Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Blaðsíða 52
52 MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. Fréttir Jálagetraun DV: Skilafrestur til 11. janúar - dregið um sextán glæsiiega vinninga Skilafrestur í jólagetraun DV, sem lauk sl. fóstudag, er til 11. janúar nk. Þá þurfa allir aö hafa sent inn seðlana sína, vilji þeir veröa með þegar dregið verður. Og það þarf að gæta vel að því að allir getraun- aseðlamir tíu séu í umslaginu sem senda á til DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Umslagið skal merkt: „Jólagetraun.“ Fyrsti vinningur í jólagetraun DV, sem dreginn verður út í janúar nk., er fullkominn geislaspilari með fjarstýringu. Hann er af gerð- inni Technics SLP-520 og kostar hjá Japis 45.660 krónur. Vinningur nr. 2 er ferðageisla- spilari af gerðinni Sony D-30, Discman, að verðmæti 27.720 krón- ur. Vinningur nr. 3 er ferðaútvarps- tæki af gerðinni Panasonic RXFM-27. Það er mjög fullkomið, með raðspilun, tónjafnara, inn- byggðum hljóðnema o.fl. Með einum takka er hægt að skipta um hlið á spólunni. Verð þess er 7.380 krónur. Vinningar nr. 4-6 eru þeir vinirn- ir Bangsi bestaskinn og Gormur. Bangsi hreyflr bæði munn og augu þegar hann syngur fyrir vin sinn eða segir honum sögur á íslensku. Parið kostar í Radíóbúðinni kr. 8.800. Vinningar nr. 7-10 eru Lazer-Tag leiktækin, sem njóta mikilla vin- sælda um þessar mundir. Vihning- ar nr. 11-16 eru gamlir kunningjar, þau Svínka, Kermit froskur, Andr- és önd, Mikki mús, Mína mús og Feitimúli. Þau dansa í takt við hvaða lag sem er og áreiðanlega eiga einhverjir eftir að hafa góða skemmtun af þeim. En sem sagt, þið munið að senda inn getraunaseðlana í jólagetraun DV fyrir 11. janúar næstkomandi svo að þið getið verið með þegar dregið verður um þessa glæsilegu vinninga. Og umslagið merkið þið: DV, Þverholti 11, 105 Reykjavik. „Jólagetraun.“ Bangsi bestaskinn og Gormur vinur hans eru meðal vinninga. Svona lítur hann út, ferðageislaspilarinn, sem er vinn- ingur nr. 2 i jólagetrauninni. Sá sem hreppir 3. vinninginn i jólagetraun DV fær þetta fullkomna ferða- útvarpstæki. flf fli Igfj! 1|||| / % v Allir ættu að þekkja þennan hóp sem dansar eftir hvaða lagi sem er. Þetta eru vinningar nr. 11-16 í jólagetrauninni. MUNIÐ að merkja umslagið: DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. „Jólagetraun." SVÖRTU AUGUN Erik Nerlöe Hin svörtu augu unga sígaun- ans vöktu þrá hennar eftir frelsi — frelsi sem hún hafði lítið kynnst áður. Og Ijúfir tónar fiðlu hans ollu því, að hún ákvað að fiýja burtu með honum. En vissi hún hvert hún var að flýja? Nei, hún var of ung og reynslulítil til að vita það. Hún skildi ekki að blind ást hennar leiddi hana aðeins út í ófyrirsjáanlegar hættur. TÍNA Eva Steen Hún er ung og fögur og hefur kynnst manni sem hún elskar. Framtíðin blasir við þeim, en örlögin verða til þess að skilja þau. Hún sér sig nauðbeygða til að hverfa úr lífi hans. Með fegurð sinni og miklum hæfileikum sínum á listskautum nær hún Iangt, en þegar best gengur upp- götvast að hún er haldin banvænum sjúkdómi. Einmitt þá kemur maðurinn sem hún elskar aftur inn í líf hennar. GÓÐI HIRÐIRINN Else-Marie Nohr Hún hvarf og ekkert fréttist af henni. Loks var hún talin af og álitin dáin. Dag einn birtist hún í sendiráði í Thailandi, aðframkomin og þungt haldin af hitasótt, og mundi ekki hvað hún hét. Með góðri læknishjálp nær hún sér fljótt, og nokkru seinna er hún á leið heim. Hún er full af lífs- þrótti og hlakkar til að sjá aftur manninn, sem hún elskar og hún hafði gifst stuttu áður en hún varð fyrir áfall- inu. En Qögur ár eru langur tími, og maður hennar hafði fyrir löngu talið hana af. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEMS SF ÆakMMUKi V * ÁlitltðtlllilKltliliiÍwltldfillalAíaiAái&ijljLÍlliilillilíllÍÁÉli I ® • MhÉj£j£iiÍ’J Skuggsja ANGELA Theresa Charles Angela Smith sækir um læknisstarf í bænum Whey- stone. Þar ætlar hún einnig að reyna að jafna sig eftir slys, sem hún lenti í, í hreinu sveitalofti og kyrrlátu um- hverfi. Hún fær starfið, en henni er vantreyst sem lækni og litin hornauga sem persóna í fyrstu. En smátt og smátt vinnur hún traust og álit fólks. Angela missti mann sinn og dóttur í bílslysi og líf hennar hefur verið tómlegt síðan slysið varð. En er hún kynnist Mikael Traymond, ró- legum og yfirveguðum lækni, vakna tilfinningar hennar á ný. ÁST OG HAMINGJA Barbara Cartland Aðeins tvær persónur bjargast í land, þegar skipið brotnar í klettunum við strönd Ferrara, ævintýramaðurinn Sir Harvey Drake og hin fagra Paolina Mansfield. Þau voru bæði á leið til Feneyja og faðir Paolinu fórst með skipinu. Sir Harvey Drake stingur upp á því við hana, að hún ferðist með honum sem systir hans áfram til Feneyja. Þar segist hann auðveldlega munu geta fundið ríkan eiginmann handa henni — og um leið ætlar hann að tryggja sína eigin framtíð. Paolina fellst á | hugmyndina, og framundan 1 .er ævintýralegt og viðburða- ríkt ferðalag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.