Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Qupperneq 51
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
51
Merming
Líkn þeim
sem lifa
Þrællinn, 269 bls.
Höfundur: Isaac Bashevis Singer.
Þýöandi: Hjörtur Pálsson.
Isaac Bashevis Singer er sannar-
lega ekki með öllu óþekktur hér á
landi. Það væri þó kannski að taka
fulldjúpt í árinni að segja að hann
sé jafnvel kynntur og hann Alister
okkar en frá bókmenntalegu sjón-
armiði er það án allra tvímæla að
hinn fyrrnefndi skrifar mun betri
bækur og er Þrællinn ekki síðra
dæmi um það en aðrar bækur
skáldsins. Sjö af bókum Singers
hafa verið þýddar á íslensku, þar
af sex af Hirti Pálssyni, en þekkt-
ust þeirra er að líkindum Töfra-
maðurinn frá Lúblín sem kom út á
íslensku árið 1979, ári eftir að Sin-
ger hlaut nóbelinn.
Þrælinn skrifaöi Singer fyrir tæp-
um þijátíu árum á jiddísku eins og
aðrar bækur sínar. Sagan gerist
um miðja 17. öld og í henni segir
frá Jakobi sem í upphafi bókar er
þræll pólskrar fjölskyldu í htlu
íjallaþorpi ekki óralangt frá Lú-
blín.
Forskriftir Talmúösins
Hann verður ástfanginn af dóttur
húsbónda síns, Wöndu, sem fyrsti
hluti bókarinnar heitir eftir. Lengi
vel stendur Jakob gegn fýsnum
holdsins og þránni til Wöndu því
hann er gyðingur en hún ein af
„hinum" og honum er mikið í mun
að hafa í heiðri þær trúarreglur og
forskriftir sem Talmúðinn býður.
En ekki er ástin litvönd og að lok-
um lætur Jakob undan ástleitni
Bókmenntir
Kjartan Árnason
stúlkunnar og þrá sinni til hennar,
þótt honum sé Ijóst að shkt sé gróf-
legt brot á Lögmáhnu. Jakob og
Wanda giftast að lokum á laun eftir
að Jakob losnar úr ánauðinni en
þau neyðast til að grípa tíl sinna
ráða svo Wanda veröi tekin inn í
samfélag gyðinga. Hún tekur upp
nafnið Sara, sem jafnframt er heiti
annars hluta bókarinnar, og gerir
sér upp málleysi því hún var illa
mælt á jiddísku. Að öðru leyti vís-
ast tíl bókarinnar um söguþráð og
er þar af nógu að taka!
Það þarf ekki að spyrja að því
hver þrællinn sé í þessari bók - það
er Jakob Elíesersson. En hvemig
þræh er hann? í fyrstu er hann í
eiginlegum skilningi þræll Pólveija
en eftir að hann kemur aftur í sam-
félag sinna líkra verður hann
þeirra þræll þótt í óeiginlegum
skhningi sé, þræh þeirra aðstæðna
sem verða þegar iðkun trúarforms-
ins verður mikilvægari en skhn-
ingur á inntaki trúarinnar.
Pislarsaga hinna réttlátu
Eftir áralangan þrældóm meðal
Pólverja kemur gyðingasamfélagið
honum aht öðruvísi fyrir sjónir en
fyrr: „Þegar Jakob leit í kringum
sig sá hann líka að söfnuðurinn
hélt í heiðri þau boðorð Lögmálsins
sem beinlínis snertu Almættið en
braut siðareglumar um hegðun
manns við mann“. Og ef til vhl er
þetta einmitt kjami málsins: menn
smjaðra fyrir Álmættinu en svíkja
náungann, hafa af honum fé, bera
hann út og guð má vita hvað. Mað-
urinn hefur vissulega frjálsan vilja
th aö velja mhh réttlætis og rangs-
leitni en þaö virðist henta honum
betur að hafna réttlætinu (það gef-
ur hka oft meira í aðra hönd) og
styijaldir geisa, kúgun og svik.
Saga Jakobs og Söm-Wöndu er
píslarsaga hinna réttlátu meðal
ranglátra. Ekki svo að skhja að
aðrar persónur bókarinnar séu
skhyrðislaust ihar en þegar harðn-
ar á dalnum er iöulega stutt í
íjandskapinn eða afskiptaleysið
sem í sjálfu sér er fjandskapur.
Bjartur og uppljómaður
Undir lok sögunnar, í þeim hluta
sem heitir Heimkoman, veröur
sagan hreinasta helgisaga, Jakob
Isaac Bashevis Singer.
hefst th himna, bjartur og uppljóm-
aður, eftir að hafa eytt síðustu nótt
jarðlífsins í viðbjóðslegu greni þar
sem höfðust við fátæklingar, sjihdr
og gamalmenni. Skhin milh jarðlifs
og upphafningar em vissulega
skörp í bókinni en mér er th efs að
Singer sé að boða gyðingatrú eða
trú yfirleitt umfram hið holdlega
og veraldlega. Isaac Bashevis Sin-
ger er að segja sögu Mannsins og
vekur lesandann um leið th um-
hugsunar um sína eigin stöðu
gagnvart náunganum og lífinu.
Upphafningin felst ekki í aö viðhafa
trúarbrögð heldur að auðsýna rétt-
læti.
Þýðing Hjartar Pálssonar er afar
vönduð og það var nákvæmlega
ekkert í henni sem truflaði mig við
lesturinn en það hef ég iðulega th
marks um ágæti þýðinga.
Góð bók og brýn.
KÁ
Nýjar bækur
I morgunljómann. . .
Saga LH í 35 ár geymir sögulegar
heimhdir um stofnun Laridssam-
bands hestamannafélaga og starf
þess í 35 ár. Hér segir frá þeim stór-
felldu straumhvörfum í ræktun
reiðhesta og reiðmennskuhst sem.
leitt hefur af thvist samtakanna og
samtakamætti þeirra.
Höfundurinn, Steinþór Gestsson á
Hæh, var með frá því fyrstu sporin
voru stigin og þekkir sögu Lands-
sambandsins betur en nokkur annar.
I Ijósi líðandi stundar
30 ára starf Pólýfónkórsins er rakiö
í máh og myndum í 120 blaðsíðna bók
sem ber þennan tith. Þar senda 18
landsþekktir greinarhöfundar kórn-
um kveöju sína. Jón Ásgeirsson
skrifar stórmerka grein um íslensk
söngmál. í umíjöllun 18 íslenskra
gagnrýnenda um flutning kórsins á
fjölda kórverka í 30 ár kennir marga
grasa og er fróðlegt th glöggvunar
mörgum árum síðar. Auk þess er
vitnað í umsagnir flölda erlendra
gagnrýnenda. Þá eru feröasögubrot'
og flöldi mynda, þar af 36 htmyndir.
Birtar eru myndir af 45 einsöngvur-
Frumherjamir eru nú fáir á lífi og
því sögu hestamennskunnar óneit-
anlegur fengur að geta notiö starfa
hans viö þetta verk.
Hér er sagan skráð í máli og mynd-
um. Við lestur þessa rits geta menn
fylgst með þróun hins sérstæða
menningararfs sem hesturinn og
hestamennskan óneitanlega er. Pét-
ur Beherens myndskreytti en einnig
eru í bókinni ljósmyndir frá ýmsum
tímum LH. Verð kr. 2.290.
um með kórnum á þessu tímabih,
íslenskum og erlendum, auk 14 und-
irleikara og aðstoðarfólks viö æfing-
ar. í bókarlok er skrá um öh verk
sem Pólýfónkórinn hefur flutt frá.
upphafi, um 200 talsins eftir 70 höf-
unda og loks nafnaskrá ahra þeirra
sem sungið hafa á hljómleikum kórs-
ins frá upphafi, ahs á níunda
hundrað manns.
Bókin geymir margar sögur um In-
gólf Guðbrandsson og Pólýfónkórinn
og eru sum ummælin býsna rætin.
Verð kr. 2.990.
Söngur um draum
Síðastliöinn fimmtudag hóf Skífan
hf. dreifingu á lagi Gunnars Þórðar-
sonar, Söngur um draum.
Draumurinn er að geta byggt tón-
Ustarhús og því hafa tónlistarmenn
sameinast um gerð þessarar hljóm-
plötu sem er 45 snúninga.
Eins og áður segir er það Gunnar
Þórðarson sem semur lagið en Krist-
ján frá Djúpalæk semur textann.
Björgvin Halldórsson er framleið-
andi plötunnar fyrir byggingarnefnd
tónhstarhúss og sér einnig um undir-
búning og umsjón ásamt Gunnari
Gunnarssyni.
Söngur er í höndum þeirra Björg-
vins Hahdórssonalr, Jóhönnu Linnet,
Eghs Ólafssonar pg Eiríks Hauks-
sonar.
Auk þeirra aðstoöar flöldinn ahur
af tónhstarmönnum við gerð þessar-
ar plötu.
Á hhð 2 er sama lag en í flutningi
Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Stjórnandi er Páll P. Pálsson en út-
setning var í höndum Jóns Ásgeirs-
sonar.
AUur ágóöi af hljómplötunni renn-
ur til byggingar tónlistarhúss.
Spádómsbókin
Út er komin Spádómsbókin eftir
Guðna Björgólfsson, íslenskukenn-
.ara frá Akranesi. Þetta er fyrsta bók
höfundar sem er mikill áhugamaður
um hvers konar dulspeki. Segja má
að Spádómsbókin sé afurð margra
ára heimildaskoðunar og vanga-
veltna. Hún er skrifuð með hliðsjón
af reynslu flölda einstakhnga sem
stundað hafa spádóma auk þess sem
stuðst hefur verið við fræðirit inn- •
lend sem erlend.
Hér er allt samankomið í einrii bók1
sem unnendur dularfræða hafa beðið
eftir: lófalestur, sphaspá, tarot og
bohaspá. Spádómsbókin vísar veginn
til framtíðar á auðskiljanlegu og
skýru máh með flölda skýringar-,
mynda og teikninga. Verð 795 kr.
Óskabækurnar
Námsgagnastofnun hefur nú hafið
útgáfu á nýjum bókaflpkki sem nefn-
ist Óskabækurnar. Óskabækurnar
eru ætlaðar til þjálfunar í lestri fyrir
börn.
Fyrsta bókin í þessum flokki er eftir
Iöunni Steinsdóttur og nefnist Iðunn
og eplin. Sagan byggir á frásögn í
Snorra Eddu. Búi Kristjánsson
myndskreytti bókina.
Sköpunin er önnur Óskabókin sem
út kemur. Hún hefur að geyma end-
ursögn og myndskreytingu Ragn-
heiðar Gestsdóttur á sköpunarsög-
unni í 1. kafla Mósebókar. Sköpunin
hlaut verðlaun í samkeppni Náms-
gagnastofnunar um bækur fyrir 6-9
ára börn. Verð kr. 995 hver.
Saga1987
Efni Sögu 1987 er af ýmsum toga.
Einar Laxness minnist Björns Þor-
steinssonar prófessors, fyrrum
forseta Sögufélags. Jón Thor Har-
aldsson flahar ítarlega um Lúther,
einkum hvernig siöskiptafrömuöur-
inn hefur komið íslenskum sagnarit-
urum fyrir sjónir. Loftur Guttorms-
son hefur rannsakað upphaf
sóknarmannaskráningar. Kjartan
Ólafsson skrifar um uppreisn ísfirö-
inga gegn Jóni Sigurðssyni vegna
andstöðu þeirra við beiöni Frakka
um ítök í Dýrafirðd. Sigurður Péturs-
son flallar um stofnun og rekstur
Sariívinnufélags ísfirðinga frá 1928
til stríðsloka, en félagiö var fyrsta
útgeröarsamvinnufélag landsins.
Síðasta ritgerð bókarinnar er eftir
hohenskan fræðimann, Gryt Anne
Piebenga, og flallar um Gozewijn
Comhaer Skálholtsbiskup 1435-1446.
Auk annars efnis eru síðan 20 rit-
fregnir eftir 12 höfunda.
Jaðabók
Áma Magnússonar og Páls Vídalíns
kemur út í nýrri ljósprentaðri út-
gáfu. Þetta er tíunda bindið og er um
Eyjaflarðarsýslu, samið á árunum
1712 og 1713. Jarðabókin um þessa
sýslu var fyrst gefin út í Kaup-
mannahöfn árið 1943 af Jakobi
Benediktssyni. Hún var síðan gefm
út flósprentuð árið 1945. Um Jarða-
bók Áma og Páls hefur m.a. eftirfar-
andi verið ritað:
Hún er merkasta heimUd um hag-
sögu landsins á þessum tíma, hrein
fróðleiksnáma um landshagi og efria-
hagsmál.
Hinni ljósprentuðu útgáfu veröur
lokið á næsta ári með ellefta bindi
og verður síðan gefið út ýmislegt efni
sem snertir jarðabókarverkið. Gunn-
ar F. Guðmundsson sagnfræðingur
sér um þá útgáfu og semur atriðis-
orðaskrá um öll bindin. Verð kr.
3.230.
íslandssaga A-K
Einar Laxness:
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur
gefiö út ritið íslandssaga a-k eftir
Einar Laxness, fyrra bindi af tveim-
ur í flokknum Alfræði Menningar-
sjóðs. Er þetta önnur útgáfa, aukin
og endurskoðuð svo nyög aö ný má
heita.
íslandssaga a-k kom fyrst út 1974 og
flaUar um hlutaðeigendi efni undir
uppflettiorðum í stafrófsröð eins og
önnur rit í flokki þessum. Hefur Ein-
ar Laxness talsvert flölgað uppfletti-
orðum í hinni nýju útgáfu, auk þess
sem fyrra efni er víöa endurskoðaö
og heimUdagreinar auknar til muna.
fslandssaga a-k er unnin í prent-
smiðjunni Odda. Hún er 287 bls. að
stærð og prýdd ágætum myndum,
sumum fágætum.