Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Síða 42
42
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Fréttir
Maurafar-
aldur herjar
á höfuð-
borgarbúa
Að undanfomu hefur borið tölu-
vert á heldur leiðinlegum gesti
meðal bæjarbúa. Er hér um að
ræða maurategund eina sem held-
ur sig við skólpleiðslur en ræðst
inn í híbýli manna undir vissum
kringumstæðum. Ponera punctat-
issima roger heitir maurinn á
latínu og er hann lítil vexti, um 3
mm. Hann mun ekki vera hættu-
legur en veldur að sjálfsögðu
miklum óþægindum enda hefur
hann fundist í verulegu magni í
sumum íbúðum. Hefur fólk oft
þurft að rýma íbúðir um lengri eða
skemmri tíma á meðanráðið hefur
verið niðurlögum maursins. Það er
reyndar töluvert síðan hann barst
til landsins og fyrir nokkrum árum
sögðum við á DV frá athöfnum
hans hér á landi.
Eina ráðið til að losna við maur-
•- : X '
■'SSfe.v
* # % ,
M
Þó maurarnir séu ekki stórir, um 3 mm, þá eru þeir til mikils ama þar
sem þeir sjást.
Þessar tvær myndir sýna aö oft er það mikið umrót sem hlýst af því að rífa þarf upp gamlar skólpleiðslur til
að stöðva maurinn.
inn er að leggja út í stórfram-
kvæmdir og rífa upp lagnir og
ganga svo frá málum að hann geti
ekki hafst við þar nærri. Sam-
kvæmt upplýsingum sem fengust
hjá Hirti L. Gunnarssyni pípulagn-
ingamanni, sem hefur fengist við
viðgerðir fyrir fólk sem hefur lent
í þessu, þá er hér oft á tíðum um
að ræða mjög dýrar framkvæmdir,
allt upp í -150.000 kr. Tryggingafé-
lögin hafa í mörgum tilvikum greitt
þetta enda má fella þetta tjón undir
heimilistryggingar. Hjá Sjóvá fen-
gust þær upplýsingar að það væri
oft á tíðum vafasamt hvort aö hér
væri bótaskylt.tjón en þó gæti þetta
tengst tjóni vegna ónýtra leiðslna.
„Við höfum yfirleitt hjálpað fólki,“
sagði Jóhann Proppé deildarstjóri
og átti hann vón á því að svo yrði
áfram.
Maurinn bendir á vandann
„Maurinn er ekki vandamálið,
hann er eingöngu að sýna fram á
hvað er að, sem er auðvitað ónýtar
skólplagnir," sagði Erling Ólafsson
dýrafræðingur en maurinn hefur
helst fundist í eldri hverfum þar
sem leiðslur eru famar að gefa sig.
Eru það Hlíða-, Teiga- og Fossvogs-
hverfi sem helst eru nefnd til
sögunnar en hans hefur þó orðið
vart víðar. Þá hefur hann borist
víða um land.
„Það hefur aldrei verið sannað
upp á maurinn. að hann béri neina
sýkingu með sér en vitaskuld er
vel hægt að ímynda sér það miðað
við í hvaða umhverfi hann lifir,“
sagði Erling. . -SMJ
Átak gegn óskoðuðum bílum síðustu þrjá mánuði:
Á annað þúsund bílar
teknir úr umferð
Fytgifiskur
hitaveitunnar?
„Eftir því sem ég best veit þá lií-
ir þessi maur hvergi í heiminum
við þær aðstæður sem honum falla
hér á landi. Þetta er skepna sem
lifir í heitu loftslagi og þá úti í nátt-
úrunni,“ sagði Ásmundur Reykdal
meindýraeyðir en maurinn sem
hér um ræöir er kallaöur húsa-
maur og er talið aö hann hafi borist
hingað til lands á árunum 1950-’55.
Á undanförnum árum heftir hann
hrellt höfuðborgarbúa en nú virð-
ist hann vera búinn að dreifa sér
um mestallt landiö. M[jög illa geng-
ur að eitra fyrir hann og hefur fólk
þurfl að leggja út í rniklar og kostn-
aðarsamar frarakvæmdir til að
losna við þennan ófógnuð.
„Endanleg lausn er í flestum til-
vikum að taka upp lagnir en víða
um bæinn eru skólplagnir orðnar
lélegar. Þetta hefur fundist um alla
borgina nema hvað nýjustu hverfin
viröast hafa sloppið við þetta.“ Ás-
mundur sagði aö mjög erfitt væri
að eitra fyrir maurinn og yfirleitt
dygöi það ekki nema tll bráða-
birgða. „Það eru engar eitrunarað-
feröir sem duga til að drepa þetta
endanlega." Þá bætti Ásmundur
við að þaö væri eins og maurarnir
væru í tengslum við hitaveituna
því vera þeirra væri bundin við þau
svæöi þar sem hitaveita væri. Það
ætti reyndar viö um fleiri kvikindi
eins og silfurskotturnar illræmdu.
-SMJ
A síðustu þremur mánuðum hefur
lögreglan og Bifreiðaeftirlitið klippt
númer af á annaö þúsund bílum.
Hefur það verið gert vegna van-
rækslu á aðalskoöun eða vegna þess
að eigendaskipti hafa ekki verið til-
kynnt og vegna þess að tryggingarið-
gjöld hafa ekki verið greidd.
Síðustu viku hefur lögreglan og
bifreiðaeftirlitið haft afskipti af rúm-
lega tvö hundruð bílum vegna
vanrækslu á aðalskoðun. Eigendur
flestrá bílanna hafa fengið frest til
að koma málum sínum á hreint.
Númer hafa verið tekin af um tutt-
ugu bílum síðustu daga.
Takmark lögreglu og bifreiðaeftir-
lits er að ná til allra óskoðaðra bíla
fyrir næstkomandi áramót. Ef lög-
reglan verður vör við óskoðaðan bíl
er hann færður tafarlaust til skoðun-
ar. Númer eru umsvifalaust khppt
af þeim óskoðuðu bílum sem eru
mannlausir þegar lögreglan finnur
þá.
Það kemur alltaf fyrir að bílaeig-
endur reyni að blekkja lögreglu með
því að færa til gamla skoðunarmiða.
Lögreglan er venjulegast fljót að sjá
slíkt enda hafa nokkrir ökumenn
verið teknir með falsaöa skoðunar-
miða.
-sme
Óskoðaður og án Ijósaskoðunar. Billinn reyndist í þokkalegu ástandi og slapp eigandinn meö frest.
DV-mynd S
Takturhf.hefurflutt
Taktur hf. - Hljómdeild Fálkans
hefur flutt starfsemi sína í Ármúla
17 þar sem ný glæsileg verslun hefur
verið opnuð.
Nýja verslunin sérhæfir sig í sölu
hljómtækja, frá Kenwood, Nadar og
Wharfedale, ásamt sölu sjónvarps-
tækja frá Loewe. Einnig mun versl-
unin hafa á boðstólnum landsins
mesta úrval af geisladiskum.
-. Taktur ,hf., hóf starfsemi. sína 1.
nóvember 1986, eftir aö hafa keypt
hljómplötu og hljómtækjadeild Fálk-
ans hf.
Hönnuðir nýju verslunarinnar eru
Haraldur V. Haraldsson og Ellen
Valgeirsdóttir arkitektar.
Taktur hf. mun reka áfram hljóm-
plötuverslunina að Laugavegi -24.
Framkvæmdastjóri Takts hf. er
Ólafur Haraldsson.