Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
19
DV
Bömum á að batna
- spjallað við Bjöm Guðbrandsson um „Minningar bamalæknis“
„Þetta byijaöi á því aö þaö birtist
viðtal viö mig í Helgarpóstinum og
í framhaldi af því hringdu bókafor-
lögin í mig. Bókin er unnin þannig
að ég talaði inn á segulband en
Matthías vann textann síðan upp
af því. Mér fmnst þetta ljómandi
vel gert hjá honum. Annars hefði
ég viljað hafa betri tíma til gera
lengri og ítarlegri bók. Þetta er
aðeins lítið brot af minni ævi. Ég
hafði engu að síður mikla ánægju
af því aö rifja það upp,“ segir Bjöm
Guðbrandsson bamalæknir, en
lífssaga hans „Minningar barna-
læknis" kom út á bók nú fyrir jólin.
Matthías Viðar Sæmundsson
skráði söguna, Forlagið gefur hana
út.
- í fyrri hluta bókarinnar segir þú
meðal annars frá uppvaxtarárum
þínum í Skagafirði og minnist á
sýslunga þinn, Friðbjöm Trausta-
son, sem fór aldrei út fyrir túngarð-
inn á Hólum. Þú ert ólíkt víðforlari,
starfar meðal annars í þremur
heimsálfum, viö misjafnar aöstæð-
ur. Varstu haldinn útþrá sem
unglingur?
„Ekki get ég sagt það. Ég barst
bara með straumnum. Þetta leiddi
svona eitt af öðm og var ýmsum
tilviljunum undirorpið. Ég hefði i
sjálfu ekki haft neitt á móti því að
búa alla ævi í Skagafirðinum. Það
er nær að segja að það hafi verið
menntunarþrá sem rak mig af stað
á sínum tíma. Þegar maður ætlar
að sérhæfa sig á einhverju sviði er
nauðsynlegt að fara til útlanda, þó
ekki sé til annars en að víkka sjón-
deildarhringinn. Maöur er svolítið
einangraður hér á íslandi.“
- Á einum stað segir þú að svo
fremi sem heilsan sé góð, sé allt
undir manneskjunni sjálfri komið.
Þú ert ekki forlagatrúar?
„Ég held í þaö minnsta að maður
skapi sér forlög sín að einhverju
leyti sjálfur. Ég þekki til dæmis
fólk sem er aldrei veikt en það er
alltaf eitthvað að því og svo er ann-.
Bókmermtaviðtalið
Jón Karl Helgason
aö fólk sem alltaf er veikt en lætur
það ekki aftra sér.“
Stríð erju harmleikir
„Auðvitaö eru til þær aðstæður
þegar einstaklingurinn hefur lítil
áhrif á sitt eigið líf, til dæmis í styrj-
aldarlöndum þar sem fólk er háð
öðrum, meiri háttar öflum."
- Þú hefur kynnst þeim aðstæðum
víða; í Þýskalandi 1939, þegar upp-
gangur nasista er hvað mestur, og
síðar í Tokýo og Saigon. Hvert er
viðhorf þitt til styrjalda?
„Styrjaldir eru miklir harmleikir
og hafa alltaf verið. Hins vegar geta
þær haft eitt og annað jákvætt í fór
með sér, svo sem framfarir i lækna-
vísindum. Það var til dæmis ekki
fyrr en í.seinni heimsstyijöldinni
að byijað var að framleiöa pensilín,
enda þótt það hafi verið fundið upp
áratug fyrr. í styijöldinni þurfti aö
vera hægt að bjarga lífi hermanna
þannig að þeir gætu haldið áfram
að berjast. Og falla.“
- Svo vikið sé að bamalækningun-
um, þá segir þú að böm séu
öðmvísi sjúklingar en fullorðið
fólk. Hver er mesti munurinn þar
á?
„Það er allt annar andi í sam-
bandi við veik böm. Bömum á að
batna. Nú oröið em mjög fáir sjúk-
dómar banvænir fyrir börn, þannig
að ef þau deyja hafa einhver mistök
átt sér stað. Þetta er auðvitað mik-
il breyting frá því sem var hér áður
fyrr, þegar um 800 af hveijum 1000
börnum dóu.“
- í lokakafla bókarinnar segir þú
að vinnan hafi ekki alltaf hamingju
í för með sér, en hins vegar sé eng-
in hamingja til án vinnu. Getur þú
skýrt þetta nánar?
Menning
Björn Guðbrandsson.
„Hamingjan er vissulega vítt
hugtak sem erfitt er að skilgreina.
Maður hefur hins vegar séð mörg
dæmi þess hve vinnan skiptir
miklu máli fyrir heilbrigði og líf
fólks. Hér í gamla daga rakst mað-
ur á gamalt fólk sem þurfti ekkert
annað en vinnu. Gamlar konur
pijónuðu á böm sín og barnaböm,
alla daga, frá morgni til kvölds og
gamlir menn fundu sér eitt og ann-
að til að dytta að. Þetta fólk hafði
um eitthvað annað að hugsa en ald-
ur sinn eða vanheilsu. Þess vegna
tel ég skakkt að setja fólki inn á
stofnanir þegar það nær ákveðnum
aldri og láta það bíða dauðans. Ef
þú hefur ekkert fyrir stalni ert þú
búinn að vera." -JKH
Stórmarkaðurinn, Skemmuvegi.
Opið í dag, laugardag frá kl. 10-22.
Kynning á Kjörís.
Jólasveinninn kemurkl. 14.
4£íng
FYRIRJ
Gott hangikjöt! Sambandshangikjötið á heildsöluverði:
Frampartur m/beini 299 kr. kg. Læri m/beini 483 kr. kg.
Góðir jólaávextir á mjög góðu verði,
t.d. MAROC mandarínur47 kr. kg.
Ávextir í dós,
t.d. ARDMONDA Blandaðir ávextir 1/i ds. 88 kr.
Jólakonfektið:
CARMEN konfekt 200 gr. 161 kr. 250 gr. 199 kr. 300 gr. 222 kr.
LEIKFANG AM ARKAÐU R,
mikið úrval, gott verð.
Gosdrykkjamarkaður, 10% afsláttur í 1/i og Vz kössum.
Jólaísinn 10% afsláttur.
Jólatrésmarkaður Landgræðslusjóðs.
FYRIR FRAMTÍÐINA