Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 61

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Side 61
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987. 61 Nýjar bækur Upp á æru og trú Mál og menning hefur gefiö út nýja unglingabók eftir Andrés Indriöa- son. Hún nefnist Upp á æru og trú og fjallar um atburði sem eiga sér hliöstæður í íslenskum veruleika. Sagan gerist á einum sólarhring í skammdeginu. Þaö er brotist inn í sjoppu og afgreiðslumaðurinn, átján ára strákur, sem hefur ekki áður kynnst skuggahliðum tilverunnar, dregst gegn vilja sínum inn í vafa- sama atburðarás. Upp á æru og trú er 158 bls., prent- uð í Prentsmiðjunni Odda hf. Ljósmynd á kápu tók Páll Stefánsson en GBB Auglýsingaþjónustan hf. sá um hönnun. Verð kr. 1390. Björri Th. Bjömsson . ’A Alda slóð lif Mál og mcnning Aldaslóð Bókaútgáfa Máls og menningar hefur gefið út bókina Aldaslóð eftir Björn Th. Bjömsson. Þetta verk er af svipuðum toga og ein af fyrri bók- um höfundarins, Aldateikn. Hér rekur Björn ýmsa þætti úr sögu myndlistarinnar með hliðsjón af því umhverfi og þeim tíðaranda sem verkin eru sprottin úr. Aldaslóð prýða mörg hundruð myndir, bæði litmyndir og svarthvít- ar. Bókin er 157 bls. að stærð, prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Björn Th. Björnsson listfræðingur er landskunnur fyrir bækur sínar og þýðingar. Verð kr. 2690. Bangsímon í nýrri útgáfu með litmyndum. Vaka-Helgafell hefur nú endurútgáfu á hinum sívinsælu sögum breska rit- höfundarins A.A. Milne um Bangsí- mon og félaga hans, Jakob, Kaninku, Grislinginn og Asnann. Bækurnar eru í stóru broti og í fyrsta sinn gefn- ar út með litmyndum hér á landi. Allir muna eftir þessum skemmti- legu söguhetjum en bækumar hafa nú verið ófáanlegar um langt skeið. Fyrsta bókin, sem kemur út, nefnist Bangsímón í klípu, en fleiri bækur munu fylgja í kjölfarið. Bangsímon í klípu er með fjölda litprentaðra mynda breska listamannsins E.H. Shepard. Bókin er prentuð í Prent- stofu G. Benediktssonar í Kópavogi, en bundin í Bókfelli hf. Verð kr. 848. Þegar ástvinur deyr Útgáfufélagið Bros hf. hefur geflð út bókina Þegar ástviriur deyr (A Grief Observed) eftir C.S. Lewis í ís- lenskun sr. Gunnars Björnssonar. Bókin fjallar um sorg og sorgarvið- brögð. Höfundur hugleiðir sorgina, trúna, ástina, lífið og tilveruna í til- efni af dauða eiginkonu sinnar. í sorg sinni lendir höfundur í miklum and- legum þrengingum gagnvart öllu umhverfi sínu og tilveru og hann velur þann kostinn að kryfja sjálfan sig til mergjar í andlegum skilningi. Bókin er einstakur vitnisburður um uppgjör einstaklings á þeim andlegu þrengingum sem mörgum reynast svo erfiðar við fráfall ástvinar. Verð kr. 895. _ _ Reidhjólaverslunin t^ Sérverslun í meira en 60 ár ORNINNL Spitalastig 8 við Öðinstorg símar: 14661,26888 • Fullkomin þráðlaus fjarstýring • 5 banda tónjafnari • Tvöföld kassetta • Hraðupptaka (High speed dubbing) • Dolby 70W magnari, 70W hátalarar • Innstunga fyrir höfuðtól og hljóðnema • Plötuspilari • 7 stöðva minni á allar rásir, FM, LM, MB. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16. s. 691600. Meiriháttar samstæða frá SAflYO Vegna sérstakra samninga við Sanyo getum við boðið ykkur þessa íjarstýrðu samstæðu á LÆGRA VERÐI en með fyrirhugaðri tollalækkun. Aðeins kr. 27.690 stgr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.