Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Page 29
MÁNUDAGUR' 21. DESEMBER 1987.
29
Nýjar bækur
flNGELfl
Angela Theresa Charles
Bókaútgáfan Skuggsjá hefur gefið
út nýja skáldsögu eftir Theresu
Charles sem nefnist Angela. Eftir
Theresu hafa áður komið út margar
bækur sem enn eru flestar fáanlegar.
Angela Smith kemur til bæjarins
Wheystone frá London. í Wheystone
ætlar hún að sækja um læknisstarf
og reyna að jafna sig um leið í hreinu
sveitalofti og kyrrlátu umhverfi eftir
slys sem hún hafði lent í.
Angela er 232 bls. Bókin var sett
og prentuð í Prismu og bundin í Bók-
felli. Andrés Kristjánsson þýddi
bókina. Verð kr. 1375.
BARBARA -- -|
<g/artland
Ástog hamingja
Barbara Cartland
Ast og hamingja
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar-
firði, hefur gefið út bókina Ást og
hamingja eftir Barböru Cartland.
Þetta er íjórtánda bókin sem Skugg-
sjá gefur út eftir Cartland.
Aðeins tvær persónur bjargast í
land þegar skipið brotnar í klettun-
um við strönd Ferrara, ævintýra-
maðurinn Sir Harvey Drake og hin
fagra Paolina Mansfield.
Ást og hamingja er 176 bls. Bókin
var sett og prentuð í Prentbergi og
bundin í Bókfelli. Sigurður Steinsson
þýddi bókina. Verð kr. 1375.
Karen Blixen
ísafold hefur gefið út bókina Karen
Blixen, ævisaga, eftir Parmeniu Mig-
el í þýðingu Amheiðar Sigurðardótt-
ur og Eyglóar Guðmundsdóttur.
Bókin fjallar um líf skáldkonunn-
ar, gleði og sorgir, og byggir á
viðtölum við skáldkonuna sjálfa og
samferðamenn hennar.
ísafold hefur áður gefið út tvær
bækur Karenar Blixen, Vetrarævin-
týr og Síðustu sögur, og koma þær
nú út að nýju í kiljuformi.
Karen Blixen, ævisaga, er inn-
bundin, 302 bls. Verð kr. 2188.
Enn er skrattanum skemmt
ísafold hefur gefið út bókina Enn
er Skrattanum skemmt... sem er
síðasta bókin af þremur um stúlkuna
á bláa hjólinu eftir Régine Deforges
í þýðingu Þuríðar Baxter.
Nú líður að leikslokum og sögu-
hetjurnar, sem við þekkjum úr
Stúlkunni á bláa hjólinu og í blíðu
og stríðu, hafa nú tekið afstöðu. Tími
reikningsskilanna er kominn.
Bókin er innbundin, 360 bls. Verð
kr. 2130.
• FM steríóútvarp og kasettutæki. 16 Watta
magnari. Stunga fyrir heyrnartól. Innbyggður
hljóðnemi. Kjörin jólagjöf fyrir unglinginn.
• Eldhúsvél. ...1
Hakkar, hnoðar, hrærir, blandar, sker og rífur.
Ómissandi tæki í eldhúsið. Fjöldi aukahluta.
• Utvarpsklukka ÍJ' 4 i
AM/FM útvarp. Inn- |
byggt loftnet. ----------
Vekjarastilling á út varp eða hljóðmerki.
• Elnita 140 saumavélin. Einföld, sterk og
ótrúlega fjölhæf. Saumar öll nauðsynlegu
sporin. Saumavélin fyrir þá sem bæta og laga en
eyða ekki öllum frítíma í saumaskap. Verðið er
eftir því.
• ísvél. Býrtil [IHr I f f M M
Ijúffengan ís og ísrétti !:
úr f.d. rjóma, jógúrt eðaf\ ^
ávöxtum. Tvöföld einangrun á skál. Hlióðlát og
þægileg í notkun,
; 64ra bls. upp-
skriftabók fylgir.
• Gufustraujárn. Létt
og handhægt. Breiður
sjálfhreinsandi álsóli
með 35 gufuventlum.
Nákvæmur hitastillir.
Vatnsmælir.
1800 cl vatnsgeymir.
• Kraftmikil ryksuga. Mikill sogkraftur en hljóð-
látur mótor. Fóthnappur. Tveir auka hausar.
Þessi er góð í jólahreingerninguna.
• Philipshave rafmagnsrakvél
3 fljótandi 90 rifu rakhausar. 12
sjálfbrýnandi skurðarblöð.
Bartskeri.
Vandaður kassi fylgir.
• 12 bolla kaffivél, eilífðar filter. Mæliskeið,
vatnsmælir og hitaplata.
• Steríósamstæða mei
tvöföldu kassettutæki, |
hálfsjálfvirkum plötu- 4
spilara, 3 rása útvarps-
magnara FM, LM, MW,
40 Watta steríómagnara
ogtveir40Watta
hátalarar. Skápur um
alla samstæðuna.
• Djúpsteikingarpottur.
Djúpsteikir án gufu eða
lyktar. Gufu- og loftsíur
|k máþvo. Tekur2,25laf
olíu. Hitastilling meö
Ijósi. Sjálfhreinsandi.
• Sjálfvirk brauðrist.
Stillir sig sjálf fyrir nýtt, U
frosið eða gamalt brauð.
0 Hárburka. Tvær j K \
hitastillingar. -------------
Lágvær og fer vel í hendi.
VERDEBUta.DUDV.OSTADGBE.DSLU
HéimlttsKBW
SÆTÚBl 8:691515 HAFNABSTB.