Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Page 17
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988. 17 Lesendur Okur á innanlandsflugleiðum Flugleiða: Hvar eru stjómvöld og verðlagsyfirvöld? Jón Sig., V.R.-félagi, skrifar: Vegna skrifa starfsmannafélags Flugleiöa í dagblöðum í febrúarmán- uði sl. um væntanlegan samning V.R. við Lion Air um leiguflug milli ís- lands og Luxemborgar er mjög fróðlegt að bera saman hin ýmsu flugfargjöld hjá Flugleiðum á innan- landsleiðum og Evrópuleiðum. Kemur þá í ljós að það er 163% dýrara áð fljúga per mílu í innan- landsflugi en á Evrópuleiðum hjá félaginu, þótt Fokker vélar félagsins séu löngu orðnar úreltar og afskrif- aðar. - Dæmi: Akureyri, fram og til baka 320 mílur, lægsta verð Kr. 7.234.- Kaupmannahöfn, fram og til baka 2624 mílur, lægsta verð Kr. 22.350,- London, fram og til baka 2352 mílur, lægsta verð Kr. 20.320.- Samkvæmt þessum verðum á Evr- ópuleiðum ætti fargjaldið til Akur- eyrar, fram og til baka, að kosta Kr. 2.744.-, en ekki 7.234.- Og enn meiri yrði munurinn, ef Ameríkuflugið væri tekið með í dæmið. Það gengur hreint ekki lengur þetta okur á innanlandsleiöum hjá Flugleiðum. Gefum flugsamgöngur innanlands og milli landa frjálsar sem fyrst. Lesendasíðu DV tókst að útvega mynd af þessari umræddu og „fjölþættu" peru og fylgir hún með þessu bréfi. „Gleðiperur“ eða „True-Lite“ dagsbirtuperur: Vinsældir og áhrif 163% dýrara að fljúga per milu í innanlandsflugi með Flugieiðum en á Evrópuleiðum félagsins? Hope Knútsson iðjuþjálfi skrifar: í DV lesendabréfi hinn 13. þ.m. var bréf frá Sighvati undir fyrirsögninni „Hvar fást gleðiperur?" - Mig langar til að koma með eftirfarandi upplýs- ingar í tilefni þessa bréfs: Eg held, að ég megi segja að ég hafi verið fyrst manna til að nota þessar perur, sem heita „True-Lite“ dagsbirtuljós, hér á landi fyrir um það bil 10 árum. Þessar perur fást nú hér á landi og eru til sölu í versl- uninni Natura Casa við Nýbýlaveg. „True-Lite“ fluorperumar líkja í öllu eftir náttúrlegu dagsljósi og em einu ljósaperumar sem hafa fengið viðurkenningu bandarísku heil- brigðisstofnunarinnar sem lækn- ingatæki við þunglyndi og svokölluð- um inni- og skammdegiskvillum. Tuttugu ára rannsóknir á „True- Lite“ fluorpemnum hafa sannað að þær hafa þessi heilsubætandi áhrif á fólk: auka sjóngetu og sjónskerpu - auka kalsíummyndun beina og tanna (minni líkur á beinþynningu) - draga úr þunglyndi og auka líkam- lega og andlega vellíðan - eru bakteríudrepandi og auka mótstöðu- afl líkamans - auka afkastagetu við vinnu eða athafnir daglegs lífs - eru þægileg lýsing og sýna eðlilegan lit. Maður verður kannski ekki bein- línis glaður undir „True-Lite“, áhrifin eru ekki svo einfóld. En áður- nefndir- eiginleikar hafa engu að síður veriö sannaðir. Getur svo hver dæmt fyrir sig.. í Kalkeralgengasta steinefnið ílíkamanum. bein mjólkurmatar er nær ógerlegt að fullnægja kalkþörfinni og tryggja jafnframt önnur næringarefni ínægilegum mæli. yólk gefa 1-3ja ára börnum um 50% af RDS A-vítamíns. Það vítamíner stundum nefntslímhúðarvítamínið, því að það endurnýjarslímhúðina og verokkur þannig gegn utanaðkomandi sjúkdómum. semeru nauðsynleg fyrirþá sem eru í örum vexti til þess að geta myndað erfðaefni fyrirnýjar frumur. vinna mjög velsaman. D-vítamínið í lýsinu hjálpar til við að nýta kalkið úrmjóikinni. Hún á allt þaö besta skilið Fyrsíu árin í iífi barns geta skipt sköpum um framtíð þess. Sú undirstaða sem þá er lögð þarf að vera það traust að á henni sé hægt að byggja allt lífið. Þennan mikilvæga tíma er þessi litla vera hins vegar algerlega háð umönnun annarra. Vöxtur hennar og þroski er á þeirra ábyrgð. Þegar brjóstagjöf hættir skiptir rétt fæðuval miklu máli. fvljóik ereinn mikilvægasti þátturinn í fjölbréyttu fæðuvali barna. Auk þess að vera langmikil- vægasti kalkgjafi okkar inniheldur hún í ein- hverjum mæli öll mikilvægustu vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast og verulegan hluta snefilsteinefna. Hæfilegur skammtur af nýmjólk fyrir 1 -3ja ára bam er 2-3 glös á dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.