Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Síða 50
50 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Smáauglýsiiigar Fréttir Subaru turbo árg. '87 til sölu, sjálf- skiptur, rafmagnsrúður og fleira, verð 890 þús., skipti möguleg. Uppl. í símum 671534 og 76776. Toyota Corolla Littback XL ’88 til sölu, nýr bíll, bein sala. Uppl. í síma 675434. ■ Ymislegt Gleddu elskuna þína með jólagjöf frá okkur. Við eigum mikið úrval af glæsilegum sexí nær- og náttfatnaði á frábæru verði. Opið frá 10-18 mán.-fös. og 10-16 laug. Erum í Veltu- sundi 3, 3. hæð (v/Hallærisplan), 101 Rvk, sími 14448 - 29559. KOMDU HENNI/HONUM ÞÆGILEGA Á ÓVART. Jólagjafir handa elskunni þinni fást hjá okkur. Geysilegt úrval af hjálpartækj- um ástarlífins við allra hæfi ásamt mörgu öðru spennandi. Opið frá 10-18 mán.-fös. og 10-16 laug. Erum í Veltu- sundi 3, 3. hæð (v/Hallærisplan), 101 Rvk, sími 14448 - 29559. ■ Þjónusta Slípum, lökkum, húðum, vinnum park- et, viðargólf, kork, dúka, marmara, flísagólf o.fl. Hreingerningar, kísil- hreinsun, rykhreinsun, sóthreinsun, teppahreinsun, húsgagnahreinsun. Fullkomin tæki. Vönduð vinna. För- um hvert á land sem er. Þorsteinn Geirsson verktaki, sími 614207, farsími 985-24610. ■5 Lýsing á leiði. Til leigu og sölu 2 teg. krossa og rafgeyma. Öll þjónusta og umhirða. Sími 15230 kl. 13—18. Hveravellir: Jólapakkamir komnir Hafþór Ferdínantsson, oft nefndur Hveravallarskreppur, fór um helg- ina að heimsækja húsráðendur og veðurathugunarfólk á Hveravöllum, þau Kristínu Þorleifsdóttur, fyrrver- andi bankastarfsmann, og Kristinn Pálsson húsasmið. Tilefni heimsókn- arinnar var að færa þeim hjónum jólapóstinn og jólapakkana. Þetta er í fimmta skiptið í röð sem Hatþór tekur að sér að færa veðurathugun- arfólki á Hveravöllum jólaglaðning- inn. Þau Kristinn og Kristín hófu störf við veðurathugunarstöðina þann 1. ágúst síðastliðinn. Að sögn þeirra hefur þeim líkað dvölin mjög vel, þau hati ailtaf verið miklir áhugamenn um fjallaferðir, auk þess sem þau hafi bæði gaman af aö bregða sér á snjósleða. En raunar hefur lítið verið hægt að stunda þá iðju í vetur því veturinn hefur verið meö eindæmum snjóléttur. Mesta snjódýpt áranna 1975-1986 var 76,6 cm en þaö sem af er vetri er mesta snjódýpt ekki nema 8,6 cm. Nóvembermánuður er sá hlýjasti frá 1975, meðalhitinn mældist -0,9 gráður en til gamans má geta þess að áriö 1977 var kaldasti nóvembermánuður þessa timabils, þá var meðalhitinn -6,8 gráður. Klaki er því mjög lítill í jörðu og nær ekki nema 10-15 cm undir yfirborðið. Mikill gestagangur hefur verið á Hveravöllum í haust og vetur þar sem færð þangað hefur verið mjög góð, raunar hefur aðeins ein helgi hðið þar sem enginri hefur verið á ferð. -J.Mar Húsráðendur á Hveravöllum, þau Kristín Þorleifsdóttir og Kristinn Pálsson. DV-mynd Hafþór Ferdínantsson Á útskriftardaginn færðu starfsmenn saumastofunnar Tinnu Friðriki Sop- hussyni iðnaðarráðherra peysu að gjöf. DV-mynd Brynjar Gauti Fata- og vefjariðnaður: Á sjöunda hundrað manns Ijúka starfsnámi Um 350 starfsmenn í fata- og vefja- riðnaði útskrifuðust á laugardag af starfsþjálfunamámskeiði sem þeir hafa sótt undanfarnar vikur og mán- uði. Hinir nýútskrifuðu starfsmenn eru frá fyrirtækjum í Reykjavík, Kópavogi, Mosfellsbæ, á Akranesi og Selfossi en alls hafa á sjöunda hundr- að manns lokið námi þessu víðs vegar um landið. Meginmarkmið námskeiðsins var að starfsmenn öðluðust betri verk- kunnáttu og þekkingu í starfi. Auk þess sem námskeiðinu var ætlað að stuðla að áhuga, öryggi,. bættum kjömm og vellíðan starfsmanna. Frakvæmd námskeiðanna var í höndum Fræðslumiðstöðvar iðnað- arins, en yfirumsjón með þeim hafði sérstök, verkefnisstjórn, skipuð full- trúum Landsambands iðnverka- fólks, Félags íslenskra iðnrekenda, Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnufé- laganna. -J.Mar Fjölbrautaskólinn í Breiðholti: Þrír dúxar á haustönn Á haustönn -stunduðu 1320 nem- endur nám í dagskóla Fjölbrauta- skólans, þar af luku 48 nemendur stúdentsprófi nú í desember, Dúx- amir í dagskólanum voru tveir, þær Eydís Olsen og Anna Sigríður Þrá- insdóttir. Þær stunduöu báðar nám á bóknámssviði, tungumálabraut. Ekki var nóg með að þær stöllur væm samstiga í náminu heldur út- skrifuðust þær báðar með sömu einkunn, luku þær 136 einingum og fengu 374 stig. Það mun vera eins- dæmi í sögu skólans aö tveir nemendur dúxi með nákvæmlega sömu einkunn. Guðrún Jónsdóttir dúxaði í kvöld- skólanum en hún lauk stúdentsprófi af viðskiptasviði. Lauk Guörún 155 einingum og fékk 410 stig. í kvöld- skólanum stunduðu 850 nemendur nám á haustönn og 20 útskrifuðust sem stúdentar. AUs útskrifaðist 161 nemandi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, þar af útskrifuðust 6 af nýrri braut, snyrtifræðibraut. -J.Mar Stefán Benediktsson aðstoðarskólameistari, Guörún Jónsdóttir, dúx úr kvöldskólanum, Anna Sigriður Þráinsdóttir og Eydís Olsen, dúxar úr dagskólanum, og Kristin Arnalds, skólameistari Fjölbrautaskólans i Breiðholti. DV-mynd Sigurjón Jóhannsson Efri deild Alþingis afgreiddi á laugardag tvö frumvörp til neöri deildar en það voru frumvarp um söluskatt og iánsíjárlög. Söluskattsfrumvarpið var sam- þykkt með 12 atkvæðum gegn 6 en áður haföi verið felld breyting- artillaga frá Alþýðuhandalagi um aö tryggt skuli vera að mjólk og mjólkurvörur og kjöt og kjötvör- ur hækki ekki vegna almennrar skatlagningar á matvörur. Þá var og felld tillaga frá Borgaraílokkn- um um aö fiskur og fiskmeti verði undanþegiö söluskatti. í neðri deild var frumvarp um verkaskiptingu milli ríkis og sveitararfélaga til umræðu á laugardag en umræöunni lauk ekki. Fimdir verða í báðum deild- um þingsins í dag, mánudag. -ój

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.