Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
Spumingin
Telur þú aö selja eigi
einkaaðilum rás 2?
Valbjörn Jónsson: Já, hikstalaust,
það þarf ekki útskýringar við.
Margrét Einarsdóttir: Já, þó fyrr
hefði verið.
Þórey Jónsdóttir: Já, rás 2 er vonlaus
eins og hún er.
Ingibjörg Halldórsdóttir: Alveg eins,
ef það eykur fjölbreytnina.
Reynir Gylfason: Já, hún er ekki arð-
bær eins og hún er rekin núna.
Þórir Sandholt: Já, það er gefið mál
að hún er í betri samkeppnisaðstöðu
í einkaeign.
Lesendur
Fjölmiölafárið um rikisstjómina:
Nýskipan ekki á döfinni
„Sennilega hefur engin stjórn verið eins föst í sessi og einmitt þessi
rikisstjórn," segir hér. Rikisstjórn Þorsteins Pálssonar.
Þorsteinn Bjarnason hringdi:
Eftir að Framsóknarflokkurínn
tilkynnti að hann myndi gangast
fyrir miðstjómarfundi hinn 23.
apríl til að endurmeta stjórnarsam-
starfið og ef til vill setja fram
einhverjar áherslubreytingar hafa
fjölmiðlar ekki Unnt látum og túlka
þetta sem svo að nú sé ríkisstjórnin
að ghðna og annaðhvort hljóti
Framsóknarflokkurinn aö fara úr
stjórn - eða þá Alþýðuflokkurinn!
Ég tel mig hafa góöar heimildir
fyrir því að hvorugt mun gerast.
Formaður Framsóknarflokksins er
áreiðanlega manna sístur til að
krefjast þess að flokkur hans fari
frá. Vel má vera að þar í flokki séu
einhveijir sem ekki era ánægðir
en það eru þá bara þeir sem ekki
hafa fengið nógu mikinn framgang,
t.d. verið afskiptir í ráðherraemb-
ætti.
Hjá Alþýðuflokknum er brott-
hlaup ekid á dagskrá, svo mikið
veit ég. Og hjá Sjálfstæðisflokki er
enginn, nema þá þeir sem horfa
löngunaraugum til ráðherraemb-
ættis, sem vill slíta stjórnarsam-
starfi eða fá aðra flokka til
samstarfs. Þetta er því sannkaUað
fjölmiðlafár eins og máUn standa
nú. SennUega hefur engin stjórn
verið eins fóst í sessi og einmitt
þessi ríkisstjóm.
Auðvitað hefur þessi stjóm ekki
gert öllum til geðs en hún hefur þó
tekið á málum sem fáar stjómir
hafa áður þorað. Ef hins vegar ein-
hver flokkanna ætti eða mætti fara
frá þá væri það Framsóknarflokk-
urinn sem er einna harðastur á
móti hvers konar breytingum og
eru landbúnaöarmáUn gleggsta
dæmið um það.
Og auðvitað hefur þessi stjóm
ekki veriö nægilega hörð við Fram-
sókn, t.d. í því að krefjast afnáms
niðurgreiðslna og útflutningsbóta
en að því kemur að hvort tveggja
verður að skera á. Það gengur ekki
að þurfa að taka erlend lán æ ofan
í æ vegna skuldbindinga um út-
flutingsba?tur.
Nei, stjómin fer ekki frá fyrr en
í næstu kosningum, eins og eðUlegt
er. Én hún verður að sýna enn bet-
ur að hún hafi tök á þeim efnahags-
vanda sem hér er að skapast. Þar
er niðurskurður á samneyslu eða
niðurskurður hins opinbera efst á
blaði, eins og allur almenningur er
ailtaf að benda á.
En ef til vill er besta svarið við
þessum hugleiðingum það sem
formaður þingflokks Framsóknar
sagði í lok viðtals í blaði nýlega. -
Hann var spurður: Ræðst framhald
stjórnarþátttöku Framsóknar-
flokksins á miðstjórnarfundinum?
Og hverju skyldi þingmaðurinn
hafa svarað? Jú, hann sagði þessa
gullvægu setningu: „ Nei. Það
ræðst ekki á miðstjómarfundinum.
Það kemur til með að ráðast af við-
brögðum ríkisstjórnarflokkanna á
því sem verður ákveðið á miö-
stjórnarfundinum"!!
Um orðheldni:
Önnursaga
úr
sveitinni
Guðmundur Jónsson, Bjarnastöð-
um, Hvítársíðu, skrifar:
Ég sendi lesendasíöu bréf sem birt-
ist í DV hinn 13. þ.m. undir heitinu
„Hvað er orðið af heiðarleika og orð-
heldni? - Ein saga úr sveitinni". Nú
er hér önnur saga af svipuðum toga
sem mig langar til að segja.
Ein frægasta hljómsveit landsins
dvaldi hér í nágrenninu um verslun-
armannahelgi sl. sumar. Farkost
nokkurn höfðu þeir undir tól sín og
tæki, auk bílstjóra og umboðsmanns.
Nú vill svo til að farkosturinn bilar
og eitthvað var nú lítið um viðgerð-
artólin svo leita þurfti aðstoðar á
sveitabænum.
Fengu þeir að láni tæki til viðgerð-
ar svo hægt væri að halda akstrinum
áfram. Tækjunum yrði svo öragglega
skilað aftur að viðgerð lokinni, að
sögn umboðsmanns. - Rúmlega hálft
ár er liðið síðan og ekki bólar á tækj-
unum, þrátt fyrir áminningu til
umboðsmannsins.
Þessar smásögur úr dreifbýlinu
segja okkur að varasamt er orðið að
treysta lengur orðum fólks. En skelf-
ing finnst manni ómerkilegt að geta
ekki staðið við töluð orð, og ólíkt þvi
sem maður hefur átt að venjast. Eða
er heiðarleiki og orðheldni horfin úr
samfélaginu?
Þakkir til
Stöðvar2
S. Guðmundsdóttir skrifar:
Mig langar til að þakka Stöð 2 kær-
lega fyrir langa og yfirleitt góða
dagskrá um páskana. Til ánægju fyr-
ir þá sem vildu eða urðu að vera
mikið heimavið yfir hátíðina.
Ég var einnig beðin fyrir þakkir
og bestu óskir til Stöðvar 2 um góða
framtíð frá nokkram fjölskyldum,
vinum og vandamönnum, sem gjarn-
an vildu skrifa, en tíminn er naumur
hjá mörgum eins og gengur. - Ég
má svo í lokin til með að fá að láta
þá ósk fljóta með, þótt hún sé óskyld
þessu að ofan, að hætt verði við að
byggja Ráðhús í Tjörninni.
Börneru viðkvæmari fyrirþvíað veraán
réttrarnæringaren fullorðið fólk.
Skorturá næringarefnum hamlarþroska
þeirra.
Prótein er aöaibyggingarefni líkamans.
Próteinið í mjólk er hágæðaprótein og eittþað
besta sem völ er á.
Til þess að beinabygging þarf
hlutfall hinna ýmsu steinefna að vera rétt.
í mjólk eru þessi hlutföll mjög hagstæð.
7:
Börn með eðlilegan vöxtþurfaá
hitaeiningum og fitu úrnýmjólkað halda.
Neysla fituskertrar mjólkur getur svipt sum
börn nauðsynlegri orku. Orkuþörf 1 -3ja ára
barns er allt að þreföld orkuþörf fullorðinna
miðað við þyngd.