Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1987, Síða 62
62
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER 1987.
Merming
I lífsins ólgusjó
Sigurdór Sigurdórsson:
Spaugsami spörfuglinn.
- Þröstur Sigtryggsson skipherra.
úrn og úrlygur 1987.
Og kemur þá ekki einn generáll-
inn enn úr þorskastríðinu hugsar
maður með sér og opnar bókina
með blendnum huga. En bíðum
við. Hann hefur aö vísu gullhúfu á
kápunni en líka íjaðrastél og bók-
amafniö er ísmeygilegt. Kannski
hann sé ekki eins ábúðarmikil
hetja og hinir. Og maður fer að
glugga í skræðuna. Kallaður
Spörri, sonur séra Sigtryggs á
Núpi, bróðir Hlyns veðurstofu-
stjóra. Verra gat það verið.
Hann byrja virðulega, segir frá
heimskomu sinni vestur á Núpi í
Bókmeimtir
Andrés Kristjánsson
Dýrafirði, segir settlega frá foreldr-
um sínum og bamsranni en fer að
hlaupa smávegis út undan sér þeg-
ar hann er orðinn arfameistari í
Skrúð, færist svo smátt og smátt í
aukana og áður en varir er þetta
orðin hin broslegasta bók í betri
merkingu orðsins. Það' er les-
andinn sem brosir, enda er
gamanið mjög á kostnað spörfugls-
ins skrautlega sem sjálfum stekkur
ekki bros.
Varla kominn á
ævisögualdur
En er hér ekki einhver misskiln-
ingur á ferðinni? Maðurinn er ekki
kominn á ævisögualdur, rúmlega
fimmtugur, og hefur svo sem ekki
frá miklu að segja en hann laumar
þessum smámunum, sem hann tín-
ir til, bara svo fagurlega út úr sér
gegnum Sigurdór að maður lætur
það gott heita þótt hann hafi
kannski ekki bjargaö þjóðinni. Og
sagan streymir fram án fossa og
sviptinga en með því fleiri smárós-
um í straummynstrinu. Tökum til
að mynda rósaflúrið hans í skólalíf-
inu á Núpi, bæði sem nemanda og
kennara. Það er ekki amalegt. Nú,
var þá þorskastríðið hans kannski
aðeins smáskrítla? Nei, hann skar
f RISINU HVERFISGÖTU 105 KL.23 - 03
ANNAN JÓLADAG
MEÐAL SKEMMTIKRAFTA-
MEGAS
OG KVENNAHLJÓMSVEITIN LESUOS
BLAÐ
BURÐARFÓLK
i /weAsjjL:
Barmahlið
Reykjahlíð
Mjóahlið
Grundarstíg
Þinghoitsstræti
Ingólfsstræti
Hátún
Miðtún
Hverfisgötu 1-66
Smiðjustíg
Þórsgötu
Lokastíg
Freyjugötu
Hverfisgötu 68-115
Snorrabraut 22-24
Barónsstíg 1-9
Kópavog
Álfhólsveg 64-95
Digranesveg 91-125
Lyngheiði
Melaheiði
Tunguheiði
f t t
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
•fc f ^
Þröstur Sigtryggsson skipherra.
auðvitað og klippti eins og hinir og
tókst það oft vel. En hann lýsir því
ekki meö neinum tilþrifum enda
var hann útsmoginn við að komast
í klippufærið með ofurlitlum leik-
fléttum og þær standa nú huga
hans nær, að því er manni virðist,
og um fram allt ýmsar smáskrítlur
sem gerðust. Þær koma eins og á
færibandi þarna - og í bókinni allri.
Og þótt efnið sé raunar háalvarlegt
og það komist allt til skila sem
umflrstraumur er yfirbragðið alltaf
með léttum gamansvip. Jafnvel
ásiglingu á bryggju gerir hann að
skrítlu um sjálfan sig og mundi þó
flestum skipherrum þykja margt
annað kímilegra.
Hlýlegt og mannlegt
Þröstur skipherra hefur víða far-
ið og kann frá mörgu að segja, jafnt
frá Japan sem Grænlandi, en allt
er þetta með léttum og gamansöm-
um frásagnarblæ og má ekki á milli
sjá hvort hann sjálfur eða sam-
ferðamenn eru betra skopsagna-
efni - en hann lætur ekki hallast á
sig. Þetta skop er allt hlýlegt og
mannlegt. Maðurinn hefur aðeins
svona næmt auga fyrir hinu kími-
lega og virðist fyrst og fremst muna
eftir því. Spjall hans um sína nán-
ustu og fjölskyldufólk er meö sama
lífslistarblænum.
Frásögnin er lipurlega rituð.
Samvinna Sigurdórs og Þrastar
virðist hin ágætasta svo frásagnar-
blærinn verður jafnfelldur og
hnökralítill, steypir engum stömp-
um, hvort sem skrásetjari tileinkar
sér svona vel launkímni og sögu-
stíl Þrastar eða fellir hann í þennan
stakk. Þetta er einkar notaleg og
hýrleg lesning, morandi af hnyttn-
um smásögum úr öllum áttum og
af ótal mönnum og smáatvikum úr
daglegu lífi. Frásögnin er vörðuð
lýsifyrirsögnum sem létta og lyfta.
Og nafnaskrá fylgir.
A.K.
SÍMI 27022
BLAÐAMAÐUR - MATREIÐSLA
DV auglýsir eftir blaðamanni sem getur annast um-
sagnir og frásagnir af matreiðslu, matargerð, matar-
innkaupum og hliðstæðu efni á neytendasíðu. Um
fullt starf er að ræða. Kjör skv. samkomulagi. Þarf
að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sendist fyrir
áramót, merkt: Ritstjórn DV, umsókn um blaða-
mannsstarf.
Ritstjórar