Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988. Neytendur Neytendasamtökin eru ósátt við þá neyslustýringu sem fellst I því að mætvæli á borð við kindakjöt í heilum skrokkum skuli undanþegin sölu skatti en grænmeti t.d. ekki. Neytendasamtökin: Ósátt við matarskatt DV hafði sambandi við Jóhannes Gunnarsson, formann Neytenda- samtakanna, og spurði hann um álit samtakanna á matarskattin- um. „Varðandi matarskattinn þá leggjum við áherslu á að þessar aðgerðir hljóta að koma verst niður á þeim lægst launuðu. Þarna er verið að skattleggja vörur sem allir þurfa að neyta, ríkir jafnt sem fá- tækir. í öðru lagi er veriðað gefa öllum manneldissjónarmiðum langt nef með þessum aðgerðum. Þarna er veriö að hækka grænmeti og ávexti f meðan smjör er niðurgreitt. Þetta er fráleit aðgerð. í þriðja lagi felur þessi aðgerð, með niðurgreiðslum og öðrum hliðarráðstöfunum, í sér neyslu- stýringu sem Neytendasamtökin eru alfarið á móti.“ -PLP Heimilisbókhaldið í nóvember: Matarkostnaður með lægra móti Heimilisbókhaldið fór heldur betur niður á við í nóvember en þá var meðaltalskostnaður á mann í mat og hreinlætisvörur aðeins kr. 5.306,80. Þetta er mun lægra en í október en þá var meðaltalskostn- aður kr. 6.893. Hafði kostnaðurinn þá aldrei verið hærri, en í sept- ember var hann kr. 5.549. Það er því greinilegt að í nóv- ember hafa menn heldur hert sultarólina fyrir jólahald og verður því forvitnilegt að fylgjast með des- embertölunum. Viljum við því eindregið hvetja fólk til að senda inn seðil með desembertölunum því að nú er brýnt að fylgjast vel með hvernig matarskattur og tolla- breytingar koma niður á heimilis- bókhaldinu í janúar. Til þess að hægt sé að gera marktækan sam- anburð er best að sem flestir sendi inn upplýsingar. í tölum nóvembermánaðar kem- ur fram að fólk eyðir mismiklu í mat og hreinlætisvörur. Lægsti aðihnn var með kr. 2.835 á mann en sá hæsti fór vel á tíunda þúsund- ið. Athygli vekur að bæði hæsti og lægsti liðurinn voru á seðlum frá Reykjavík. Liðurinn „Annað" var hins vegar að jafnaði þremur sinnum hærri en matarkostnaður. Inn í þennan lið koma alls kyns afborganir, fata- kaup og fleira sem telst kannski ekki til daglegs rekstrar heimil- anna en virðist vera meginuppi- staðan í fjárútlátum fólks. Þessi liður fór aílt upp í kr. 150 þúsund þannig að ekki er ofsögum sagt að hann vegur þungt. Við viljum hvetja sem flesta til að senda okkur inn upplýsingar því að það hefur margoft sýnt sig að ef menn gefa sér smátíma til að hugsa við innkaupin má lækka kostnað svo um munar. -PLP Kennitalan óðum að komast í gagnið Á árinu 1985 var ákveðið af Hag- stofu íslands að í stað nafnnúmera skyldi tekin í notkun svonefnd kennitala. Tala þessi skyldi saman- standa af fæðingardegi, mánuði og ári einstaklings, 3ja stafa fæðingar- númeri (sem verið hefur) að viðbættu eins stafs aldamúmeri. Dæmigerð kennitala lítur þá þann- ig út: 201161-6149. Aldamúmerið er síðasti stafurinn og stendur fyrir 1900. Ljóst var aö breyting þessi yrði það viðamikil að erfitt væri að framkvæma hana á skömmum tíma. Fyrsti vísir að kennitölu einstakl- inga kom fram á skattframtölum fyrir árið 1987. Um áramótin sfð- ustu tóku þær reglur gildi hjá hinu opinbera, þ.e.a.s. hjá skattstióra, tollstjóraembætti, ríkisféhirði og gjaldheimtu, að notuð skyldi kenn- itala einstaklinga. Þannig em t.d. skattkort með kennitölu. Bankakerfið hefur enn ekki tekið kennitöluna í notkun. Gert er þó ráð fyrir að kennitalan verði komin í notkun í bönkum áður. en ár er liðið. Þannig verða öll bankakort árituð kennitölu. Um næstu ára- mót munu svo nafnskírteini, ökuskírteini og sjúkrasamlagsskír- teini bera kennitölu einstaklinga. Notkun nafnnúmera mun þannig smám saman fjara á næstu árum án þess þó að hverfa alveg þar sem alltaf má gera ráð fyrir að eldri skjöl stofnana verði aðeins merkt nafnnúmerum. -ÓTT. Könnun Neytendasamtakanna: ísskápar end- ast vel á íslandi í nýútkomnu Neytendablaði em birtar niðurstöður úr notendakönn- un Neytendasamtakanna á ísskáp- um. Könnunin náði til 1028 skápa og var hringt eftir úrtaki úr símaskrá. Niðurstöður könnunarinnar eru um margt forvitnilegar. Lítum aðeins nánar á þær. Könnunin leiðir í ljós að á íslensk- um heimilum em til ísskápar frá að minnsta kosti 60 framleiðendum. Sumir þessara skápa hafa aldrei ver- ið seldir hér á landi, aðra er hætt að framleiða. Af þessum 60-vöramerkj- um voru 21 með fleiri en átta skápa í úrtakinu. Sex vörumerki voru með liðlega helming aUra skápanna. Þessi vörumerki eru: Electrolux, Ignis, Philips, Westinghouse, Gram og Si- emens. Einna athyghsverðast er hve end- ing ísskápa virðist vera góð hér á landi. Um fjórðungur skápanna reyndist vera eldri en 16 ára og aldr- ei hefur þurft að gera við 79% þeirra. Skápar frá Philco og General Electric sem náð höfðu þessum aldri höfðu aldrei þurft neinnar viðgerðar við. Þetta hlýtur að teljast ótrúleg end- ing og neytendur því upp til hópa ánægöir með skápana sína, en 77% aðspurðra kváðust .mjög ánægðir. Einna besta útkomu fá Westinghouse ísskápar en 95% eigenda þeirra kváð- ust mjög ánægðir með skápana meðan enginn kvaðst óánægður. Þó kváðust 3% þeirra ekki geta mælt með skápunum og 2% voru óánægðir með þjónustu seljenda. Næstbestu einkunn fengu ísskápar frá Siemens. 93% eigenda þeirra vom mjög ánægðir og enginn óánægður. Þó sögðust 3% ekki geta’mælt með slíkum skáp og 2% vom óánægðir með þjónustu seljenda. Þeir skápar sem lökustu einkunn fengu meðal sinna eigenda vom frá Ignis. Aöeins 52% Igniseigenda vom ánægöir, óánægðir reyndust 21% og 35% gátu ekki mælt með slikum skáp. Um 11% vora óánægðir með þjónustu seljenda. -PLP Miminkiiwn NEYTENDUR INNTIR EfTIR REYNSLU SINNIAF ÍSSKÁPUM Vörumerkl FJÖIdl skápa Þaraf 5Araog yngrl Þaraf 6-15 Ara Þaraf 16Araog eldrl Hlutfall skApa semekkl hefurþurft aögeravlö 5Araog yngri Hlutfall skApa semekkl hefurþurft aögeravlö 6-15 Ara Hlutfall skApa semekkl hefurþurft aðgeravlð 16Araog eldrl Mjög ánægðlr ÓAnsgðlr Getaekkl mæltmeð skApnum ÓAna»gölr með þjónustu seljanda Electrolux 139 62 62 15 95% 77% 67% 88% 4% 9% 4% Ignls 110 23 70 17 87% 79% 53% 52% 21% 35% 11% Philips 95 44 14 37 93% 50% 86% 72% 7% 16% 7% Westinghouse 65 6 11 48 67% 64% 81% 95% 0% 3% 2% G»-am 62 40 22 93% 86% 82% 3% 8% 0% Siemens 60 52 8 96% 100% 93% 0% 3% 2% Zanussi 59 18 24 17 100% 83% 71% 78% 0% 14% 10% Philco 51 12 27 12 92% 85% 100% 69% 12% 20% 10% Atlas 49 4 19 26 100% 79% 73% 71% 2% 16% 6% Bauknecht 46 18 28 89% 82% 80% 4% 11% 9% Candy 37 20 17 95% 88% 81% 0% 8% 3% Kelvinator 25 4 21 100% 81% 64% 4% 8% 4% Boch 22 9 13 78% 92% 77% 0% 5% 0% Indeset 22 9 13 89% 92% 64% 18% 27% 5% General Electric 21 3 10 8 67% 60% 100% 86% 0% 5% 5% Snowcap 20 20 95% 75% 15% 10% 0% KPS 14 8 6 63% 67% 64% 14% 14% 7% Husqvama 13 6 7 83% 71% 77% 15% 23% 15% AEG 13 3 6 4 67% 100% 50% 85% 0% 8% 15% Westfrost 9 2 7 100% 43% 78% 11% 22% 11% Blomberg 8 8 75% 75% 13% 13% 13% Allir ísskáparnlr 1028 379 383 266 92% 79% 79% 77% 6% 14% 6% Af þessum isskápum eru eftirtáldir ekkl fluttir inn lengur: Atlas, Kelvlnator. Boch, Indesit, KPS og Westfrost. Reiðhjól og tollalækkanir Videotökuvélar lækka nú verulega. Videotökuvél- ar lækka um nær helming Miklar lækkanir em nú í gangi á munaðarvöram, svo sem á video- tökuvélum, myndböndum og sjón- varpstækjum. Þær upplýsingar fengust hjá versluninni Japis að mest væri lækkunin á videotökuvél- um þar sem aðflutningsgjöld hafa verið felld niður. Má sem dæmi nefna að tæki, sem áður kostaði 166.360 kr„ lækkar nú um rúmar 70.000 kr. eða niður í 94.900 kr. Þessi lækkun nemur 42.95%, Myndbandatæki lækka að jafnaði úm 25%. Því lækka tæki, sem áður kostuðu 35.000 kr„ niður í 26.250 kr. Sjónvarpstæki lækka að meðaltali um 10%. Sem dæmi má nefna sjón- varpstæki sem áður kostaði 35.900. kr„ það kostar nú 32.500 kr. Lækkun þessi nemur 9.47%. Lækkun sjón- varpstækja er á bilinu 7-15%. -ÓTT Þó reiðhjól séu Iftiö notuð yfir vetur- inn er þó alltaf einhver sem þrjósk- ast við og býöur veðrinu byrginn. Ein af þeim vörutegundum sem taka verðbreytingum í kjölfar nýrra tollalaga era reiðhjól. Samkvæmt gömlu tollskránni var tollur á þeim 80%. Þeir voru þó felldir niður með undanþágu 1979 en tollskráin er frá ’78. í stað tolla var þó sett á reiðhjól 30% vörugjald. í nýju tollskránni hefur þetta vöm- gjald verið fellt niður en þess í stað er kominn 10% tollur. Lækkun á verði reiðhjóla kemur því til með að verða um 12% út úr búð sé miðað við óbreytta álagningarprósentu. Hjá reiðhjólaversluninni Erninum fékk DV þær upplýsingar að fregnir af fyrirhugaðri tollalækkun hefði valdið hiki hjá væntanlegum kaup- endum. Því brá verslunin á það ráð að lækka þegar fyrir jól um 20%. Sala á reiðhjólum er þó árstíða- bundin og sakir óvissu í gengismál- um er óvíst um verð reiðhjóla þegar sölutími hefst með stórum sending- um í vor. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.