Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Side 2
2
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
Fréttir
Verslunarmenn:
Slökkvilið aö berjast við sinueld í Oskjuhlíð um helgina. Mikið hefur verið um sinuelda aö undanförnu. HUsakostur
á bæ í Öltusi var hæft kominn vegna sinuelds í gær. DV-mynd KAE
Mikil hætta vegna sinubmna:
„Fossvogurinn
var nær alelda“
Mikil hætta skapaðist af sinueld- Kópavogi. mátti muna að húsakostur á bænum
um um helgina. Við Hafnarbraut í Það eru ekki alltaf börn eða ungl- Kjarri yrði eldinum að bráð.
Kópavogi var bensíntankur og ingar sem kveikja í sinu. Sumarbú- Jörð er mjög viðkvæm fyrir eldi.
vinnuskúr hætt kominn í nótt. Foss- staðareigandi undir Ingólfsfjalli var Gras er þurrt og jörð freðin. Þegar
vogurinn var vinsæll til að kveikja í í vorhreingerningum í gær. Hann þessu fylgja vindar getur sinueldur
sinu. Lögreglunni þykir fólk seint til kveikti eld með þeim afleiðingum að verið fljótur að breiðast út.
að gera viðvart. „Fossvogurinn var úr varö mikill sinubruni. Slökkvilið- -sme
nær alelda,“ sagði lögreglumaður í ið á Selfossi var kallað til og litlu
Krafan 42 þúsund
í byrjunariaun
- Magnús L. Sveinsson er svartsýnn á samnmga
Verslunarmenn gera nú kröfu um
42 þúsund króna byrjunarlaun. Þetta
var samþykkt á fundi stjómar Land-
sambands verslunarmanna og
formanna félaganna í gær. Fulltrúar
verslunarmanna og vinnuveitenda
mæta hjá ríkissáttasemjara síðdegis
í dag og þar verður þessi krafa sett
fram.
Þetta er þriðja lotan í samninga-
málum verslunarmanna, en fyrri
samningar hafa tvívegis verið felldir.
Boðaö hefur verið allsherjarverkfall
nú á fóstudaginn og sagðist Magnús
L. Sveinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, vera
svartsýnn á að samningar tækjust
fyrir þann tíma.
„Eins og útlitið er nú á ég ekki von
á öðru en að til verkfalls komi,“ sagðj
Magnús. „Við komum saman til að
stilla strengina og búa okkur undir
átök. Komi til verkfalls veröur það
mjög víötækt og veldur því aö mikið
af þjónustu í landinu lamast,“ sagði
Magnús L. Sveinsson.
-GK
Góð aðsókn að gæludýrasýningunm:
Fegurðarsamkeppni katta
Feguröarsamkeppni katta var
vinsælt atriði á gæludýrasýning-
unni sem haldin var um helgina í
Reiöhöllinni.
Að sögn Gunnars Vilhelmssonar,
aðalaðstandanda sýningarinnar,
tókst sýningin vel og aðsókn fór
fram úr björtustu vonum. Gunnar
sagði aö sýning sem þessi hafi ekki
veriö haldin áöur hér á landi og
voru talsverðir fjármunir lagöir
undir til þess aö vel mætti takast til.
Mesta athygli á sýningunni vöktu
schaeffer hundar sem sérstakiega
höföu verið þjálfaðir fyrir þessa
sýningu síöan í nóvember. Hund-
amir sýndu svokallaöa hundafimi
sem kallast „vinnuhundaprógram"
þar sem hundamir tróðu sér m.a.
1 gegnum strigapoka og útfæröu
ýmsar kúnstir sem miða aö því að
þjóna húsbónda sfnum. Hundarnir
kepptu einnig innbyröis í stökkum.
A sýningunni fór einnig fram feg-
urðarsamkeppni katta þar sem
áhorfendur greiddu atkvæði.
Kattavinafélagið sá um að vefja úr
tólf huggulegustu kettina sem
áhorfendur kusu síðan um. Þess
má geta að athygli var vakin á veg-
um kattavina á húsnæði fyrir ketti,
„Kattholti“, sem hugsaö er sem
gæsluheimili fyrir ketti, t.d. ef þeir
týnast og ef eigendur þurfa nauö-
synlega á pössun að halda.
Kanínur og önnur nagdýr vora
vinsæl þjá bömunum, enda sýn-
ingin fyrst og fremst hugsuð fýrir
þau. Margs konar fiskar í allt að
1.500 lítra kefjum vöktu einnig at-
SSgurður Helgason á Seyðisfirði:
Hættuástandið
er liðið hjá
„Við teljum að hættan sé liðin
þjá. Það heftir allt breyst til hins
betra. Það hafa aðallega verið at-
vinnusvæði sem við höfum lokað.
Síldarverksmiðjumar fóru í gang í
gær og önnur fyrirtæki á svæðinu
hófu störf í morgun,“ sagöi Sigurð-
ur Helgason, bæjarfógeti á Seyðis-
firði, en hann er jafnframt
formaöur almannavarnanefndar á
Seyðisfiröi.
Sigurður sagði að þaö hefði verið
áskorun frá almannavarnanefnd
að fólk héldi sig sem mest innan-
húss en á sunnudag heföi kólnaö í
veðri og því ástandiö breyst mikið
til hins betra og gátu Seyöfirðingar
því verið áhyggjulaust á ferli í gær.
„Það var byijað að moka Fjaröar-
heiði í morgun. Ég er svartsýnn á
að það takist að opna hana í dag.
Ég held að það sé meira en eins
dags verk að opna heiðina," sagði
Sigurður Helgason.
Mikill snjór er á Fjaröarheiði og
var send út tilkynning og feröafólk
varað við því að aðeins eru um
tveir metrar í rafmagnslinur og því
geta ferðalög á heiðinni veriö stór-
hættuleg.
Á fóstudag féll snjóflóð á fjárhús
sem standa nokkru utar í Seyöis-
firöi en kaupstaöurinn. Þrettán ær
drápust vegna srúóflóðsins. -sme
Varð að yfirgefa heimili sitt:
„Hafði það huggulegt
og las Kaldaljós"
„Ég haföi þaö huggulegt og las
bókina Kaldaljós," sagði Þóra Guð-
mundsdóttir á Seyðisfirði. Hún
varð aö yfirgefa heimili sitt vegna
snjóflóðaliættu. Þóra sagði þaö er-
fitt að þurfa að fara að heiman, en
fólk sem byggi viö þetta læröi að
lifa með þessu.
Hún sagði að aldrei heföi fallið
flóð á hús sitt. En hún býr f einum
elsta hluta bæjarins. „Stóra snjó-
ílóöiö, sem Seyöfirðingar eru hvað
hræddastir við og féli 1875, féll mun
innar í bænum.
Við vorum aldrei í neinni hættu.
Þaö er brugðist við áöur en hætta
skellur á. Við höfum lært að meta
hættuna og breytum samkvæmt
því,“ sagði Þóra Guðmundsdóttir.
-sme
Sonja Parris Hansen frá Noregi, sem hér spennir vöðvana, varð sigurvegari
i 57 kílógramma þyngdarflokknum á Norðurlandamótinu í vaxtarrækt sem
fram fór á Hótel íslandi í gærkvöldi. Sigurvegarinn í 90 kg þyngdarflokknum
varð Lance Gilles frá Svíðjóð en bestum árangri íslendinga náði Hreinn
Vilhjálmsson sem varð í öðru sæti i flokki öldunga, 80 kg þyngdarflokknum.
DV-mynd JAK
Maigir farfuglar komnir
Margir farfuglár eru þegar komnir Af svoköfiuöum fargestum, en það
til landsins, þar á meðal síla- og hett- era þeir fuglar sem hafa stutta viö-
umávur, skógarþröstur, lóa, álft, komu á leið sinni til varpstöðva á
grágæs, hrossagaukur, grafónd og Grænlandi og í Kanada, er aðeins
gargönd, lóuþræll, steindepill, margæsin komin.
sandlóa og jaðrakan. -ÓTT.