Glasgow-ferðir til Reykjavíkur Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtaka íslands, segir að kaupmenn í Reykjavík verði áberandi meira varir við ávísanir frá fólki utan af landi fyrir þessi jól en áöur og að ljóst sé aö fjöldi utan- bæjarmanna sé í höfuðborginni núna að kaupa jólagjafir. „Eg held að veðrið og þessi ein- muna tíð skipti hér mestu máli,“ segir Magnús. „Það er rennifæri á vegum til borgarinnar og lítið mál fyrir fólk, sem býr til dæmis á Blönduósi eða hvaða staði viö nefn- um, að brenna í borgina til að versla." -JGH Chiysler með 2% af markaðnum Markaðshlutdeild Chrysler i sölu nýrra bíla hérlendis er nú 2 prósent samkvæmt fréttum frá fyrirtækinu Jöfri hf. en það hefur umboð fyrir Chrysler bíla á íslandi. Fyrirtækið hefur selt 300 Chrysler bíla á þessu ári og er aukningin frá í fyrra um 0,33 prósent. Samkvæmt upplýsingum Jöfurs er markaðshlutdeild Chryslers hvergi meiri í heiminum en á íslandi, að Bandaríkjunum frátöldum. -JGH Metár hjá Apple Afkoma Apple fyrirtækisins hef- ur aldrei verið betri en á síðasta ári, segir í nýútkomnu fréttabréfi tölvudeildar Radíóbúðarinnar sem hefur umboð fyrir Apple hérlendis. Haft er eftir framkvæmdastjóra Apple, John Scully, að árið sé met- ár í sögu fyrirtækisins. Alls nam salan 2.661 milljónum dollara eða um 98 milljörðum ís- lenskra króna. Aukning í sölu frá fyrra ári var um 40 prósent. Scully segir ennfremur að skipulags- breytingum innan fyrirtækisins sé nú að fullu lokið. -JGH Stöð 2 er dýrari en Ríkisútvarpið Óvenjuhörð samkeppni á milli Stöðvar 2 og Ríkisútvarpsins hefur vakið mikla athygli í viðskiptalífmu að undanförnu. Barist er um auglýs- endur og þá hefur Stöð 2 verið með sérstaka herferð í áskrifendasöfnun. Þegar áskriftargjald beggja stöðv- anna er borið saman kemur í ljós að áskrift að Stöð 2 er mun dýrari en Ríkisútvarpsins og munar þar um 3.700 krónur á ári. Samkvæmt upplýsingum Stöövar 2 kostar mánaöaráskrift. þar nú 1.250 krónur sem gerir nákvæmlega 15 þúsund krónur á ári. Frá Ríkisút- varpinu fá eigendur litsjónvarps- tækja reikning upp á 2.822 krónur á 3ja mánaöa fresti sem gerir um 940 krónur á mánuði. Það er á ári um 11.288 krónur. Ekki er hér gerður samanburður á efninu. Þannig er dagskrá Stöövar 2 lengri en ríkissjónvarpsins og inni í afnotagjaldi Ríkisútvarpsins er greiðsla fyrir sjónvarp, rás 1 og rás 2. Ennfremur má nefna að afruglari að Stöð 2 kostar nú um 15 þúsund krónur. Þá má ekki gleyma því að allir eigendur útvarps- og sjónvarps- tækja eru skyldaðir samkvæmt lögum að greiða afnotagjald til Ríkis- útvarpsins. Gjaldiö kemur sjálfkrafa. -JGH Olafur Bjómsson, fynverandi hagfvæðiprófessor: Misskilningur að skattlausa árið hafi valdið þenslu „Það er alger misskilningur að mínu mati að halda því fram að skattlausa áriö hafi eitt og sér vald- ið einhverri þenslu. Það er ekki verðbólguhvetjandi ef á móti aukn- um tekjum fólks, sem til eru komnar vegna meiri vinnu, hefur komið aukin framleiðsla. Áhrifm jafnast því út,“ segir Ólafur Björns- son, hagfræðingur og prófessor í hagfræði til margra ára í Háskóla íslands. Ólafur segist ennfremur telja að fólk hafi ekki merkt skattlausa árið á pyngju sinni þar sem það greiddi skatta af tekjum sínum í fyrra og losnaði þess vegna ekki við að greiða skatta þrátt fyrir að árið hafi verið kallað skattlausa árið. -JGH Ari Skúlason, nýráðinn hagfræðing- ur Alþýðusambands íslands. AH til ASI Ari Skúlason hagfræðingur hefur verið ráðinn hagfræðingur ASÍ og tekur hann til starfa upp úr áramót- um. Ari lauk viðskiptafræðiprófi frá Háskóla íslands árið 1979 og stundaði síöan framhaldsnám í þjóðhagfræði við Árósaháskóla í Danmörku. Hann var starfsmaður Kjararann- sóknarnefndar frá miðju ári 1983 fram á þetta ár er hann hvarf til starfa í Danmörku. Ari er fæddur 8. janúar 1956. Hann er kvæntur Jane Marie Pind og eiga þau eina dóttur. -JGH Vel á fimnvta hundrað vorusýningar í nýútkomnum vörusýningabækl- ingi Ferðamiðstöðvarinnar hf. er að finna skrá yfir 450 vörusýningar víðs vegar í heiminum. Bæklingurinn er hinn aðgengilegasti og prýðishjálp- artæki fyrir íslenska kaupsýslu- menn sem sækja vörusýningar erlendis og fylgjast á þann hátt meö nýjungum sem eru aö koma fram á hinum ýmsu sviðum viðskiptalífsins. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.