Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1988, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1988.
17
Lesendur
Þórbergur í essinu sínu - á gönguferð meðfram Tjörninni.
Úr ritsmíðum Þórbergs:
Margar villur
Guðm. Guðmundsson skrifar:
„Mitt rómantíska æði“ nefnist bók
sem nýlega er komin út. Þar er um
að ræða kafla úr bréfum og öðrum
ritsmíðum Þórbergs Þórðarsonar frá
árunum 1918-1929. Hér er á ferð
framhald bókar er kom út ári fyrr,
Ljóri sálar minnar.
Eins og á hefur verið bent eru vill-
ur margar í fyrri bókinni. Varðandi
síðari bókina vil ég nefna nokkur
atriði: Rætt er í bókinni um Guð-
mund Báröarson, bónda í Bæ í
Hrútafirði. Þar mun átt við Guö-
mund G. Bárðarson. Hann var sonur
Guðmundar Bárðarsonar, bónda í
Bæ, en áöur að Kollafjarðamesi (sbr.
bókina Strandamenn).
Talað er um, á bl?. 32, að ekki megi
„gista í þorpum". Sá misskilningur
virðist þar að Þ.Þ. sé þama að ræða
um kauptún. Svo mun ekki vera,
heldur bæinn að Þorpum í Stein-
grímsfirði.
Eigi viröist umsjónarmanni útgáf-
unnar ljóst að sá maður, sem í
bréfum Þ.Þ. er nefndur Ibsen, var
Haraldur Jónsson læknir.
Skrá um mannanöfn er að ýmsu
leyti ábótavant. - Þar vantar t.d. nöfn
Finns Jónssonar, póstmeistara á
ísafirði (síðar ráðherra), og Stefáns
Jóhanns Stefánssonar, síöar forsæt-
isráðherra.
Fleiri atriði mætti nefna en hér
verður látið staöar numiö að sinni.
Hringið í síma 27022
milli kl. 13 og 15,
BLAÐ
BURÐARFÓLK
cMtAsTW
Nýlendugötu
Tryggvagötu 1-9
Mýrargötu
********************
Eskihlíð
Blönduhlíð
********************
Brávallagötu
Ásvallagötu 1-17
Sólvallagötu 1-10
Blómvallagötu
*******************
Eiríksgötu
Barónstig 49-út
Fjölnisveg
*****************
Hverfisgötu 2-66
Smiðjustíg
*****************
Sörlaskjól
Faxaskjól
Nesveg 21 út
*****************
Skagasel
Skriðusel
Skógarsel
Staðarsel
Stafnasel
Stekkjarsel
******************
Miklubraut
******************
Hraunbæ 100-150
******************
"ft ^ 1? t t
i í í
ÞVERHOLTI 11
AFGREIÐSLA
t %
SÍMI 27022
STANGAVEIÐIMENN
Tilboð óskast í eftirfarandi hluta vatnasvæðis Blöndu
næsta veiðitímabil.
1. Auðólfsstaðaá
2. Blanda framan Ástúns
3. Seyðisá
4. Galtará
5. Haugakvísl
6. Herjólfslækur
Bjóða má í öll veiðisvæðin í einu eða hvern hluta
fyrir sig.
Tilboðum skal skilað skriflega fyrir 1. febrúar nk. til
Ævars Þorsteinssonar, Enni, 541 Blönduósi, sem
veitir allar nánari upplýsingar í síma 95-4319.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Stjórn Veiðifélags Blöndu og Svartár
Munið
að senda inn
jólakrossgátuna.
Dregið er úr réttum lausnum og veitt eru þrenn verðlaun. Fyrstu verð-
laun: AIWA csw 100 útvarps- og tvöfalt kassettutæki að verðmæti kr.
8.680 frá Radióbæ, Ármúla 38.
Únnur og þriðju verðlaun: AIWA hrs 08 heyrnartólsútvörp að verðmæti
3.990, einnig frá Radióbæ.
Lausnir skal merkja: Jólakrossgáta, DV, pósthólf 5380,125 Reykjavik.
Lausnir skulu berast fyrir 15. janúar.
Við minnum á D V-jólamyndagátu.
Sendið lausnir sem fyrst.
Fyrir rétta lausn á jólamyndagátu eru veitt þrenn verðlaun: Fyrstu verð-
laun: Tensai rcr 3326 stereoútvarpstæki með tvöföldu segulbandi að
verðmæti kr. 8.236 frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Siðumúla 2.
Únnur og þriðju verðlaun: Tensai rcr 3315 ferðaútvarps- og kassettutæki
að verðmæti kr. 4.755, einnig frá Sjónvarpsmiðstöðinni.
Dregið verður úr ráttum lausnum. Lausnir skal merkja: Jólamyndagáta,
DV, pósthólf 5380,125 Reykjavik. Lausnirskulu berastfyrir 15. janúar.