Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Síða 11
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
11
Arás á borpalla
Ólafur Amarson, DV, New York:
Bandaríski flotinn á Persaflóa geröi
í nótt árás á tvo íranska oMuborpalla
í suðurhluta flóans.
Það var um klukkan eitt í nótt að
bandarískum tíma sem árásimar hó-
fust að beinni skipan Reagans forseta.
Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu,
sem haldinn var klukkan hálfíjögur
í nótt að bandarískum tíma, sagöi
MarMn Fitzwater, talsmaður Hvíta
hússins, að Reagan forseti hefði fyrir-
skipað árásir á tvo oMuborpalla í
suðurhluta Persaflóa til að hefha þess
að bandarísk freigáta, Samuel B. Ro-
berts, sigldi á íranskt tundurdufl
síðastMðinn fimmtudag. Freigátan
skemmdist nokkuð og tíu sjóMðar
særðust.
Fitzwater sagði að oMuborpallamir
hefðu verið notaðir sem radarstöðvar
á vegum írana. Hann sagði ennfrem-
ur að íranir'hefðu margoft verið
varaðir við aö Bandaríkin myndu
grípa til aðgerða ef íranir hættu ekki
að leggja tundurdufl í Persaflóa.
Er blaðamannafundurinn var hald-
inn stóðu árásir Bandaríkjamanna
enn yfir. Samkvæmt heimildum
höfðu orðið miklar skemmdir á pöfl-
unum en ekki var vitað um manntjón.
Bandaríkjamenn munu samkvæmt
heimildum hafa varað við með nyög
skömmum fyrirvara að árás væri í
aðsigi. Samkvæmt sumum heimild-
um var sá fyrirvari aðeins 45 sekúnd-
ur en það er óstaðfest.
Ráðgert er að haldinn veröi blaða-
mannafundur í bandaríska vamar-
málaráðuneytinu í dag fyrir hádegi
að bandarískum tíma þar sem nánar
verði skýrt frá árásinni.
Útlönd
ROBERTS
Þaó var vegna árekstrar bandarísku freigátunnar Samuel B. Roberts viö
tundurdufl á fimmtudaginn sem Bandarikjamenn geróu árás á tvo iranska
olíuborpalla á Persaflóa í morgun. Sfmamynd Reuter
TECHNICS X-800 HÁÞRÓUÐ
HLJÓMTÆKJASAMSTÆÐA
MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJAR-
STÝRINGU
Verð 39.860,- Stgr. 37.870,-
Með fjarstýrðum geislaspilara
Verð 58.810,- Stgr. 55.850,-
FRAMTÍÐAREIGN Á GÓÐU VERÐI.
Hann leynir sér ekki glæsileikinn
þegar TECHNICS eiga í hlut. En
^ útlitið eitt segir ekki nema hálfa
söguna, það er innihaldið, endingin
og hljómgæðin sem skipta öllu máli,
þá koma yfirburðir TECHNICS
hljómtækjanna í ljós.
Það er engin tilviljun að TECHNICS
eru mestu hljómtækjaframleiðendur
heims, þeim árangri nær aðeins sá
sem getur boðið upp á framúrskar-
andi vöru í öllum verðflokkum.
Takið ekki óþarfa áhættu, þið eruð
örugg með tækin frá TECHNICS.
JAPIS
BRAUTARHOLT 2 • KRINGLAN • SÍMI 27133
REYKJAVÍK Japis Brautarholti 2 Japis Kringlan Mikligarður V SELTJARNARNES • Stjornubœr Eiðistorgi H KEFLAVÍK • Studeo S* AKRANES • Bókaskemman & AKUREYRI • Radiovinnustolan Kaupangi
Tonabuðin H BOLUNGARVÍK ■ Vers'.. Einars Guðtinnssongr £. BORGARNES Kauptelag Borgfirðinga H EGILSSTAÐIR Eyko H HELLA ■ Mosíell • HORNAFJÖRÐUR Hatiðni H HÚSAVIK • Bokaversl
Þórarins Stefanssonar ffl HVAMMSTANGI • Rafeindav. Odds Sigurðssonar Sí ÍSAFJÖRÐUR • Póllinn 8 NESKAUPSTAÐUR ■ Tónspil 8f ÓLAFSVÍK ■ Tessa : ■ PATREKSFJÖRÐUR ■ Rafbúð Jonasar Þoris tt
5AUÐÁRKRÓKUR Radiólman Ki SELFOSS • Vöruhús KÁ (8 SEYÐISFJÖRÐUR ■ Kaupfélag Héraðsbua U TALKNAFJÖRÐUR ■ Bjarnabúð M VESTMANNAEYJAR • Kjarni :S ÞORLÁKSHÖFN ■ Ras @