Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1988, Síða 23
MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1988.
23
Fréttir
Djúpivogur:
Sjaldgæfur gestur
Sigurður Ægisson, DV, Djúpavogi:
Frekar leiðinleg tíð hefur verið á
Djúpavogi í vetur, lítill snjór að vísu,
en vindasamt og kalt. Er það óvenju-
legt hér enda mun þetta vera hvim-
leiðasti vetur sem komið hefur lengi,
einkum þó mánuðirnir janúar og fe-
brúar.
Það er helst að frétta annars að
ungmennafélagið á staðnum hélt í
vetur mikla spurningakeppni milh
12 fyrirtækja og stóð hún nokkra
sunnudaga. Lyktir urðu þær að
kaupfélagið fór með sigur af hólmi.
Var einkar vel að þessari keppni
staðið. Þá var í fyrsta sinn reynd
svokölluð „opin vika“ í grunnskólan-
um síðustu viku fyrir páksa og gafst
hún nokkuð vel. Nemendur mættu
þá viku í skólann, ekki til reglubund-
innar kennslu heldur unnu þeir
ýmis verkefni tengd sögu Djúpavogs,
leikrit og myndir, og nokkrir drengir
úr 3. og 4. bekk gerðu líkan af höfn-
inni svo eitthvað sé nefnt. Lauk
þessari opnu viku svo me'ð kvöld-
vöku sem nemendur auðvitað sáu
um sjálfir.
Karlakórinn Jökull frá Höfn í
Hornafirði var með söngskemmtun
hér að kvöldi 2. apríl og þóttí hún
takast með afbrigðum vel.
Mikill fjöldi skógarþrasta er kom-
inn hér fyrir nokkru og með þeim
svartþrestir í hrönnum. Mun það
vera afar sjaldgæft að svartþrestir
komi hér svo margir. Er varla frá-
leitt að hugsa sér að þeir r’uú reyna
hér varp í sumar enda mikill íjöldi
þeirra einnig í næstu byggðarlögum.
Þá sáust 2 hrossagaukar þann 6. apríl
og grákráka var hér einnig part úr
degi. Hún var mjög stygg en þó tókst
að ná af henni mynd. Mun hún vera
með sjaldgæfari gestum hér á landi.
Frá Djúpavogi.
DV-mynd Sigurður Ægisson
Sófasett, 3ja sæta sófi og 2 stólar
kr. 26.600,-
Hvítlökkuð stálgrind, vínrautt bómullaráklœði sem hœgt er að taka af og hreinsa.
SUÐURLANDSBRAUT 22
S.-36011
Hjá Ferðaskrifstofu FÍB sérhæfum við okkur í flugi og bíl, einfaldlega
vegna þess að þar getum við boðið þér vel.
Vegna traustra tengsla okkar við ýmis systursamtök í Evrópu getum við
)oðið þér hagstæð bílaleigukjör eða flutning á eigin bíLsé þess óskað
vandaða gistingu og skemmtilegar ökuleiðir.
Viljirðu njóta frísins í flugi og bíl, hafðu þá fyrst
samband við okkur. Við finnum með þér
vænlegustu kostina, - í ánægjulegtfrí,
nákvæmlega aðþínumóskum.
Þjónusta okkar er öllum opin
FERÐASKRIFSTOFA FIB
BORGARTÚNI 33 SÍMAR 29997 & 622970
>INGAI»JÓNUSTAN/SlA