Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Síða 31
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
31
Fréttir
Siglingamálastofnun:
Hefur eftirlitsmann í
Póllandi næstu misseri
„Þaö hefur veriö eftirlitsmaður frá
okkur í Póllandi síöan í september
og hann mun dvelja þar allt næsta
ár og jafnvel lengur," sagði Páll
Hjartarson hjá Siglingamálastofnun
í samtali viö DV.
Búiö er aö gera um 20 nýsmíða-
samninga viö pólskar skipasmiða-
stöövar og veröa skipin cifhent á
næstu 2 til 3 árum. Aö auki hafa
Pólverjar svo tekiö aö sér hinar
miklu breytingar sem verið er aö
gera á Japanssmíöuðu togurnum í
landinu.
Eftirlit Siglingamálastofnunar
fylgist meö allri nýsmíöi og öllum
breytingum á íslenskum fiskiskip-
um. Því er ekki um annað að gera
en að hafa eftirlitsmann staðsettan í
Póllandi þennan tíma.
Þess má geta varðandi nýsmíði
fiögurra fiskiskipa í Póllandi aö gerö-
ur hefur verið samningur þess eðlis
að eigendur bátanna, sem jafnframt
Húsvikingar nota góðu tíðina sem verið hefur að undanförnu meðal annars til steypuvinnu. Verið er að slá upp
grunnum að fjögurra íbúða raðhúsi. Húsið á myndinni var steypt fyrr i mánuðinum.
DV-mynd Hólmfríður S. Friðjónsdóttir
Húsvíkingar ætla
að steypa til jóla
Hólmfríður S. Priðjónsdóttir, DV, Húsavík:
Þaö hefur sjaldan eöa aldrei gerst
áður á Húsavík aö menn séu í óða
önn að steypa hús nokkrum dögum
fyrir jól. Nú eru aðeins tvö íbúöarhús
í byggingu á Húsavík og eru þau
bæöi fiögurra íbúöa raöhús. Einnig
er unnið viö byggingu á nýrri lög-
reglustöö.
Þaö er fyrirtækið Norðurvík h/f
sem annast byggingu lögreglustööv-
arinnar. Norðurvík er einnig aö
byggja annaö raöhúsiö. Hitt raðhúsið
er byggt af einstaklingum.
í raðhúsinu, sem byggt er af einka-
aöilum, er búiö aö steypa eina íbúð
að fullu og var því verki lokið í vik-
unni sem leið. Jarðvinna er að
hefiast viö hinar íbúöirnar þrjár.
Við raðhúsið sem Noröurvík bygg-
ir er unnið viö uppslátt á grunnum
og er ætlunin aö ljúka steypuvinnu
fyrir hátíöarnar.
Friðrik Jónasson, en hann er eig-
andi hússins sem lokið var við að
steypa í síðustu viku og er hann jafn-
framt starfsmaður Noröurvíkur,
sagöi aö ekki heföi verið áætlaö aö
vinna svo lengi fram eftir vetri við
byggingarnar en þar sem veðurfar
hefur veriö einstaklega gott það sem
af er vetri var ákveðið aö halda áfram
framkvæmdum og heföi vinna við
húsin gengið vonum framar.
Togarar ÚA og Samherja:
Afli Irtill að undanfömu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Afli hefur verið fremur tregur
hjá togurum Útgerðarfélags Akur-
eyringa og Samherja að undanf-
örnu. Fjórir togara ÚA hafa í
síöustu löndunum sínum komiö
með tæplega 500 tonn og hefur um
helmingur aflans verið karfi.
Einar Óskarsson hjá ÚA sagði í
samtali við DV að nú væri flotinn
búinn með úthlutaðan þorskkvóta
en leyfilegar breytingar milli.teg-
unda væru enn eftir, þannig að
togararnir ættu að geta veitt þörsk
það sem eftir er ársins.
Sólbakur, hinn nýi togari félags-
ins, sem áður hét Dagstjarnan, fór
í sína fyrstu veiðiferö 11. desember
og er væntanlegur um jólin. Frysti-
togarinn Sléttbakur. sem fór í sína
fyrstu veiðiferö í nóvember, er enn
úti og er væntanlegur rétt fyrir jól.
Einar vissi ekki hverjir af togurun-
um yrðu úti um jólin, ljóst er að
Kaldbakur verður á veiöum en um
aðra er ekki vitaö nákvæmlega.
„Það hefur ekkert fiskirí verið í
einn og hálfan mánuð núna,“ sagði
Þorsteinn Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja. Hann sagði
að nægur kvóti væri til hjá sínum
skipum, það væri ekki vandamál.
Einn togari félagsins, Þorsteinn,
verður úti um jólin en Margrét, Ak-
ureyrin og Oddeyrin í landi.
Dænvt Hálshreppi í vil
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Hæstiréttur hefur dæmt í þrætu-
máli tveggja h'reppa í Þingeyjarsýslu,
Grýtubakkahrepps og Hálshrepps.
Deila hreppana stóð um það hvort
bændum í Grýtubakkahreppi væri
heimilt að reka fé sitt á afrétt á Flat-
eyjardalsheiði sem er að mestu í eigu
Hálshrepps. Grýtubakkahreppur
höfðaði mál til að fá úr því skorið
að bændur þar mættu reka fé sitt
þangað en í dómi í héraði var dæmt
Hálshreppi í vil. Hæstiréttur hefur
nú staðfest þann dóm.
eru síldarverkendur, mega greiöa
50% af pólskri framkvæmd í skipun-
um með verkaðri síld.
Að sögn Einars Benediktssonar,
aðstoöarframkvæmdastjóra Síldar-
útvegsnefndar, fer sú greiðsla fram
frá því haustið 1988 til vors árið 1989.
Hann sagði ekki ljóst hve mikið
magn af síld þarf í þessar greiðslur
vegna sér óska um verkun en alla-
vega væri um tugþúsundir síldar-
tunna að ræða.
-S.dór
Akureyri:
Oddeyri kaupir Súluna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bæjarstjóm Akureyrar hefur ósk-
að eftir því við Súlur hf. að teknar
verði upp viðræður fyrirtækisins og
Oddeyrar hf. um kaup Oddeyrar á
loðnuskipinu Súlunni EA-300.
í síðasta mánuði var gerður samn-
ingur milli eigenda Súlunnar og
Krossaríesverksmiðjunnar um kaup
verksmiðjunnar á skipinu. Bæjar-
stjórn, sem er eigandi Krossanes-
verksmiðjunnar, frestaöi á fundi
sínum 1. desember aö staðfesta
samninginn og var ætlunin að gera
það nú í vikunni.
Af því varð þó ekki því Sigfús Jóns-
son bæjarstjóri óskaði eftir því í
millitíðinni aö Oddeyri hf„ sem er í
eigu Akureyrarbæjar og fyrirtækja í
bænum, yfirtæki samninginn. í
framhaldi af þvi hefur verið óskað
eftir viðræðum við Súlur hf. og er
líklegt að þær fari fram næstu daga.
Kaup Oddeyrar á skipinu munu
tryggja það að afli Súlunnar fari til
vinnslu hjá Krossanesverksmiðj-
unni en það var einmit það sem vakti
upphaflega fyrir stjórn Krossanes-
verksmiöjunnar þegar hún hugðist
kaupa skipið.
Jessop er stærsta ljósmyndavöru-
verslunarkeðja í Bretlandi.
Hefur nú sett á markað myndavél
hentar öllum.
Mjög skýrar myndir.
2ja ára ábyrgð.
3 litir: svart, svart/silfrað, svart/rautt.
Hlífðartaska kr. 290.
Takmarkað magn fyrir jól.
Þetta er góð jólagjöf..
Pöntunarsími fyrir póstsendingar 91-651414 og 623535. Símapantanir
alla daga kl. &-22. Póstversl. Príma, box 63, 222 Hafnarfjörður
Med: sjólfvirKri
filmufarslu
(autowmd)
föstum fókus
mnb. flassi
36 mynda litfilmu.
Jmboösaoili
á Islandi
FOTOHUSIÐ
Bankastræti, sími 21556.
Opið kl. 9-18, laugordaga 10-18.
© VISA © EUROCARD